Yggdrasill [1] (um 1990)

Hljómsveitin Yggdrasill var starfandi á Akranesi um eða fyrir 1990. Anna Halldórsdóttir mun hafa verið í þessari hljómsveit, sem var að öllum líkindum starfandi í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi en sveitin var meðal þátttökusveita í Hljómsveitakeppni NFFA árið 1990.

Allar frekari upplýsingar um Yggdrasil eru vel þegnar.