
Dalli og rythmadrengirnir
Reykvíska unglingahljómsveitin Dalli og rythmadrengirnir störfuðu sumarið 1984 og léku m.a. á Rykkrokk tónleikunum.
Engar upplýsingar er að finna um þessa fimm manna sveit en í einni stuttri blaðagrein frá þessum tíma segir að sveitina skipi að mestu sömu meðlimir og skipuðu hljómsveitina Svefnpurkur. Sú sveit starfaði í Vogaskóla en engar aðrar upplýsingar liggja heldur fyrir um þá sveit.