Afmælisbörn 20. febrúar 2016

Josef Felzmann

Josef Felzmann

Afmælisbörn dagsins eru fjögur á þessum degi:

Ólöf Kolbrún Harðardóttir söngkona er sextíu og sjö ára, hún nam söng við Tónlistarkóla Kópavogs og síðar í Þýskalandi, Ítalíu og Austurríki og þegar hún kom heim að námi loknu hóf hún að kenna söng auk þess að syngja, bæði opinberlega og á plötum. Hún hefur ætíð verið viðloðandi Kór Langholtskirkju þar sem Jón Stefánsson eiginmaður hennar hefur stýrt kórnum en þau voru upphaflega saman í Hryntríóinu ung að árum.

Kristján Viðar Haraldsson (Viddi Greifi) tónlistarmaður og heilari er fimmtíu og eins árs á þessum degi. Viddi hefur verið söngvari og hljómborðsleikari Greifanna frá Húsavík síðan sveitin sigraði Músíktilraunir Tónabæjar árið 1986 en áður gekk sveitin undir nafninu Special treatment.

Einar Ólafsson er fimmtíu og þriggja ára í dag. Hans verður alltaf minnst fyrir framlag sitt, Þú vilt ganga þinn veg, sem hann söng barn að aldri. Einar var lítt viðloðandi tónlist eftir það, kom þó eitthvað við sögu hljómsveitanna Pass og Trípólí en hefur fengist við allt aðra hluti í seinni tíð.

Að síðustu er hér nefndur Austurríkismaðurinn Josef Felzmann fiðluleikari (1910-76) sem einnig hefði átt afmæli á þessum degi. Hann kom hingað til lands á millistríðsárunum og starfaði hér til dauðadags, hann lék hérlendis með fjölmörgum danshljómsveitum en einnig með Sinfóníuhljómsveit Íslands í áratugi. Josef spilaði aukinheldur inn á fjölda hljómplatna.