
Hljómsveit Guðmundar Sigurðssonar
Litlar sem engar upplýsingar er að finna um Hljómsveit Guðmundar Sigurðssonar en hún var starfrækt í um eitt og hálft ár,1972 og 73. Sveitin spilaði að öllum líkindum einhvers konar gömlu dansa tónlist og lék einkum á öldurhúsum borgararinnar, ekki liggur fyrir hverjir skipuðu hana.
Hugsanlegt er að hér sé um að ræða nafnarugling, að þetta sé í raun Hljómsveit Guðmundar Sigurjónssonar sem starfaði um svipað leyti en þó er í einni heimild nefndur trommuleikari sem bar nafnið Þórður Clausen Þórðarson en sá lék einmitt í hljómsveitinni Plöntunni sem einnig innihélt bassaleikarann og söngvarann Guðmund Sigurðsson.














































