Hljómsveitin Jómfrú Ragnheiður var sett saman fyrir fjörutíu ára afmælishátíð Ungmennafélags Hveragerðis og Ölfuss sem haldin var í janúar 1975.
Sveitin lék í fáein skipti í kringum afmælið en engar upplýsingar er að finna um meðlimi hennar eða tilurð að öðru leyti.














































