Limbó (oft kallað Söngsveitin Limbó) var tríó sem varð til hjá nokkrum æskufélögum, sem ákváðu mörgum árum síðar að láta drauminn um að gefa út plötu, rætast.
Þeir Limbó-félagar, Helgi Indriðason, Guðjón Karl Reynisson og Atli Geir Jóhannesson höfðu á árum áður spilað knattspyrnu saman vestur á Ísafirði og þar höfðu ýmis lög orðið til við söng og gítarglamur, flest eftir Atla Geir.
Löngu síðar eða 1991, þegar þeir félagar voru komnir á fullorðins aldur, ákváðu þeir að láta verða að því að gefa plötu út með efninu og fengu þeir nokkra þjóðþekkta tónlistarmenn og -konur til að leika og syngja inn á plötuna í hljóðveri Sigurðar Rúnars Jónssonar, Stemmu. Afraksturinn varð platan Fyrstu sporin, …traðkað í margtroðinni slóð, sem út kom hjá útgáfufyrirtæki þeirra félaga, Nashyrningnum, á vínylformi og geisladiski sem þá var tiltölulega nýkomið til sögunnar. Veglegur bæklingur með textum fylgdi útgáfunni.
Engar upplýsingar er að finna um viðtökur á plötunni og ekki mun henni hafa verið fylgt eftir að neinu ráði með spilamennsku. Því er líklegast að upplag plötunnar hafi að mestu endað í hópi vina og ættingja Limbós.














































