Svartálfarnir (1975)
Hljómsveit með þessu nafni var starfandi sumarið 1975 en engar upplýsingar liggja fyrir um hana, skipan eða líftíma en þær væru vel þegnar.
Hljómsveit með þessu nafni var starfandi sumarið 1975 en engar upplýsingar liggja fyrir um hana, skipan eða líftíma en þær væru vel þegnar.
Hljómsveitin Svarti túlípaninn starfaði um miðjan áttunda áratug liðinnar aldar, á árunum 1973 til 75, á Húsavík eða nágrenni. Svarti túlípaninn var stofnuð árið 1973 og voru meðlimir hennar þeir Þorvaldur Daði [Halldórsson?] gítarleikari, Halldór Hákonarson bassaleikari, Stefán Helgason trommuleikari, Theódór Sigurðsson gítarleikari og Guðmundur Valur Stefánsson söngvari og gítarleikari. Einhverjar mannabreytingar urðu á Svarta…
Svartur pipar var hljómsveit, líklegast stofnuð haustið 1991. Ekki liggja fyrir upplýsingar um stofnmeðlimi hennar en Hermann Ólafsson (Lótus o.fl.) var fyrsti söngvari sveitarinnar. Sumarið 1992 gekk söngkonan Margrét Eir Hjartardóttir til liðs við sveitina en hún hafði unnið Söngkeppni framhaldsskólanna árið áður. Aðrir meðlimir hennar lengst af voru Gylfi Már Hilmisson slagverksleikari og söngvari, Ari…
Þótt söngferill Svavars Lárussonar hafi spannað fremur stuttan tíma er hann einn af frumkvöðlum dægurlagatónlistar á Íslandi, en hann varð þeim mun meira áberandi á öðrum sviðum. Norðfirðingurinn Svavar Lárusson (f. 1930) var orðinn nokkuð þekktur söngvari með danshljómsveitum (m.a. með Hljómsveit Gunnars Egilson) þegar honum bauðst vorið 1952 að syngja inn á plötur hjá…
Svavar Lárusson – Fiskimannaljóð frá Capri / Sólskinið sindrar [78 sn.] Útgefandi: Íslenzkir tónar Útgáfunúmer: IM 3 Ár: 1952 1. Fiskimannaljóð frá Capri 2. Sólskinið sindrar Flytjendur Sy-We-La kvintettinn – engar upplýsingar Svavar Lárusson – söngur Svavar Lárusson – Ég vildi ég væri / Hreðavatnsvalsinn [78 sn.] Útgefandi: Íslenzkir tónar Útgáfunúmer: IM 4…
Hljómsveitin Svefngalsar er líkelga flestum gleymd en hún vakti nokkra athygli 1986 er hún gaf út sína fyrstu og einu plötu. Svefngölsum skaut skyndilega upp á sjónarsviðið með fullunna plötu haustið 1986 en hún hafði þá lítið sem ekkert leikið opinberlega, reyndar virðist hún ekkert hafa spilað opinberlega þrátt fyrir að hafa ætlað sér það…
Svefngalsar – Spilduljónið Útgefandi: Blaðstíft aftan Útgáfunúmer: BA 001 Ár: 1986 1. Sveitavargur 2. Þú ert stúlkan 3. Réttar vísur 4. Tilbrigði um nótt 5. Það rignir í Reykjavík 6. Strammaðu þig af 7. Obbosí 8. Þorgeirsboli 9. Alfa laval 10. Íslandsóð Flytjendur Eggert Þorleifsson – klarinetta Níels Ragnarsson – hljómborð og raddir Stefán S. Stefánsson – saxófónn…
Hljómsveitin Svefnpur[r]kur starfaði 1983 og 84, tók þátt í Músíktilraunum haustið 1983 en komst ekki í úrslit. Sagan segir að nafnið hafi komið til sem eins konar skírskotun til Purrks Pillnikks. Upplýsingar um meðlimi sveitarinnar sem munu hafa verið 12 og 13 ára gamlir nemendur í Vogaskóla, eru af skornum skammti en fyrir liggur að…
Hljómsveitin Sveitin milli sanda starfaði um nokkurra ára skeið og spilaði gamalt rokk fyrir skemmtanaþyrsta gesti á ballstöðum borgarinnar. Sveitin var stofnuð snemma árs 1987 og var tríó fyrst um sinn, þeirra bræðra Arnars gítarleikara og Rafns trommuleikara Sigurbjörnssona, auk Ágústs Ragnarssonar bassaleikara en allir þremenninganna sungu. Um haustið bættist fjórði meðlimurinn við, Þórður Árnason…
Hljómsveit starfandi í Reykjavík 1985 og 86. Sveitin keppti í Músíktilraunum 1986 en komst ekki í úrslit. Engar upplýsingar liggja fyrir um meðlimi sveitarinnar.
Hljómsveitin Svívirðing var starfandi 1993 en það ár átti sveitin lag á safnplötunni Landvættarokk. Meðlimir hennar voru þá Róbert Ólafsson söngvari, Guðbjartur Árnason trommuleikari, Jón Tryggvi Jónsson bassaleikari og Arnar Þór Guttormsson gítarleikari. Svívirðing keppti í Músíktrilaunum um vorið 1993 og sama ár átti sveitin lag á safnplötunni Íslensk tónlist 1993. Ekki liggja fyrir frekari…
Litlar upplýsingar er að finna um þungarokkssveitina Sweet pain, hún mun hafa verið starfandi sumarið 1985 og líklega fram á vor 1986 en þá var hún skráð til leiks á Músíktilraunum. Sveitin mætti ekki til leiks í Músíktilraunum en önnur sveit, Baron blitz, var stofnuð upp úr henni og keppti. Ekki er ljóst hvort sú…
The Swingers mun hafa verið hljómsveit sem Sigurður Johnny Þórðarson söngvari hélt úti og lék að mestu leyti í herstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Engar upplýsingar er að finna um sveitina aðrar en að fjölmargar söngkonur komu við sögu hennar, þar má nefna Fjólu Ólafsdóttur, Díönu Magnúsdóttur, Astrid Jensen, Mjöll Hólm og Maríu Baldursdóttur.
Söngfélagið Sindri er undanfari Karlakórs Dalvíkur. Nokkrir áhugamenn á Dalvík stofnuðu þennan sönghóp 1952 og í nokkur ár æfði hópurinn og söng undir stjórn Stefáns Bjarman. Þegar Gestur Hjörleifsson tók við stjórn kórsins 1960 var nafninu breytt í Karlakór Dalvíkur og hefur hann gefið úr nokkrar plötur.
Söngvakeppni Sjónvarpsins (hin fyrri) var aðeins haldin einu sinni, snemma vors 1981 en hugmyndin með henni var að gefa áhugasömum laga- og textahöfundum tækifæri til að koma efni sínu á framfæri, upphaflega var gert ráð fyrir að þetta yrði eins konar undankeppni Eurovision söngkeppninnar. Keppnin hafði verið auglýst með góðum fyrirvara og um fimm hundruð…
Ríkissjónvarpið, sem hafði yfirumsjón með undankeppni Eurovision hér heima (enda aðili að Eurovision-samtökunum) blés í lúðra haustið 1985 eftir að hafa sótt um aðild að keppninni og fyrsta undankeppnin hér heima var haldin snemma árs 1986 með pomp og prakt. Auglýst hafði verið eftir framlögum í byrjun desember 1985 og þegar fresturinn rann út höfðu…
Menn lögðu ekki árar í bát þrátt fyrir áfallið í Bergen, nú var búið að taka einu sinni þátt og þá var bara að læra af reynslunni. Næsta ár (1987) var haldin undankeppni með örlítið breyttu sniði frá árinu áður. Áhuginn var mun minni en árið á undan en aðeins fimmtíu og níu lög bárust…
Það má kannski segja að nú hafi nýjabrumið verið farið af Eurovision-undankeppninni og hafi verið blásið í lúðra fyrsta árið má segja sem svo að þetta þriðja ár hafi lúðrablásturinn verið í formi nokkurra blokkflaututóna, enda var þessi fræga sönglagakeppni erfiðari viðureignar en menn héldu fyrir. Fleiri sendu þó inn lög 1988 en árið á…
Undankeppni Eurovision 1989 var með öðru sniði en áður enda þurfti nú að spara innan Ríkissútvarpsins, fyrirkomulagið var með þeim hætti að sex höfundar voru fengnir til að semja lög, höfundarnir þrír sem sigrað höfðu í þrjú fyrstu skiptin, auk Gunnars Þórðarsonar og Geirmundar Valtýssonar sem átt höfðu lög í öllum þremur undankeppnunum til þessa. Bubba…
Snemma árs 1990 var flautað til leiks í nýrri undankeppni, og fyrirkomulag svipað því gamla tekið upp aftur. Áhugi fyrir keppninni glæddist nú á nýjan leik og yfir tvö hundruð lög bárust í hana, tólf þeirra voru valin í tvo undanúrslitaþætti og sex þeirra kepptu síðan í úrslitum sem fram fóru 10. febrúar. Það voru…
Það má segja að þjóðin hafi enn verið í sigurvímu (þótt enginn hafi verið sigurinn) eftir árangur Sigríðar og Grétars í Zagreb, þegar næsta keppni var kynnt til sögunnar snemma árs 1991. 117 lög bárust í keppnina að þessu sinni og fyrirkomulag hennar var með þeim hætti að tíu lög voru valin í úrslit, kynnt…
150 lög bárust í undankeppni Evrópusöngvakeppninnar fyrir vorið 1992 og voru tíu af þeim valin af dómnefnd til að keppa um sæti í úrslitakeppninni í Svíþjóð. Lögin tíu voru; Einfalt mál (lag Harðar G. Ólafssonar við texta Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar) sungið af Helgu Möller og Karli Örvarssyni, Eva (eftir Þóri Úlfarsson við texta Arnars Freys…
Um 130 lög bárust í keppnina árið 1993 og tíu þeirra kepptu til úrslita í beinni sjónvarpsútsendingu í febrúar eftir að hafa verið kynnt í nokkrum þáttum, lögin voru eftirfarandi; Bless, bless í flutningi Guðlaugar Ólafsdóttur (eftir Geirmund Valtýsson við texta Birgis Fannars Birgissonar), Brenndar brýr flutt af Ingunni Gylfadóttur (lagið er eftir Ingunni og…
Árið 1994 var fyrirkomulag keppninnar með nýju sniði, þrír höfundar fengu það verkefni að semja lag og síðan skildi þjóðin velja eitt þeirra þriggja. Ástæðan fyrir þessu var tvíþætt, annars vegar hlaust sparnaður af þessu fyrirkomulagi en kostnaður vegna tíu laga undankeppni þótti gríðarlega mikill, hins vegar þótti ljóst að meira væri hægt að leggja…
Enn á ný var nýtt fyrirkomulag keppninnar hér heima prófað árið 1995, var það gert í sparnaðarskyni eins og árið áður og þegar upp var staðið varð kostnaður helmingi minni en þegar best lét. Í þetta sinn var flytjandinn valinn fyrst og lagið síðan, af sérstakri nefnd. Stórsöngvarinn Björgvin Halldórsson varð fyrir valinu en nokkrar…
Engin undankeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva var haldin á Íslandi 1996 fremur en árið áður vegna gríðarlegs kostnaðar. Vegna þessa fóru raddir gegn þátttöku í keppninni að verða háværari. Sveinbjörn I. Baldvinsson dagskrárstjóri innlendrar dagskrárgerðar hjá Ríkissjónvarpinu gekk hvað harðast gegn þátttöku í keppninni vegna kostnaðarins við hana en um leið þýddi það stórfelldan niðurskurð í…
Eurovision keppnin hafði nú tekið nokkrum breytingum frá því Íslendingar tóku fyrst þátt 1986, takmarkanir á fjölda þátttakenda hafði verið sett á í kjölfar þess að Evrópuþjóðum fjölgaði mjög en auk þess var nú engin undankeppni hér heima fyrir keppnina heldur fékk Ríkissjónvarpið nú tónlistarfólk til að semja og flytja lag fyrir sína hönd. Það…
Íslendingar höfðu ekki þátttökurétt í Eurovision söngkeppninni þetta árið og því var engin undankeppni haldin hér heima.
Eins og annars staðar segir tók Ísland ekki þátt í keppninni 1998 en snemma árs 1999 var tilkynnt að Selma Björnsdóttir myndi syngja framlag okkar að þessu sinni í samstarfi við Þorvald Bjarna Þorvaldsson en hún hafði m.a. unnið með honum tónlistina í kvikmyndinni Sporlaust. Selma hafði einnig nýverið sungið nokkuð í söngleikjum og vakið…
Árið 2000 var aftur tekin upp sú leið eftir nokkurra ára hlé að hafa undankeppni. Fimm lög af 120 sem bárust í keppnina voru kynnt í skemmtiþættinum Stutt í spunann, og úrslitakvöldið var síðan haldið í lok febrúar þegar þau kepptu í beinni útsendingu þáttarins. Lögin fimm voru Barnagæla flutt af Guðrúnu Gunnarsdóttur en lag…
Hljómsveitin Tabor var starfandi í Vestur-Skaftafellssýslu, í sveitunum kringum Kirkjubæjarklaustur. Meðal meðlima sveitarinnar voru Ingvar [?], Bjarni Bjarnason og Davíð Þór Guðmundsson, hugsanlega voru fleiri í henni en ekki liggur fyrir hvenær Tabor starfaði. Hér er þó giskað á níunda áratug síðustu aldar. Allar frekari upplýsingar óskast um hljómsveitina.
Taboo kvintett var starfrækt í kringum 1960 og samkvæmt auglýsingum í blöðum frá 1961 var hún skipuð þeim Pétri [?], Tryggva [?], Rafni [?], Sveini Sigurkarlssyni og Donald [Walker bassaleikara?]. Söngkona sveitarinnar var Astrid Jensdóttir en Sigurður Johnny mun einnig hafa sungið með sveitinni. Á einhverjum tímapunkti er Jóhann Gestsson auglýstur sem söngvari með sveitinni…
Blúsbandið Tabula Raza var starfandi a.m.k. á árunum 2002 – 2006, ein heimild segir hana frá Sandgerði. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar.
Hljómsveitin Tabú er frá Ólafsvík, starfandi allavega 2004 og spilaði þá á sveitaböllum. Allar upplýsingar um sveitina eru vel þegnar en önnur hljómsveit, Felix, spratt hugsanlega upp úr henni.
Hljómsveitin Taktleysa var starfandi á hjartadeild Landspítala háskólasjúkrahúss árið 2005. Í þessari sveit var m.a. Ragnar Danielsen (Stuðmenn, Frummenn) en meðlimir sveitarinnar voru eingöngu hjartaskurðlæknar. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um sveitina.
Tacton var hljómsveit, starfrækt í Gagnfræðiskólanum í Kópavogi fyrir margt löngu, líklega 1966 – 67. Meðal meðlima var Árni Blandon gítarleikari (Tatarar) en ekki liggja fyrir upplýsingar um aðra meðlimi eða sveitina almennt en hún mun hafa verið einn forvera þeirrar sveitar sem síðar nefndust Tatarar.
Hljómsveitin Tappi tíkarrass var hluti af félagsskapnum STÍFT (samtök trylltra íslenskra flippara og tónlistarmanna) þar sem tónlistin var ekki endilega aðalatriðið. Undanfari þessarar sveitar var Jam 80 en vorið 1981 breyttu þau nafninu í Tappa tíkarrass. Hópurinn hafði samanstaðið af Eyþóri Arnalds söngvara (Todmobile o.fl.), Jakobi Smára Magnússyni bassaleikara (Das Kapital o.fl.) og Eyjólfi Jóhannessyni…
Tappi tíkarrass – Bitið fast í vitið Útgefandi: Spor Útgáfunúmer: SPOR 4 Ár: 1982 1. Óttar 2. Lok-lað 3. Ilty ebni 4. London 5. Fa fa Flytjendur: Jakob Smári Magnússon – bassi Björk (Guðmundsdóttir) – söngur og hljómborð Eyjólfur Jóhannsson – gítar Guðmundur Þór Gunnarsson – trommur Tappi tíkarrass – Miranda Útgefandi: Gramm Útgáfunúmer: GRAMM 16 Ár:…
Reykvíska hljómsveitin Tarkos starfaði a.m.k. um þriðja ára skeið á árunum 1985-88. Sveitin tók tvívegis þátt í Músíktilraunum Tónabæjar, fyrst árið 1987 en sveitin var þá skipuð þeim Viggó [?] söngvara, Tyrfingi Þórarinssyni gítarleikara, Þorfinni Pétri Eggertssyni bassaleikara og Eggerti Þór Jónssyni trommuleikara. Sveitin komst ekki í úrslit. 1988 tók sveitin aftur þátt í Músíktilraunum Tónabæjar…
Hljómsveitin Te fyrir tvo (Tea for two / T42 / Tea 4-2) var starfrækt í Kópavoginum á árunum 1982-83 og þótti spila pönk í anda Purrks Pillnikk og Jonee Jonee, sem þá voru upp á sitt besta. Lög sveitarinnar voru stutt og án viðlaga og t.d. mun stysta lag hennar hafa verið 38 sekúndur en…
Hljómsveit með þessu nafni var skráð til leiks í Músíktilraunum Tónabæjar haustið 1983. Sveitin komst ekki í úrslitin og engar upplýsingar liggja fyrir um hana.
Hljómsveit úr Reykjavík sem keppti í Músíktilraunum Tónabæjar og Bylgjunnar 1989. Meðlimir sveitarinnar voru Jóhannes P. Davíðsson gítarleikari, Sigfús Höskuldsson trommuleikari, Jón Leifsson bassaleikari og Ásgeir Már Helgason söngvari. Líklega höfðu einhverjar mannabreytingar átt sér stað áður en sveitin keppti þar en upplýsingar þ.a.l. liggja ekki fyrir. Sveitin komst ekki áfram í úrslit keppninnar.
Dúettinn Terrance var starfandi 1998 og lenti það árið í þriðja sæti Rokkstokk hljómsveitakeppninnar, sem haldin var í Keflavík. Í kjölfarið gaf sveitin út lög á safnplötunni Rokkstokk 1998. Meðlimir sveitarinnar voru Guðmundur Bjarni Sigurðsson söngvari, gítarleikari og tölvumaður, og Örvar Þór Sigurðsson söngvari.
Hljómsveitin Tic Tac (Tikk Takk / Tik Tak) frá Akranesi starfaði að öllum líkindum á árunum 1982 – 86. Hún vakti fyrst á sér athygli á fyrstu Músíktilraunum Tónabæjar og SATT haustið 1982 þótt ekki yrði árangurinn sérstakur þar. Meðlimir sveitarinnar voru þeir Bjarni Jónsson söngvari og gítarleikari, Jón Bjarki Bentsson bassaleikari, Ólafur Friðriksson gítarleikari,…
Tic tac – Poseidon sefur [ep] Útgefandi: Mjöt Útgáfunúmer: MHM 001 Ár: 1984 1. A song for the sun 2. Joy 3. Kitchen song 4. Seymour Flytjendur Bjarni Jónsson – söngur Ólafur Friðriksson – gítar Jón Bjarki Bentsson – bassi Friðþjófur Árnason – hljómborð Júlíus Björgvinsson – trommur
Tríóið Tikkal frá Þorlákshöfn var starfandi 1999 og tók þá þátt í Músíktilraunum Tónabæjar. Hjörtur Rafn Jóhannsson söngvari og gítarleikari, Grétar Ingi Erlendsson trommuleikari og Jón B. Skarphéðinsson bassaleikari skipuðu þá sveitina sem komst í úrslit. Síðar sama ár keppti sveitin í Rokkstokk hljómsveitakeppninni, komst ekki í úrslit en lag með henni kom þó út…
Hljómsveitin Tin kom fram á sjónarsviðið á Músíktilraunum 1999. Finnur Vilhjálmsson söngvari og gítarleikari, Þórir Ingvarsson bassaleikari, Elías Guðmundsson trommuleikari og Einar Aron Einarsson gítarleikari skipuðu sveitina en sá síðastnefndi var valinn besti gítarleikari tilraunanna í það skiptið, þrátt fyrir að sveitin næði ekki í úrslit.
Lítið er vitað um hljómsveitina Tídon úr Njarðvík, annað en að hún var stofnuð 1982 og tók árið eftir þátt í Músíktilraunum Tónabæjar og SATT. Engar upplýsingar er að finna um meðlimi sveitarinnar.
Hljómsveitin Titanic var starfandi á árunum 1987 til 89, sveitin mun hafa verið stofnuð 1987 og hét þá líklega öðru nafni (sem upplýsingar vantar um) en hlaut Titanic nafnið árið 1988. Meðlimir sveitarinnar voru í upphafi þeir Sigurjón Axelsson gítarleikari og söngvari, Páll Ú. Júlíusson trommuleikari, Eyvindur Sólnes söngvari, og bassaleikari að nafni Kári [?].…
Kópavogssveitin Tjalz Gissur (Tjalz Gizur) starfaði um nokkurra ára bil fram undir miðjan tíunda áratug 20. aldar. Hún var stofnuð 1990, spilaði eins konar sýrurokk og vorið 1992 tók hún þátt í Músíktilraunum Tónabæjar án þess þó að komast í úrslit. Meðlimir sveitarinnar voru þá þeir bræður Kristinn söngvari og gítarleikari og Guðlaugur Júníussynir trommuleikari…