
Landshornarokkarar
Hljómsveitin Landshornarokkarar var stofnuð vorið 1981 en hana skipuðu þremenningarnir Axel Einarsson söngvari og gítarleikari, Ágúst Ragnarsson bassaleikari og Ólafur Kolbeins trommuleikari.
Sveitin spilaði víða á sveitaböllum þá um sumarið og næsta sumar (1982) en svo spurðist lítið til hennar þar til vorið 1984, að hún fór í samstarf með kvennasveitinni Jelly systur og herjaði á ballmarkaðinn undir nafninu Rokkgengið, þá var Rafn Sigurbjörnsson genginn til liðs við sveitina og starfaði hann með henni eftir það.
Landshornarokkarar voru síðan aftur á ferðinni vorið 1985 en þá voru þeir einir á ferð. Líklega starfaði sveitin ekki lengur en það.














































