
Rídalín
Dúettinn Rídalín starfaði í Reykjavík um aldamótin og keppti í Músíktilraunum Hins hússins árið 2000.
Sigurvin Jóhannesson tölvumaður og Árni Þór Jóhannesson tölvumaður og hljómborðsleikari skipuðu þennan dúett, þeir komust ekki áfram í úrslit tilraunanna.