Titanic [2] (1987-89)

Titanic

Hljómsveitin Titanic var starfandi á árunum 1987 til 89, sveitin mun hafa verið stofnuð 1987 og hét þá líklega öðru nafni (sem upplýsingar vantar um) en hlaut Titanic nafnið árið 1988. Meðlimir sveitarinnar voru í upphafi þeir Sigurjón Axelsson gítarleikari og söngvari, Páll Ú. Júlíusson trommuleikari, Eyvindur Sólnes söngvari, og bassaleikari að nafni Kári [?]. Sigurður Geirdal (Silli Geirdal) tók við bassanum þegar Kári hætti í sveitinni.

Titanic keppti vorið 1989 í Músíktilraunum en komst ekki áfram í úrslit þrátt fyrir jákvæða umsögn í fjölmiðlum, þá var sveitin orðin að tríói þeirra Páls, Sigurjóns og Silla en Eyvindur var þá hættur. Fljótlega eftir Músíktilraunir var nafni sveitarinnar breytt í Flintstones vegna þess að önnur sveit mun hafa borið Titanic nafnið um það leyti.