
Ársæll Másson
Tvö afmælisbörn koma við sögu dagsins:
Ársæll Másson gítarleikari og menntaskólakennari er sextugur en hann hefur leikið með ýmsum sveitum í gegnum tíðina. Þeirra á meðal má nefna Stórsveit Reykjavíkur, Bambinos, Misgengið og Föruneyti Gísla Helgasonar. Ársæll gegndi starfi djasstónlistargagnrýnanda á DV um tíma.
Þórhallur (Laddi) tónlistarmaður og skemmtikraftur er 68 ára gamall, hann er þekktastur fyrir grínið og hefur m.a. gefið út fjölmargar plötur einn og í félagi við aðra, en hefur einnig sungið alvarlegri tónlist. Laddi var trymbill í hljómsveitum hér áður fyrr og spilaði hér heima sem erlendis með þeim.