
Egla
Hljómsveitinni Eglu frá Fáskrúðsfirði skaut snögglega upp á stjörnuhimininn haustið 1981 þegar hún gaf út sína fyrstu og einu plötu en hún hvarf þaðan jafnharðan litlu síðar þegar plötugagnrýnin varð í neikvæðari kantinum.
Sveitin var að líkindum stofnuð snemma árs 1981 og var skipuð þeim Ævari Agnarssyni söngvara og gítarleikara, Brynjari Þórðarsyni trommuleikara, Árna Óðinssyni söngvara og gítarleikara, Hallgrími Bergssyni hljómborðsleikara og Birni Vilhjálmssyni bassaleikara.
Sveitin varð strax dugleg í spilamennsku einkum norðanlands og austan en lék einnig eitthvað á höfuðborgarsvæðinu meðan hún starfaði.
Egla tók fljótlega þann pól í hæðina að gefa út plötu og dreif sig í hljóðver Pálma Guðmundssonar, Stúdíó Bimbó á Akureyri um sumarið. Platan, sem að mestu hafði að geyma laga- og textasmíðar hljómsveitarmeðlima, kom út um haustið og hlaut nafnið Maður er manns gaman (úr Hávamálum) en sjálf sveitin skírskotaði til Egils sögu Skallagrímssonar með nafni sínu, það má því segja að bókmenntaarfurinn hafi verið þeim hugleikinn. Platan hlaut þó ekki þá athygli og jákvæðni sem þeir Eglu-liðar vonuðust til því hún hlaut mjög slaka dóma í Dagblaðinu og fremur slaka í Morgunblaðinu.
Fljótlega eftir það niðurrif virðist hafa fjarað undan sveitinni, að minnsta kost heyrðist ekkert til hennar fyrr en sumarið 2006 sem hún var endurreist í tilefni af einhverri bæjarhátíðinni fyrir austan.