
Ási í Bæ
Afmælisbarn dagsins er aðeins eitt í þetta skiptið:
Ástgeir Ólafsson (Ási í Bæ) hefði átt afmæli á þessum degi en hundrað og eitt ár er liðið nú frá fæðingu hans. Ási í Bæ (1914-85) sýndi ungur hæfileika til að spila á ýmis hljóðfæri, lærði á þau nokkur og hóf að semja lög og texta. Mörg þeirra hafa löngu síðan öðlast sess sem sígild lög, kennd við Vestmannaeyjar þar sem hann bjó. Hann samdi fjölmörg þjóðhátíðarlög og aðrar lagasmíðar sem aðrir hafa flutt en einnig komu út plötur með honum sjálfum. Meðal laga og texta Ása í Bæ má nefna Ég veit þú kemur, Gamla gatan, Sólbrúnir vangar og Göllavísur.














































