
Reðr
Hljómsveitin Reðr mun hafa starfað í Hlíðunum á níunda áratug síðustu aldar.
Reðr mun upphaflega hafa verið starfandi í Hlíðaskóla og síðan Menntaskólanum við Hamrahlíð, sé tekið mið af því gæti sveitin hafa verið starfandi u.þ.b. á árunum 1981-84.
Meðlimir sveitarinnar Einar Rúnarsson hljómborðsleikari (Sniglabandið, Blúsmenn Andreu o.fl.), Guðbrandur Gísli Brandsson söngvari, Gunnar Örn Sigurðsson gítarleikari, Hilmar [?] trommuleikari og Friðbjörn Hólm Ólafsson bassaleikari. Stefán Hilmarsson (síðar söngvari Sálarinnar hans Jóns míns o.fl.) mun hafa spilað eitt gigg með sveitinni – á trommur.
Sveitin gekk einnig undir nafninu Kýklópar.














































