Afmælisbörn 5. apríl 2016

Gísli Helgason Arnþór Helgason

Gísli og Arnþór Helgasynir

Afmælisbörn dagsins eru þrjú að þessu sinni:

Fyrst skal telja tvíburabræðurna frá Vestmannaeyjum, þá Gísla og Arnþór Helgasyni sem eru sextíu og fjögurra ára gamlir. Framan af störfuðu þeir bræður mikið saman, fóru um landið og léku saman á mörgum tónleikum ungir að árum um miðjan sjöunda áratuginn og létu sjónskerðingu ekki aftra sér í því. Þeir störfuðu einnig saman í hljómsveitum eins og Austrið er rautt og Eyjaliðinu, og gáfu saman út plötuna Í bróðerni árið 1981. Arnþór var síðar í Wulfilins-orkestra en Gísli hefur verið mun meira áberandi í tónlistinni hin síðari ár, var í Hálfu í hvoru, Vísnavinum og Islandicu, starfrækt eigin sveit, hefur gefið út sólóplötur og leikið á plötum annarra listamanna auk þess að vera viðloðandi hljóðvinnslu ýmis konar.

Áskell Jónsson (1911-2002) tónlistarfrömuður á Akureyri hefði einnig átt afmæli á þessum degi, hann stýrði kórum og lúðrasveitum, kenndi tónlist, annaðist undirleik, samdi tónlist og var öflugur í félagsmálum tónlistarmanna nyrðra.