Um áramót er við hæfi að líta um öxl og minnast tónlistarfólks sem féll frá á árinu 2021, Glatkistan hefur tekið saman lista fjórtán tónlistarkvenna og -manna sem létust á árinu en þau komu að íslenskri tónlistarsögu með mismiklum og ólíkum hætti.
Fjóla Karlsdóttir (1936-2021) – dægurlagasöngkona
Gerður Benediktsdóttir (1945-2021) – söngkona (barnastjarna)
Guðmundur Steingrímsson (1929-2021) – trommuleikari
Guðni Már Henningsson (1952-2021) – útvarpsmaður
Jakob Ó. Jónsson (1940-2021) – dægurlagasöngvari
Jón Sigurbjörnsson (1922-2021) – söngvari og leikari
Jósef Magnússon (1933-2021) – flautuleikari
Pálmi Stefánsson (1936-2021) – tónlistarmaður, hljóðfæraverslunareigandi og plötuútgefandi
Ríkarður Örn Pálsson (1946-2021) – tónlistarmaður og gagnrýnandi
Sigfús Ólafsson (1944-2021) – tónlistarmaður og -kennari
Sigurdór Sigurdórsson (1938-2021) – dægurlagasöngvari
Sverrir Garðarsson (1935-2021) – tónlistarmaður og vann að félagsmálum tónlistarmanna
Trausti Thorberg (1927-2021) – gítarleikari
Viggó Brynjólfsson (1926-2021) – harmonikkuleikari














































