Cremation (1990-93)

Cremation – eða hluti sveitarinnar

Cremation var ein af þeim fjölmörgu dauðarokksveitum sem komu fram á sjónarsviðið upp úr 1990.

Sveitin var stofnuð 1991 og var þá skipuð Daníel Rodriguez bassaleikara, Hilmari Elvarssyni gítarleikara og söngvara, Ólafi Magnússyni gítarleikara og Magnúsi Kára Vignissyni Bergmann trommara. Daníel hætti fljótlega í sveitinni og Ágúst Helgi Waage tók við bassanum ásamt því að rymja með Hilmari.

Sveitin tók þátt í Músíktilraunum 1992 og var þá skipuð þeim Ágústi, Hilmari, Magnúsi og Ólafi, hún stóð sig nokkuð vel og komst í úrslit tilraunanna þar sem Kolrassa krókríðandi fór með sigur af hólmi. Ágúst og Hilmar hættu fljótlega eftir Músíktilraunir og gengu þá til liðs við sveitina þeir Hannes Hilmisson gítarleikari gítarleikari og Sigurgeir Snæbjörnsson bassaleikari. Ágúst kom svo aftur inn í hljómsveitina stuttu síðar en þá eingöngu í hlutverki söngvara. Sigurgeir hætti svo skömmu fyrir Músíktilraunir vorið 1993, Ágúst tók þá við bassanum á ný ásamt því að syngja og tóku þeir Cranium liðar þátt í tilraununum það árið þannig skipaðir.

Sveitin komst ekki áfram í úrslit í Músíktilraununum 1993 og lagði svo upp laupana um sumarið.

Sveitin spilaði á fjölda tónleika, í félagsmiðstöðvum, Port tónleikum, Hinu húsinu, o.fl. en ekki eru til upptökur nema frá úrslitakvöldi Músiktilrauna 1992, sem sjá má hér.