Halli and the Hobos var hljómsveit sem stofnuð var í Bandaríkjunum 1965 en Haraldur (Halli) Sigurðsson (Halli og Laddi / Haraldur í Skríplalandi o.fl.) var söngvari hennar.
Halli starfaði með hljómsveitinni í hálft ár en hún var að öðru leyti skipuð bandarískum hljóðfæraleikurum og lék af því er best er vitað aldrei á Íslandi.














































