Karlakór Rangæinga [2] (1947-58)

Karlakór Rangæinga [1]

Karlakór Rangæinga

Karlakór var starfandi í Rangárvallasýslu á árunum 1947-58. Kórinn tók reyndar ekki til starfa fyrr en haustið 1948 og var Jónas Helgason kórstjóri hans frá upphafi og að minnsta kosti til 1956 þegar hann flutti af svæðinu, ekki liggur þá fyrir hver stýrði kórnum síðustu tvö árin en hugsanlega var það Steinþór Gestsson frá Hæli í Hrunamannahreppi.

Þegar Karlakór Rangæinga gekk í Samband íslenskra karlakóra 1951 var hann í blaðaumfjöllunum sagður vera frá Hellu, meðlimir hans komu þó einnig úr öðrum hreppum sýslunnar þar sem byggðakjarninn Hella var ekki ýkja stór á þessum árum, þannig munu hafa verið í honum allnokkrir Eyfellingar.

Karlakór Rangæinga söng iðulega án undirleiks á söngskemmtunum sínum.