Andstaða

Andstaða (Lag / texti: Rass) Það er sami rassinn undir þeim öllum. Samstaða er úreld í dag, nú allir saman, andstaða! Framtíðin er ljós: Andstaða! [af plötunni Rass – Andstaða]

Men from unkles

Men from unkles (Lag og texti: Rass)   Have you heard about the men, the men from Uncles, uncle Ben and uncle Sven, the men from Uncles. One day when uncle Ben went to work, he was looking like a big fat stork. One day when uncle Sven went to Mary, he was looking like…

Umboðsmaður alþingis

Umboðsmaður alþingis (Lag og texti: Rass)   Umboðsmaður alþingis. Umboðsmaður alþingis. Umboðsmaður alþingis. Hann er ekki að standa sig. Þeir vilja komast til áhrifa. Þeir vilja afla sér vinsælda. Þeir vilja komast á forsíðurnar. Alþingismenn í svaka vanda. [af plötunni Rass – Andstaða]

Pönk familie

Pönk familie (Lag og texti: Rass)   Jeg har en familie, det er en punk familie. Du har en familie, det er også en punk familie. Pönk, pönk, pönk, pönk family. Meira pönk, meira pönk family. [af plötunni Rass – Andstaða]

Ævagömul orkuþula

Ævagömul orkuþula (Lag / texti: Ólöf Arnalds / Einar S. Arnalds) Hugur! Vertu hljóður, hlustaðu! Hlustaðu á helgan hljóm í þínu hjarta. Leitaðu! Leitaðu að vonarbjörtum neista í eigin brjósti. [af plötunni Ólöf Arnalds – Við og við]

Skjaldborg

Skjaldborg (Lag og texti: Ólöf Arnalds)   Góðir englar, viljiði með mér vaka. Brotin er í sundur og margt þótt sofi Viljið nú mín gæta, svífa um mig skjaldborg svo ég hangi inni í nótt, inn í mér og inni inni. Ef þig hefði, værirðu mín að gæta, segðir fátt en segðir nótt og svæfir,…

Náttsöngur

Náttsöngur (Lag og texti: Ólöf Arnalds) Kvöldið leið og svo varð nótt, vakti þér yfir, svafstu rótt. Kyrrði huga minn, stöðugur andardráttur þinn. Taldi nýja daginn inn. Hvert sem fer fylgirðu ennþá mér. Hugur minn er með þér, með þér. Allt gengur bara vel, dagana ekki tel, tónunum lífið fel svo vel þeir sefa. Svíf…

Moldin

Moldin (Lag og texti: Ólöf Arnalds) Fellur regn á jörðina og mig vætir gras sem grær og grær yfir. Vorið kom og vorið kom að vanda, kom með ferðaveðrið fyrir þig. Stráin stingast upp og inn undir, stilli hjartans strengi í fimmundir. Stefið gengur niður, gengur niður, frið ég finn sem fann ég ekki fyrr.…

Burt með kvótann

Burt með kvótann (Lag / texti: Rass) Burt með kvótann. Burt með kvótann. Burt með kvótann. Burt með helvítis kvótann. Það eru karlar að veiða allan fiskinn. Þeir eru allir að fá allan kvótann. Þeir vilja bara græða meiri pening. Þeir vilja græða fiskinn frá okkur hinum. Burt með kvótann. Burt með kvótann. Burt með…

Loftárás

Loftárás (Lag / texti: Rass)   Það er að koma loftárás, allir í byrgin. Já flugvélarnar koma og loftárás byrjar. Já allir hræddir verða og fara ofan í byrgin. Það er að koma loftárás, nú allir í byrgin. Þegar loftárásin byrjar, allir í byrgin. Loftárásin skelfir mjög, farið í byrgin. [af plötunni Rass – Andstaða]

Kárahnjúkar

Kárahnjúkar (Lag / texti: Rass)   Vörubílstjóri á fjallinu keyrir, sturtar möl hátt og lágt. Áttar sig á því að áin flæðir, það fóru þrír í humátt í suðurátt. Þær eru sjúkar, Kárahnjúkar. Vörubílstjóri á trukknum sínum var að keyra möl í fjöll. Komu gestir í flugvél að sunnan, þá var fjör og hlegið dátt.…

Bræður

Bræður (Lag / texti: Rass)   Það voru einu sinni bræður, þeir hétu Hansi og Gransi. Þeir áttu heima í litlu þorpi og bræður áttu sína drauma. Vildu vinna í verksmiðju og vera flottir gaurar. Vildu vinna og vildu drekka. Bræður vilja vinna úti og drekka af stúti. Fengu vinnu í verksmiðju, það var nóg…

5678

5678 (Lag / texti: Rass)   I need a doctor. I need an ambulance. Where is my doctor, por favor. I had an accident. I need an ambulance. Where is my doctor, por favor. 5678. Have a sickness. I need a doctor. Where is my doctor, por favor. I need a hospital and also ambulance.…

Óréttlæti

Óréttlæti (Lag / texti: Rass) Óréttlæti er óréttlátt. Aldrei verður það tekið í sátt. Óréttlæti það er óréttlátt. Það verður seint tekið í sátt. [af plötunni Rass – Andstaða]

Mótið

Mótið (Lag / texti: Friðrik Bjarnason / Freysteinn Gunnarsson) Léttan fót og hýrlegt hót hefur snót á gleðimót. Þegar skuggar handrið hjúpa hverfur sól í æginn djúpa. Léttan fór og hýrleg hót hefur snót á gleðimót. Enginn veit og enginn veit, oft er leit á hljóðum reit. Hér á okkar fyrstu fundum föstum reitum tryggðir…

Stebbi

Stebbi (Lag og texti: höfundur ókunnur) Er Stebbi litli fæddist, var hann fagur á að sjá. Það fundu allir þá, hvað fyrir honum lá. Og þegar þessi litli kútur kalsaði og hlóð, þá kallaði hún mamma: Stebbi, ó! Hvað getur hann Stebbi gert að því, þó hann sé sætur og geri allar stelpur vitlausar í…

Skoski dansinn

Skoski dansinn [Lag / texti: erlent lag / höfundur ókunnur] Skundum í skoska dansinn, skæran með “elegansinn”. Hæ Gunna – hæ Gunna – hæ Gunna mín. Dönsum og syngjum saman, svolítið rjóð í framan. Hæ Gunna – hæ Gunna – hæ Gunna mín. Ástin í æðum mér ólga og sjóða fer, þegar ég geysist um…

Kyndara-marsúki

Kyndara-marsúki (Lag / texti: Guðjón Matthíasson / Ólafur Þ. Ingvarsson) Þekkið þið hann Leifa kyndara sem lét ei nokkurn ganga á hlut sinn? Þó segi ég hann engan syndara, því sjálfur var hann besti vinur minn. Þótt víða um heiminn legði leiðir, frá Lófóten til Hírósíma, þá kom hann eins og áður ævintýrum skráður, hingað…

Dönsum og syngjum

Dönsum og syngjum (Lag / texti: Guðjón Matthíasson / Magnús Ólafsson) Dönsum og syngjum saman, sælleg og rjóð á kinn. Allt, sem að glæðir gaman gagntekur huga minn. Svífum í sæludraumi, seiðandi lagsins glaumi. Höldum svo heim, þegar birtir á ný, heim til mín, þar sem ég bý. Og einhvern tíma aftur við eigum stefnumót,…

Æskan skemmtir sér

Æskan skemmtir sér (Lag og texti: 12. september (Freymóður Jóhannsson)) Komdu hingað Kalli, komdu Sigga mín, Pétur, Gunnar, Palli, Petra, Sigurlín, Auður, Kristín, Anna, Óðinn, Þór og Freyr. Helga, Beta, Hanna, Hermann, Jón og Geir Nú skulum við syngja saman, syngja og dansa – tralla lalla lalla lalla. Allir hafa af því gaman, ekki að…

Ennþá er rósin rauð

Ennþá er rósin rauð (Lag / texti: erlent lag / Herdís Guðmundsdóttir) Ég horfi inn í horfna glóð, hugur minn berst til þín. Kvöldin svo kyrr og hljóð, komst þú til mín. Æskunnar rauða rós roði vanga þinn. Geislandi lokka ljós – það ljós, þér lék um kinn. Augun þín blá og blíð, blik þeirra…

Ég man

Ég man (Lag / texti: erlent lag / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Ég man litla ljóshærða snót, líka dúnmjúka hönd, lítinn tifandi fót. Ég man, bláan baðmullarkjól, band í hárinu hvítt, augna brosandi sól. Ég man, hvernig löngum að leik, þá sú litla mér hjá undi léttfætt og keik. Ég man, kossinn blíðan á kinn, kyssti…

Þar sem hjartað slær (Þjóðhátíðarlag 2012)

Þar sem hjartað slær (Þjóðhátíðarlag 2012) (Lag / texti: Halldór Gunnar Pálsson / Magnús Þór Sigmundsson) Kveikjum eldana Þar sem hjartað slær. Kveikjum eldana Þar sem hjartað slær. Sjá, Heimaey og Herjólfsdal þar sem hjörtun slá í takt við allt sem í æðunum rennur, sem á huganum brennur hér í brekkunni, þar kveikjum við eld,…

Ölfusborgir

Ölfusborgir (Lag og texti: Jenni Jóns) Í Ölfusborgum uni ég mér við yndir og lækjarnið. Og heiðin blá við himin ber í helgri kyrrð og frið. Og sjá, er blessuð sólin skín, hvað sveitin fögur er. Það er svo indælt ástin mín að una og dvelja hér. Við yndi og lækjarnið. Í Ölfusborgum uni ég…

Við fljúgum með Loftleiðum

Við fljúgum með Loftleiðum (Lag / texti: Jenni Jónsson / Gísli Indriðason) Er útþráin mannleg í brjóstunum brennur og brosa við draumalönd, og heillandi flugvél um háloftin rennur, þá hljómar frá dag og strönd: Við fljúgum með Loftleiðum fram og til baka, um fagurskreytt norðurhvel, hvar náttsólin roðar, og norðurljós vaka, en nornirnar frjósa í…

Við Breiðafjörð

Við Breiðafjörð (Lag / texti: Gunnar Vilhjálmsson / Ásgeir Hraundal) Ég baða mig í sólskini við fagran Breiðafjörð og bátnum mínum sigli nú í höfn. Mín heima bíður stúlkan sem ég þrái mest á jörð og hugsar um hvar sigli ég um dröfn. Því henni er tengd sú minning, sem hugljúfust mér er og fegurð,…

Þú og ég

Þú og ég (Lag og texti: Guðjón Matthíasson) Manstu okkar fyrsta fundinn fórum við á stefnumót um lágnætti í litla lundinn, lítill sveinn og lagleg snót. Minninguna mun ég geyma meðan hér í heimi er, og við háa hólinn heima heitt við bundumst þú og ég. [óútgefið]

Þú og ég

Þú og ég (Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Þú og ég við erum svo yfirmáta ástfangin, þó þú sért bara sextán þá er ég þó orðinn sautján síðan í haust. Þú og ég við gætum svo auðveldlega gift okkur, þó að við séum ung þá vil ég vina mín, þín gæta…

Segðu okkur meira

Segðu okkur meira (Lag / texti: erlent / Erlingur Örn Pétursson) Segðu okkur meira, við sögðum: Segðu okkur meira. Segðu okkur meira, við sögðum: segðu okkur meira. Ein saga miklast í minni, ég man þá eldgömlu daga. Mér ennþá sefur í sinni, ein svolítil raunasaga. En hana ekki má segja, ég ætla bara að þegja.…

Söngur ferjudráttarmanna á Volgu

Söngur ferjudráttarmanna á Volgu (Lag / texti: erlent lag / höfundur ókunnur) Tökum fast á, tökum fast á, nóttin dettur óðum á. Tökum fast á, tökum fast á, tíminn líður, tökum á, þrömmum, síst er leiðin enduð enn, spyrnum þungt og verum þéttir menn. Hædada, hæda, hædada, hæda. Tökum fast á, tökum fast á. [m.a.…

Siglum áfram

Siglum áfram (Lag / texti: erlent lag (Freight train) / Friðrik Guðni Þórleifsson) Viðlag Siglum áfram sjóinn á siglum áfram ströndu frá. Ég skal standa stýrið við og stefna út á særokið. Sumir elska hund og hest, hata sjóinn eins og pest. Sjálfur kaus ég mér sjómannskjör, með salt í greip og á vör. viðlag…

Vorkvæði

Vorkvæði (Lag / texti: Friðrik Bjarnason / Þorsteinn Erlingsson) Þegar flýgur fram á sjá fagra vorið bráðum, margar kveðjur Ísland á undir vængjum báðum; blóm á engi, álf við foss ætlar það að finna, þá fær hver sinn heita koss Hafnar-vina sinna. Syngdu vor, með sætum róm, syngdu um holt og móa, hvar sem lítið…

Stjenka Rasin

Stjenka Rasin (Lag / texti: erlent lag / Jón Pálsson) Norður breiða Volgu vegu, veglegt fer með þunguð skrið skipaval mót stríðum straumi: Stjenka Rasin hetjulið. Fremstur stendur frægur Rasin, faðminn opnar blíðri snót. Kærleikshátíð heldur Rasin, hlýnar sál við ástarhót. Læðist kurr um kappaskarann: “Kempan sveik vort bræðralag. Eina stund með ungmey var hann,…

Við erum ung

Við erum ung (Lag / texti: erlent lag / Ólafur Ragnarsson) Við erum ung og viljum gera margt, verkefnin næg og framundan er bjart. Lífsins við njótum við leiki, störf og söng, dægrin löng, lífsins njótum. Við erum ung með æskuþrá og þrótt. Því gleðjumst við og dönsum öll í nótt. Í ungum hjörtum sem…

Kom draumanótt

Kom draumanótt (Lag / texti: erlent lag / Jón frá Ljárskógum) Húmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys, hnígur að ægi gullið röðulblys. Vanga minn strýkur blærinn blíðri hönd og báran kveður vögguljóð við fjarðarströnd. Ég er þreyttur – ég er þreyttur, og ég þrái svefnsins fró. Kom draumanótt með fangið fullt af friði og ró.…

Tryggðareiðinn tókstu

Tryggðaeiðinn tókstu (Lag /texti: erlent lag / Guðmundur Einarsson)   Tryggðaeiðinn tókstu frá mér týndir mínum gæfusjóð, aðeins skildirðu eftir hjá mér örlaganna brunnu glóð. Allar hjartans undir þrotnar ástin köld sem hrímað gler, vona minna borgir brotnar, sem byggðir voru handa þér. Fyrir handan fjöllin háu finn ég liggja sporin þín, engilskæru augun bláu…

Anda þú skalt (úr Hárinu 1970)

Anda þú skalt (úr Hárinu 1970) (Lag / texti: erlent lag / Kristján Árnason) Halló brennisteinsbræla, blessuð kolsýringssvæla, ég finn, ég finn loft flæða um allt, djúpt inn anda þú skalt – ávallt. Blóðrás, bullandi af víni; brjósthol, fyllt níkótíni. Ég ljúfan ilm, finn leika um allt, djúpt inn þú anda skalt – ávallt. [óútgefið]

Þú álfu vorrar yngsta land

Þú álfu vorrar yngsta land (Lag / texti: Sigfús Einarsson / Hannes Hafstein)   Þú álfu vorrar yngsta land vort eigið land, vort fósturland. Sem framgjarna unglings höfuð hátt þín hefjast fjöll við ölduslátt. Þótt þjaki böl með þungum hramm þrátt fyrir allt þú skalt, þú skalt samt fram.   [m.a. á plötunni Vor í…

Þið þekkið fold

Þið þekkið fold (Lag / texti: Helgi Helgason / Jónas Hallgrímsson)   Þið þekkið fold með blíðri brá og bláum tindi fjalla og svanahljómi, silungsá og sælu blómi valla, og bröttum fossi, björtum sjá og breiðum jökulskalla: drjúpi hana blessun drottins á um daga heimsins alla.   [m.a. á plötunni Söngkvartettar: útvarpsperlur – ýmsir]

Þar sem háir hólar

Þar sem háir hólar (Lag / texti: Árni Thorsteinsson / Hannes Hafstein)   Þar sem háir hólar hálfan dalinn fylla. Lék í ljósi sólar, lærði hörpu‘ að stilla hann sem kveðja kunni kvæðin ljúfu, þýðu, skáld í muna‘ og munni mögur sveitablíðu. Rétt við háa hóla hraunastalli undir, þar sem fögur fjóla fegrar sléttar grundir,…

Yfir voru ættarlandi

Yfir voru ættarlandi (Lag / texti: Sigfús Einarsson / Steingrímur Thorsteinsson) Yfir voru ættarlandi alda faðir, skildi halt. Veit því heillir, ver það grandi, virstu‘ að leiða ráð þess allt. Ástargeislum úthell björtum yfir lands vors hæð og dal. Ljós þitt glæð í lýðsins hjörtum, ljós er aldrei slokkna skal [m.a. á plötunni Samkór Rangæinga…

Miranda

Miranda (Lag / texti: erlent lag / Þorsteinn Gíslason) Nú klæðist möttli grænum grund, nú glóir vogur, brosir sund, og allt er fullt af fuglasöng og fögur kvöldin, björt og löng. En samt, Míranda, án þín er þó ekkert vor né ljós hjá mér, því jafnvel vorinu’ uni’ ég ei, ef ertu fjarri, kæra mey.…

Þú ert mitt sólskin

Þú ert mitt sólskin (Lag / texti: erlent lag / höfundur ókunnur) Þú ert mitt sólskin, mín ástin eina, þú ert mín gleði, þótt byrgi sól. Ég má ei hug mínum lengur leyna, ó, lífs míns dís, í bláum kjól. Er veður kólna og kolin hækka í kytru minni er alltaf hlýtt. Er stríði lýkur…

Móðurást

Móðurást (Lag / texti: Possibillies / Árni Helgason) Allt er jafnslétt, ís yfir tjörnum, andi næðir kaldur á hjörnum; stjörnur dauft í snjóþoku skína, stefnunni því hægt er að týna. Tvíburar um háls móður hanga, henni verður megn um að ganga, fóta kann ei fram róa árum, frosnum særist þunn kinn af sárum. Spjarir af…

Undir bláum sólarsali

Undir bláum sólarsali (Lag / texti: þjóðlag / Eggert Ólafsson) Undir bláum sólarsali Sauðlauks upp í lygnum dali fólkið hafði af hanagali hversdagsskemmtun bænum á. Fagurt galaði fuglinn sá. Fagurt galaði fuglinn sá. Og af fleiri fugla hjali frygð um sumar stundir. Listamaðurinn lengi þar við undi. Hunangs blóm úr öllum áttum ilmi sætum lífga…

Sumri hallar

Sumri hallar (Lag / texti: þjóðlag / þjóðvísa)   Sumri hallar, hausta fer, heyri snjallir ýtar, hafa fjallahnjúkarnir húfur mjallahvítar. Girnar allar elfur skjól undir mjallar þaki, þorir varla‘ að sýna sól sig að fjallabaki. Verður svalt því veðri‘ er breytt, vina eins er geðið: þar sem allt var áður heitt er nú kalt og…

Raunakvæði

Raunakvæði (Lag / texti: þjóðlag / Stefán Ólafsson)   Ég veit eina baugalínu, af henni tendrast vann eldheit ást í brjósti mínu, allur svo ég brann, bjartleit burtu hvarf úr rann. Nú er ei hugurinn heima, því hana ei öðlast kann.   [m.a. á plötunni Karlakórinn Fóstbræður og Karlakór K.F.U.M. – 1916-1976]

Nú er vetur úr bæ

Nú er vetur úr bæ (Lag / texti: þjóðlag / Jónas Hallgrímsson)   Nú er vetur úr bæ, rann í sefgrænan sæ og þar sefur í djúpinu væra, en sumarið blítt kemur fagurt og frítt meður fjórgjafar-ljósinu skæra. Brunar fley yfir sund. Flýgur fákur um grund. Kemur fugl heim úr suðrinu heita. Nú er vetur…

Kvölda tekur, sest er sól

Kvölda tekur, sest er sól (Lag / texti: þjóðlag / þjóðvísa)   Kvölda tekur, sest er sól, sígur þoka á dalinn. Komið er fram á kvíaból, kýrnar, féð og smalinn. Senn er komið sólarlag, sést á norðurheiðum, líður á þennan dýrðardag: drottinn stýri leiðum. Senn er komið sólarlag, sést á norðurfjöllum, líður á þennan dýrðardag:…

Þú bláfjalla geimur

Þú bláfjalla geimur (Lag / texti: erlent lag / Steingrímur Thorsteinsson)   Þú bláfjalla geimur með heiðjöklahring um hásumar flý ég þér að hjarta. Ó, tak mig í faðm, minn söknuð burt ég syng um sumarkvöld við álftavatnið bjarta, um sumarkvöld við álftavatnið bjarta. Þín ásjóna, móðir, hér yfir mér skín með alskærum tárum kristalsdagga.…