Ber að ofan (1987-91)

Hluti Bers að ofan sumarið 1990

Hljómsveitin Ber að ofan (stundum ranglega nefnd Berir að ofan) var sex manna reykvísk sveit sem í upphafi var tríó stofnað árið 1987 í Árbæjarskóla. Sveitin var starfandi 1990 og keppti það árið í Músíktilraunum Tónabæjar. Meðlimir sveitarinnar voru þá Ágúst Orri Sveinsson trommuleikari, Agnar Már Magnússon hljómborðsleikari, Karl Jóhann Bridde söngvari, Óttar Guðnason bassaleikari, Pétur Valgarð Pétursson gítarleikari og Gunnar Þór Möller gítarleikari. Sveitin komst í úrslit keppninnar og lék töluvert í kjölfarið t.a.m. á skólaböllum í grunn- og framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu.

Árið eftir átti Ber að ofan lag á safnplötunni Húsið en þá höfðu orðið mannabreytingar á sveitinni, Guðmundur Pálsson (Baggalútur) var þá orðinn söngvari í stað Karls Jóhanns, Ómar Guðnason var orðinn trommuleikari og Ólafur Kristjánsson var nýr bassaleikari en Óttar hafði þá fært sig yfir á gítar í stað Péturs Valgarðs sem hafði hætt. Ríkharður Freyr [?] lék einnig með sveitinni 1991.

Sveitin hætti líkast til störfum síðsumars 1991.