Blátt áfram [1] (1987-88)

Blátt áfram1

Blátt áfram

Hljómsveitin Blátt áfram var skipuð ungum meðlimum 1987-88 og kom fyrst fram opinberlega í hljómsveitakeppninni í Húsafelli um verslunarmannahelgina 1987, hvar hún lenti í öðru sæti á eftir Nýdanskri.

Litlar upplýsingar hafa fundist um sveitina aðrar en að trommuleikari hennar færði sig á gítar þegar nýr trymbill, Ingólfur Sigurðsson (Rauðir fletir) gekk til liðs við sveitin haustið 1987.

Sá staldraði reyndar ekki lengi við í henni því að um áramótin 1987-88 höfðu meðlimir Síðan skein sól náð að plata hann yfir í sína sveit. Blátt áfram lifði ekki lengi eftir það. Nöfn annarra meðlima sveitarinnar eru ekki kunn, utan þess að Inga Guðmundsdóttir (systir Bjarkar Guðmundsdóttur) var söngkona hennarhennar og Sigvarður Ari Huldarsson gítarleikari.

Á þeim stutta tíma er sveitin starfaði komu út tvö lög með sveitinni á snældunni Snarl II: Veröldin er veimiltíta!.