Dyslexia var dauðarokkssveit starfandi í Eiðaskóla en gæti hafa verið frá Höfn í Hornafirði.
Sigurður Pálmason bassaleikari, Jón Þórðarson gítarleikari, Grétar Mar Hreggviðsson gítarleikari, Arnar Karl Ólafsson söngvari og Sigurður Rúnar Ingþórsson trommuleikari skipuðu sveitina þegar hún keppti í Músíktilraunum 1992 en sveitin komst ekki í úrslit tilraunanna.
Engar aðrar upplýsingar liggja fyrir um sögu sveitarinnar.














































