
E.T. Bandið
E.T. bandið (ET bandið) lék á öldurhúsum höfuðborgarsvæðisins og víðar á árunum 1990-95, mest þó síðari hluta tímabilsins. Um var að ræða dúett þeirra Einars Jónssonar og Torfa Ólafssonar og léku þeir og sungu á gítar og hljómborð, stundum höfðu þeir gestasöngvara meðferðis en þar má nefna þau Bjarna Arason og Önnu Vilhjálms, svo einhver séu nefnd.
E.T. bandið starfaði til 1995 en þá stofnaði Einar annan dúett í kjölfarið, E.J. bandið.