Afmælisbörn 14. febrúar 2015

Jón Ingi Valdimarsson1

Jón Ingi Valdimarsson

Í dag koma tveir tónlistarmenn við sögu Glatkistunnar sem afmælisbörn dagsins, þeir eru:

Jón Ingi Valdimarsson bassaleikari Greifanna frá Húsavík á stórafmæli en hann er fimmtugur á þessum degi. Jón Ingi hefur verið í Greifunum frá upphafi en sveitin gekk fyrst undir Special treatment nafninu.

Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari er 31 árs en hann þekkja allir. Víkingur nam í Bandaríkjunum og hér heima, lauk meistaranámi í píanóleik 2008 frá Juillard og hefur unnið fjöldann allan af verðlaunum í listgrein sinni. Hann hefur ennfremur gefið út og leikið á plötur, annast tónlistarþáttagerð í sjónvarpi og rekið eigið útgáfufyrirtæki.