Afmælisbörn 15. febrúar 2015

Bergþóra Árnadóttir2

Bergþóra Árnadóttir

Að þessu sinni eru tvö afmælisbörn:

Steinunn Bjarnadóttir (Steinka Bjarna) söng- og leikkona (f. 1923) hefði átt afmæli á þessum degi en hún lést 1994. Steinunn er þekktust í seinni tíð fyrir Stuðmanna framlag sitt en hún söng lagið Strax í dag, sem kom út á plötunni Sumar á Sýrlandi. Hún gaf sjálf út plötu þar sem Stuðmenn koma heldur betur við sögu, og náðu nokkur laganna nokkrum vinsældum, þar er t.d. að finn lagið Hunang, viltu giftast mér? sem er íslensk útgáfa á Stuðmannalaginu Honey will you marry me?  Steinunn lærði leiklist í London og bjó þar um tíma, hýsti þá fjölmarga íslenska tónlistarmenn sem áttu leið hjá.

Bergþóra Árnadóttir (1948-2007) átti einnig þennan afmælisdag, hún var þekkt vísnasöngkona og trúbador, starfaði með Vísnavinum, Graham Smith og Heimavarnarliðinu auk margra annarra. Bergþóra hóf snemma að semja lög við ljóð þekktra skálda og gaf út nokkrar plötur sem nutu vinsælda. Hún mætti miklu mótlæti oft á tíðum á lífsleiðinni, slys og önnur áföll og síðast veikindi sem drógu hana að lokum til dauða. Vinir hennar og velunnarar hafa verið duglegir við að halda minningu hennar á lofti með tónleikahaldi og plötuútgáfu á síðustu árum.