Afmælisbörn 18. febrúar 2015

Halldór Haraldsson1

Halldór Haraldsson

Afmælisbörn dagsins eru eftirfarandi:

Halldór Haraldsson píanóleikari er 78 ára. Hann nam hér heima og í London, hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, kennt á píanó og gegnt stöðu skólastjóra Tónlistarskólans í Reykjavík, gegnt ábyrgðarstörfum fyrir FÍT og önnur félagssamtök hér heima og erlendis svo fáein atriði séu tíunduð, hann hefur ennfremur hlotið fálkaorðuna og heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir störf sín. Halldór hefur einnig gefið út nokkrar plötur þar sem píanóleik hans er að finna.

Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarskríbent er 41 árs. Hann var í einhverjum hljómsveitum á yngri árum (t.d. Maunum) en er fyrst og fremst þekktur fyrir tónlistarumfjöllun sína í Morgunblaðinu frá 1999, dagskrárgerð á Rás 2 og hefur auk þess skrifað bækur um tónlist. Arnar stundar doktorsnám í tónlistarfræðum við Edinborgarháskóla.