Óður

Óður (Lag / texti: Sálin hans Jóns míns / Guðmundur Jónsson) (Þú ert snotur stelpa) (Þú ert snotur stelpa) (Byltu mér í nótt) Augun þín lostafull æpa á mig er tunga þín líður um varirnar. Stífur og stinnur ég horfi á þig er tínir þú burt af þér spjarirnar. Skuggarnir leika um skapahár er fullkominn…

Óbyggðirnar kalla

Óbyggðirnar kalla (Lag / texti: Magnús Eiríksson)   Hoppa kátur út um dyrnar, við blasir heimurinn, himinblár er bláminn, himneskur jökullinn.   Óbyggðirnar kalla og ég verð að gegna þeim. Ég veit ekki hvort eða hvernig eða hvenær ég kemst heim.   Með bergmál óbyggðanna svo bjart í höfði mér, leiður á öllu og öllum,…

Ó þú

Ó þú (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Ó þú, engin elskar eins og þú, engin brosir líkt og þú, engin grætur líkt og þú. Ó þú ert sú eina sem ég elska nú, fjarri þér hvar sem ég er ég þrái að vera nærri þér. Dagurinn líður mig dreymir um daginn er kynntumst við fyrst,…

Orginal

Orginal (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Friðrik Sturluson) Það er ekki nóg að hafa sannanir, staðreyndir. Þó þú þykist vita um hvað málið snýst fyrir víst það er allt á huldu hér og í raun og veru er ekkert svar að fá nema þetta hér. viðlag Ég er bara ég, þú ert bara þú,…

Okkar nótt

Okkar nótt (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Stefán Hilmarsson) Það er komið kvöld. Kertið er að klárast, virðist mér. Ég er ennþá hér. Liggðu áfram, losaðu’ um, lygndu aftur augunum. Ekkert liggur á. Úti er fönnin köld, frostið allt og dimmur desember. Ég er ennþá hér. Húsið sefur, himnaljós varpa bjarma’ á blómarós. Ekkert…

Og ég trúi því

Og ég trúi því (Lag / texti: erlent lag / Jónas Friðrik Guðnason) viðlag Og ég trúi því, og ég trúi því. Ég hef trúað áður og ég trúi á ný. Því má finna stað fyrst þeir segja það. Ég er fólkið og ég trúi því. Í stofnun hringdi ég heilu vikuna og ég hélt…

Oft spurði ég mömmu

Oft spurði ég mömmu (Lag / texti: erlent lag / Loftur Guðmundsson) Oft spurði ég mömmu er ung ég var: „Sér enginn fyrir hvað verða kann? Hlotnast mér fegurð, auðlegð og ást?“ Aðeins hún svara vann: „Que sera sera, það verður og fer sem fer. Hið ókomna enginn sér. Que sera, sera verður og fer…

Of góð

Of góð (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Friðrik Sturluson) Lífið kemur við kaunin, kremur næmgeðja sál. Alltaf önnur er raunin, enginn skilur þitt hjartans mál. Tilfinningin um tíma tekur af þér öll völd. Hún er hættuleg víma og hún hefur alltaf betur. Hún er of góð. Hún er of sleip/slæg. Hún er of góð,…

Nú er gaman

Nú er gaman (Lag / texti: erlent lag / Árni Sigurðsson) Ég held ég elski Stínu, samt er ég ekki viss því aðra fallegri ég sá í gær. Ég rúnta nú um bæinn og vonast hana að sjá og viti menn, brátt situr hún mér hjá. viðlag O – nú er gaman, kærastan og ég…

Nú er sumar

Nú er sumar (Lag / texti: erlent lag / Steingrímur Thorsteinsson) Nú er sumar, gleðjist gumar, gaman er í dag. Brosir veröld víða, veðurlagsins blíða, eykur yndis hag. Eykur yndis hag. Látum spretta, spori létta spræka fáka nú. Eftir sitji engi, örvar víf og drengi sumarskemmtun sú. Sumarskemmtun sú. Tíminn líður, tíminn bíður, sælan sólskinsdag.…

Nonni sjóari

Nonni sjóari (Lag / texti: erlent lag / Jónas Friðrik Guðnason) viðlag Til fjandans með kallinn, froðusnakkinn þann og fúla pípustertinn hans sem er að drepa mann. Því næst er nálgast bryggja segir Nonni litli bless og æðir þegar upp á land, aftur klár og hress. Í margri dýrri drápu þeir drengir hljóta lof sem…

Netfanginn (Ég segi það satt)

Netfanginn (Ég segi það satt)  (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Stefán Hilmarsson) Ég hitti hana í húmi nætur. Hún var víst nýkomin á fætur og var að hita te í Tokyo, ég segi það satt. Hún sagði mér frá sínum högum og sínum eftirlætislögum. Hún fílar Elvis alveg eins og ég, ég segi það…

Neistinn

Neistinn (Lag / texti: Guðmundur Jónsson) Lífið þeytir mér endalaust fram og aftur í trylltum blús, sálarfriðinn ég þægi fús. Efinn liggur sem mara á mér, tækifærin mér fljúga hjá en ég tek á mér tak, horfi fram á veg. viðlag Oh, neistann, nú finn ég neistann þjóta hratt um æðar mér, ég er til…

Nammilagið

Nammilagið (Lag / texti: Helga Jónsdóttir) Mánudagur. Ég fékk ekki tyggjó í dag, ég fékk ekki tyggjó í gær, ekki heldur hinn eða heldur hinn, heldur bara bimm-sala-bimm. Þriðjudagur. Ég fékk ekki kúlur í dag, ég fékk ekki kúlur í dag, ekki heldur hinn eða heldur hinn, heldur bara bimm-sala-bimm. Miðvikudagur. Ég fékk ekki sleikjó…

Nú gaman gaman er

Nú gaman gaman er (Lag / texti: þýskt þjóðlag / Jónas Jónasson) Nú gaman, gaman er í góðu veðri’ að leika sér og fönnin hvít og hrein og hvergi sér á stein. Ó, já, húrra, tra la Svo bind ég skíði’ á fiman fót og flýg um mó og grjót. Húrra, húrra, húrra. Og hér…

Nú er Gunna á nýju skónum

Nú er Gunna á nýju skónum (Lag / texti: erlent lag / Ragnar Jóhannesson) Nú er Gunna á nýju skónum, nú eru að koma jól. Siggi er á síðum buxum, Solla‘ á bláum kjól. Solla‘ á bláum kjól, Solla‘ á bláum kjól. Siggi er á síðum buxum, Solla‘ á bláum kjól. Mamma er enn í…

Nú árið er liðið

Nú árið er liðið (Lag / texti: erlent lag / Valdimar Briem) Nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka, nú gengin er sérhver þess gleði og þraut, það gjörvallt er runnið á eilífðar braut, en minning þess víst skal þó vaka. En hvers er að minnast og hvað er…

Nóttin var sú ágæt ein

Nóttin var sú ágæt ein (Lag / texti: Sigvaldi Kaldalóns / Einar Sigurðsson) Nóttin var sú ágæt ein, í allri veröld ljósið skein, það er nú heimsins þrautamein að þekkja’ ann ei sem bæri. Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. Í Betlehem var það barnið fætt, sem best hefur…

Nýr heimur

Nýr heimur (Lag / texti: Sálin hans Jóns míns / Stefán Hilmarsson) Göngin eru löng og þau gleypa mig með húð og hár. Ganga af mér dauðum og kreista úr mér rjómartár. Höfuðið hnykktist og leitar inná við, herpist og hamast í senn. Sannarlega þó þá er ferðin indæl og til fjár. Nýr heimur. Og…

Nú liggur vel á mér

Nú liggur vel á mér (Lag / texti: Óðinn G. Þórarinsson / Númi Þorbergsson) Stína var lítil stúlka í sveit, stækkaði óðum, blómleg og heit. Hún fór að vinna, var margt að gera, lærði að spinna, látum það vera. Svo var hún úti sumar og haust, svona var lífið, strit endalaust. Samt gat hún Stína…

Nú liggur á

Nú liggur á (Lag / texti: Jens Hansson / Stefán Hilmarsson) Það þarf að herða nokkuð róðurinn. Tryggja hróðurinn. Það gefur augaleið að þrenningin komst í þrot. Hér þarf að beita nýjum aðferðum. Já, öðrum meðölum. Göngum frá öllum lausu endunum eins og skot. Nú liggur á. Það vofir yfir vá. Þau mega ekki ná…

Nótt

Nótt (Lag / texti Rúnar Þór Pétursson / Pétur Geir Helgason) Nóttin nálgast furðu fljótt, fald sinn yfir breiðir. Norðurljósin dansa dátt, duldar himins leiðir. Í næturhúmi er notalegt að njóta vel og lengi, ekki er þá amalegt að efla ástargengi. Dimmar nætur dulúðar drauma láta rætast, margar stundir munúðar, menn og konur kætast. Með…

Miðbæjarhjartað

Miðbæjarhjartað (Lag / texti: Rúnar Þór Pétursson / Heimir Már Pétursson) Heitur miðbær af mergðarsýki, móðins ilmi, andlegri fátækt, á inn kaffihúsum í skötulíki skáldin orðlaus í málrækt. Strákar í kjólum súrlega brosa, skældir í framan af beiskju, opnir og bældir Bubbarnir glotta, svo bí á svipinn en litlir í hjarta. En linsan góða frá…

Mærin

Mærin (Lag / texti: Gildran / Þórir Kristinsson) Meyjan hrein, sér þú til mín. Alltaf ein, bænin ein ber mig til þín. Meyjan hrein. Faðir vor, sér þú til mín. Engin orð, himna storð. Tak mig til þín. Faðir vor. Bregður birtu, mærin sofnar. Dofnar dagur burtu, daufri varpar glóð. Kristur kær, kom þú til…

Mömmustrákur

Mömmustrákur (Lag / texti: Hörður Torfason) Þú hefur æft þig allan daginn. Nú ertu tilbúinn í slaginn. Fjögra kvölda helgarlota bíður þín og liðið sem þú hleypir inn má gæta sín. Ef það gerir ekki eins og þú segir. Þú getur kreist og lamið hvern sem er, ef það hentar þér. Lögreglan samþykkir og segir…

Minkurinn í hænsnakofanum

Minkurinn í hænsnakofanum (Lag / texti: erlent þjóðlag / Ómar Ragnarsson) Það var einu sinni bóndi sem að átti hænsnabú og ær og hest og kött og gæs og líka eina kú. En eina dimma vetrarnótt þau sváfu‘ öll sætt og rótt er svartur grimmur minkur læddist þangað ofurhljótt. Hænurnar æptu gugugú. Haninn galaði guggulugú.…

Móðir

Móðir (Lag / texti: Egó / Bubbi Morthens) Móðir, hvar er barnið þitt svona seint um kvöld? Móðir, hvar er yndið þitt, þokan er svo köld. Þokan sýnir hryllingsmynd, þvöl er stúlkuhönd. Út úr þokunni líður kynjamynd með egghvasst járn. Ópið inni í þokunni til jarðar féll þar fljótt. Starandi augu, skældur munnur og blóðið…

Með vottorð í leikfimi

Með vottorð í leikfimi (Lag / texti: Bjartmar Guðlaugsson) Vorið kom með væntingar en sumarið með svör. Um haustið sáust kettlingar með lóuglott á vör. Ég var þarna staddur og stóð mig ekki í náminu. Bærinn minn var blankur og blíðan stundum köld. Flestir voru fátækir en sumir höfðu völd. Eyjólfur rak mig bara‘ út…

Með vaxandi þrá

Með vaxandi þrá (Lag / texti: Geirmundur Valtýsson / Hjálmar Jónsson) Viltu nú vina mín kæra, vaka með mér í nótt, gleðina góða og tæra getum við eignast svo fljótt, komum og finnum að fjörið er fullkomið hér. Komdu þá, kæri vinur, kvöldið er ungt og nýtt. Þú nötrar sem normansþinur en nú verður bjart…

Marsbúa cha cha cha

Marsbúa cha cha cha (Lag / texti: Sigurður Jónsson) Marsbúarnir þeir lentu í gær og komu úr diski með ljósin skær. Þeir reyndu að kenna mér smá rokk og ska en það besta var samt cha cha cha. Þeir eru gulir með hvítar tær og kunna dansana frá því í gær. Þeir elska perur og…

Mér um hug og hjarta nú

Mér um hug og hjarta nú (Lag / texti: erlent lag / Steingrímur Thorsteinsson) Mér um hug og hjarta nú, hljómar sætir líða. Óma vorljóð, óma þú, út um grundir víða. Hljóma þar við hús þú sér, hýrleg blómin skína. Fríðri rós, er fyrir ber, færðu kveðju mína. [m.a. á plötunni Kópavogur: Vagga börnum og…

Mér er mál að pissa

Mér er mál að pissa (Lag / texti: erlent lag / höfundur ókunnur) Mér er mál að pissa, elsku mamma mín, flýttu þér að koma með koppinn inn til mín. Mér er mál að pissa, elsku mamma mín, flýttu þér að koma með koppinn inn til mín. Flýtt’ þér, flýtt’ þér, annars kemur það, elsku…

Meistari Jakob

Meistari Jakob (Lag / texti: erlent lag / höfundur ókunnur) Meistari Jakob, meistari Jakob, sefur þú, sefur þú? Hvað slær klukkan, hvað slær klukkan? Hún slær þrjú, hún slær þrjú.

Máninn fullur

Máninn fullur (Lag / texti: erlent lag / Jón Óskar) Máninn fullur fer um geiminn fagrar langar nætur. Er hann kannski‘ að hæða heiminn hrjáðan sér við fætur? Fullur oft hann er, það er ekki fallegt, ónei, það er ljótt að flækjast hér og flækjast þar á fyllerí um nætur. Stjáni fullur fer um stræti,…

Mamma segir

Mamma segir (Lag / texti: höfundur ókunnur) Mamma segir; komdu inn, það er svo mikil rigningin. Pabbi segir: farðu út að passa lítinn labbakút. Amma segir; komdu inn að borða hafragrautinn þinn. Afi segir: farðu út að kaupa nýjan vasaklút.

Malakoff

Malakoff (Lag / texti: þjóðlag / Björn M. Ólsen) Þó deyi aðrir dánumenn, loff, Malakoff, hann Þórður gamli þraukar enn. viðlag Loff, Malakoff, Mala, lifir enn hann Malakoff þótt læknar vilji flensa‘ í Malakoff, koff, koff, þá lifir Malakoff, þá lifir Malakoff. Hann drekkur alltaf eins og svín, loff, Malakoff, og aldrei nema brennivín. viðlag…

Maístjarnan

Maístjarnan Lag / texti: Jón Ásgeirsson / Halldór Laxness) Ó hve létt er þitt skóhljóð, ó hve lengi ég beið þín, það er vorhret á glugga, napur vindur sem hvín. En ég veit eina stjörnu, eina stjörnu sem skín og nú loks ertu komin, þú ert komin til mín. Það eru erfiðir tímar, það er…

Maðurinn með hattinn

Maðurinn með hattinn (Lag / texti: erlent lag / ókunnur höfundur) Maðurinn með hattinn stendur upp við staur, borgar ekki skattinn því hann á engan aur. Hausinn ofan í maga, maginn ofan í skó, reima síðan fyrir og henda’onum út í sjó. [m.a. á plötunni Megas – Nú er ég klæddur og kominn á ról]

Minning um mann

Minning um mann (Lag / texti: Gylfi Ægisson) Nú ætla ég að syngja ykkur lítið fallegt ljóð um ljúfan dreng sem fallinn er nú frá. Um dreng sem átti sorgir en ávallt samt þó stóð sperrtur þó að sitthvað gengi á. Í kofaskrifli bjó hann sem lítinn veitti yl og andvaka á nóttum oft hann…

Minni kvenna

Minni kvenna (Lag / texti: erlent lag / Matthías Jochumsson) Fósturlandsins freyja, fagra vanadís, móðir, kona, meyja meðtak lof og prís. Blessað sé þitt blíða, bros og gullið tár. Þú ert lands og lýða ljós í þúsund ár. [m.a. á plötunni Pálmi Gunnarsson og Silfurkórinn – Á harða harða spretti]

Lítil og saklaus

Lítil og saklaus (Lag / texti: Hörður Torfason) Lítil og saklaus, fimm ára gömul, leikur sér ein í sandkassa. Að baka kökur úr sandi og blómum og dúkkuna sína að passa. Hún brosir til ókunna mannsins sem gefur sælgæti. „Komdu með, ég á meira”, segir hann titrandi. “Komdu með, ég á meira”, og hún eltir…

Lofsöngur

Lofsöngur (Lag / texti: Sveinbjörn Sveinbjörnsson / Matthías Jochumsson) Ó, guð vors lands, ó lands vors guð, vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn. Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans, þínir herskarar, tímanna safn. Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár og þúsund ár dagur ei meir. Eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár sem tilbiður…

Leit

Leit (Lag / texti: Rúnar Þór Pétursson / Þorsteinn Magnússon) Með lokuð augun ég löngum stari og leita að hinu eina svari, með luktum munni spurninga spyr. Með lokuð eyru ég ligg og hlera og langar að vita hvað ber að gera við lífið handan við dauðans dyr. Er þetta kannski allt saman blekking og…

Leiðtogarnir

Leiðtogarnir (Lag / texti: Gildran / Þórir Kristinsson) Svífa á milli skýja, svika fuglar. Svartir englar af illum eldsins krafti knýja. Kaldir vindar og kvikir djöflar hatri heimum vígja. Vígamenn, nú er stjarnan rauð, aftur enn er vonin dauð. Vígamenn farnir heim. Þið svikuð okkar þjóð og heima alla. Brátt mun renna blóð. Þið af…

Lög og regla

Lög og regla (Lag / texti: Bubbi Morthens) Hvers vegna eru lög og regla, til að fela hitt og þetta? Blóðug spor og handjárn smella, skýrslur segja að hann var alltaf að detta. Þeir börðu hann í bílnum með kylfum og hnúum, hæddu hann og svívirtu með tungum hrjúfum. Ekkert sást nema lítið mar, þetta…

Lýður

Lýður (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Friðrik Sturluson) Þetta líf manns er leit að engu. Að lokum enda allir alveg eins, sama hvert eða hvort þeir gengu. Og hvað, var ferðin ekki þá til neins? Og er það furða þó við týnum áttum? En Lýður er hér, þig leiðir um eyðisand. Og lýðurinn fer…

Luktar-Gvendur

Luktar-Gvendur (Lag / texti: erlent lag / Eiríkur K. Eiríksson) Hann veitti birtu á báðar hendur um bæinn sérhvert kvöld, hann Luktar-Gvendur á liðinni öld. Af gráum hærum glöggt var kenndur við glampa af ljósa fjöld, hann Luktar-Gvendur á liðinni öld. Hann heyrðist ganga hægt og hljótt um hverja götu fram á nótt, hann hjartasárin…

Lóan er komin

Lóan er komin (Lag / text: erlent lag / Páll Ólafsson) Lóan er komin að kveða burt snjóinn, að kveða burt leiðindin, það getur hún. Hún hefur sagt mér að senn komi spóinn, sólskin í dali og blómstur í tún. Hún hefur sagt mér til syndanna minna, ég sofi of mikið og vinni ekki hót.…

Lonníetturnar

Lonníetturnar (Lag / texti: höfundur ókunnur / Ingimar Jóhannesson og Bjarni Jónsson) Ég lonníetturnar lét á nefið svo lesið gæti ég frá þér bréfið. Ég las það oft og mér leiddist aldrei og lifað gæti ég ei án þín. Tra la la la la la ljúfa Tra la la la la la ljúfa Ég las…

Litirnir

Litirnir (Lag / texti: Gunnar N. Jensen / Örn Snorrason) Grænt, grænt, grænt er grasið út’ í haga, grænt, grænt, grænt er græna pilsið mitt. Allt sem er grænt, grænt, finnst mér vera fallegt fyrir vin minn litla Jón á Grund. Gul, gul, gul er góða appelsínan, gul, gul, gul er gamla húfan mín. Allt…