Hljómsveitin Bandormarnir kom úr Kópavogi og tók þátt í Músíktilraunum Tónabæjar 1987.
Meðlimir sveitarinnar voru Haraldur Gunnlaugsson gítarleikari, Pétur Jensen bassaleikari, Sævar Örn Björgvinsson trommuleikari, Sigurður Jónsson söngvari og hljómborðsleikari og Bent Marinósson gítarleikari.
Sveitin komst ekki í úrslit tilraunanna og ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um hana.














































