Grenj (1979-81)

Garðbæska hljómsveitin Grenj varð til í þeirri pönk- og nýbylgjuvakningu sem varð hér á landi í kringum 1980 og var sveitin stofnuð hugsanlega veturnn 1979-80. Meðlimir hennar voru Bergsteinn Björgúlfsson trommuleikari (síðar kvikmyndagerðarmaður), Ágúst Karlsson gítarleikari, Hjalti Sigurðsson bassaleikari og Steingrímur Dúi Másson söngvari (síðar kvikmyndagerðarmaður).

Grenj var ein þeirra hljómsveita sem kom fram á ýmsum tónleikum á vegum N.E.F.S. í Félagsstofnun stúdenta (sem þá var vinsæll tónleikastaður) og víðar haustið 1981 og lék frumsamið efni, sveitin lagði fljótlega upp laupana eftir að Bergsteinn hætti í henni til að einbeita sér að Jonee Jonee.