Svefnpurkur (1983-84)

engin mynd tiltækHljómsveitin Svefnpur[r]kur starfaði 1983 og 84, tók þátt í Músíktilraunum haustið 1983 en komst ekki í úrslit. Sagan segir að nafnið hafi komið til sem eins konar skírskotun til Purrks Pillnikks.

Upplýsingar um meðlimi sveitarinnar sem munu hafa verið 12 og 13 ára gamlir nemendur í Vogaskóla, eru af skornum skammti en fyrir liggur að Halldór Halldórsson og Flemming Þór Hólm voru í henni sem og bassaleikari að nafni Ingólfur [?]. Einnig herma heimildir að Halldór Gylfason leikari (Geirfuglarnir o.fl.) og Gunnar Hilmarsson (Sycamore tree) hafi verið í sveitinni en óskað er eftir frekari upplýsingum um þessa sveit.