Te fyrir tvo (1982-83)

Te fyrir tvo

Hljómsveitin Te fyrir tvo (Tea for two / T42 / Tea 4-2) var starfrækt í Kópavoginum á árunum 1982-83 og þótti spila pönk í anda Purrks Pillnikk og Jonee Jonee, sem þá voru upp á sitt besta. Lög sveitarinnar voru stutt og án viðlaga og t.d. mun stysta lag hennar hafa verið 38 sekúndur en það lengst um ein og hálf mínúta að lengd.

Sveitin sem var stofnuð vorið 1982 tók þátt í fyrstu Músíktilraunum Tónabæjar og SATT þá um haustið en komst ekki í úrslit. Sveitin hlaut þó töluverða athygli, hafði sigrað í Hæfileikakeppni Kópavogs 1982 og spilaði í kjölfarið m.a. í Stundinni okkar í Ríkissjónvarpinu en meðlimir hennar voru í yngri kantinum. Te fyrir tvo var meðal fjölmargra sveita sem léku á maraþontónleikum SATT sem haldnir voru í desember en hún mun hafa verið sú sem spilaði þar lengst allra.

Upphaflegir meðlimir sveitarinnar voru Bragi Valgeirsson söngvari, Ásgeir Pálsson söngvari, Trausti Jónsson trommuleikari og Bjarni Sigurbjörnsson bassaleikari en Kristján Hallur Leifsson tók við af þeim síðast talda fljótlega. Í desember hætti Trausti trommuleikari og Pétur Jónsson leysti hann af. Enn aðrar breytingar urðu á sveitinni vorið 1983 þegar Ásgeir söngvari yfirgaf sveitina en Aðalsteinn Bjarnþórsson gítarleikari kom í hans stað.

Sveitin starfaði til áramótanna 1983-84.