
Gylfi Ægisson
Afmælisbörnin eru ekki af verri endanum í dag:
Gylfi (Viðar) Ægisson söngvari, gítarleikari, sprellari, söngleikjahöfundur, útgefandi, laga- og textasmiður er 68 ára í dag, hann hefur mest starfað sem sólólistamaður en hefur einnig unnið með GRM, Áhöfninni á Halastjörnunni, auk annarra.
Kormákur Geirharðsson verslunarmaður, kráreigandi og fyrrum trommuleikari sveita eins og Q4U, Langa Sela og skugganna, Hringja, Ikarusar, KK-bands og Oxzmá svo fáeinar séu upp taldar, er 51 árs.
Einnig hefði Steinþór Stefánsson bassaleikari (Fræbbblarnir, Q4U, Parror, Snillingarnir, Akureyrar-útlagarnir o.m.fl.) orðið 53 ára á þessum degi en hann lést á sviplegan hátt 1988.














































