
Einar Þorgrímsson – Dýr merkurinnar: söngur dýranna
Út er komin barnaplatan Dýr merkurinnar: Söngur dýranna með lögum eftir Einar Þorgrímsson en hún er framhald plötunnar Afríka: Söngur dýranna, sem út kom í fyrra.
Dýr merkurinnar hefur að geyma sögu sem er fléttuð tónlist eftir Einar en hann var kunnur barnabókahöfundur á árum áður, gaf m.a. annars út bækurnar Leynihellirinn og Myrka náman. Einar er sjálfur sögumaður á Dýrum merkurinnar og syngur nokkur laganna en aðrir söngvarar eru Hjalti Þorkelsson, Lára Sveinsdóttir og Gísli Magnússon (Gímaldin) sem jafnframt sér um hljóðfæraleik á plötunni.
Einar gefur plötuna sjálfur út.














































