Afmælisbörn 24. nóvember 2014

Eyþór Arnalds

Eyþór Arnalds

Nokkrir tónlistarmenn eiga afmæli í dag:

Eyþór Arnalds söngvari og sellóleikari Todmobile á stórafmæli dagsins en hann er fimmtugur. Hann er líkast til þekktastur fyrir veru sína í Todmobile sem naut gríðarlegra vinsælda á sínum tíma en hann starfrækti einnig dúettinn Bong. Áður hafði hann verið í sveitum eins og Kolossus-band og Tappa tíkarrassi. Eyþór hefur einnig unnið við kvikmyndatónlist, stýrt upptökum og sungið barnalög. Hann hefur í seinni tíð snúið sér meira að stjórnmálum en tónlist.

Sigurdór Sigurdórsson söngvari er 76 ára, hann söng með ýmsum danshljómsveitum á sínum tíma s.s. hljómsveitum Svavars Gests og Eyþórs Þorlákssonar. Hann er þó þekktastur fyrir flutning sinn á Þórsmerkurljóði (María María).

Eggert Gíslason í Maus er 38 ára. Hann var bassaleikari í sveitinni, sem sigraði Músíktilraunir 1994.

Einnig hefði Einar Kristjánsson óperusöngvari (f. 1910) átt afmæli á þessum degi en hann lést 1966. Einar sem var tenór starfaði allan sinn söngferil erlendis, mest í Danmörku og Þýskalandi og víst er að ef ekki hefði komið til heimsstyrjaldarinnar síðari hefði hann orðið stærra nafn. Hann söng inn á fjölmargar 78 snúninga plötur.