
N1+
N1+ (Enn einn plús) var hljómsveit sem herjaði á sveitaballamarkaðinn 1994.
Meðlimir þessarar sveitar voru Sigríður Beinteinsdóttir söngkona, Guðmundur Jónsson gítarleikari, Friðrik Karlsson gítarleikari, Þórður Guðmundsson bassaleikari og Halldór Gunnlaugur Hauksson trommuleikari. Hljómsveitin hafði mánuðina á undan starfað á Hótel Íslandi (frá áramótum) undir nafninu Hljómsveit Siggu Beinteins og þá einnig haft hljómborðsleikarann Eyþór Gunnarsson innanborðs en þegar því verkefni lauk skipti sveitin um nafn.
N1+ átti tvö lög á safnplötunni Já takk, sem kom út á vegum Japis sumarið 1994, og naut sveitin töluverðra vinsælda.














































