Grænkandi dalur

Grænkandi dalur (Lag / texti: erlent lag / Sveinn Bjarman) Grænkandi dalur góði, gleði mín býr hjá þér. Þar á ég það í sjóði sem þekkast flestum er. Blæs mér um vanga blærinn þinn, blessaður æskuvinurinn. Grænkandi dalur góði, gleði mín býr hjá þér. Við skulum syngja saman, syngdu mér lögin þín. Guð minn, hve…

Gunnar póstur

Gunnar póstur (Lag / texti: erlent lag (The ballad of Davy Crocket) / Loftur Guðmundsson) Hvellt er á Bröttukleif hornið þeytt, heiðin að baki – og Sörli fetar greitt, bóndi og hjú kannast hljóm þann við, í hlaðið ríður garpur eftir stundarbið. Gunnar – Gunnar póstur, garpur á dökkum jó. Koffortahestarnir í langri lest léttara…

Lóa litla á Brú

Lóa litla á Brú (Lag / texti: erlent lag (Wan‘t you wear my ring) / Jón Sigurðsson) Lóa litla á Brú, hún var laglegt fljóð, svo ung og glöð og æskurjóð, vildi fá sér vænan mann og vera alltaf svo blíð og góð við hann. Og eitt sumarkvöld ók hann Sveinn í hlað á litlum…

Mærin frá Mexíkó

Mærin frá Mexíkó (Lag / texti: erlent lag / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Eitt sinn kom til mín yngismær með augun brún sem ljómuðu blíð og skær. Ég gerðist bráður og bað um hönd, og biddu fyrir þér, mér héldu engin bönd. Ég var ungur þá og hýr á brá, en ekki féll henni við mig…

Sólskinsvalsinn

Sólskinsvalsinn (Lag / texti: erlent lag (Familievalsen) / Steinn Steinarr) Sólin ljómar, söngvar hljóma. Í dag berst gleðinnar orð, berast gleðinnar orð yfir gróandi storð. Ástir mætast, óskir rætast í vorsins glitfagra glans, það er gleði lífsins: söngur og dans. Ég vil dansa og dansa í kvöld, dansa’ og syngja’ í heila öld. Æskan verður…

Fræðsluerindi fyrir kaupfélagskonur

Fræðsluerindi fyrir kaupfélagskonur (Lag / texti: Sigfús Halldórsson (Játning) / Theódór Einarsson) Þið birtust mér í draumi um bjarta sumarnótt, svo búralegar, sællegar og kátar. Í Bragakaffi hafið þið kraft og kjarna sótt, og kaupfélagið líka af ykkur státar. Þið hafið líka allflestar treyst hin helgu heit, að halda ekki fram hjá því í laumi.…

Dísir vorsins

Dísir vorsins (Lag og texti: Bjarki Árnason) Bráðum anda vorsins dísir, djúpt og rótt, dagarnir þeir lengjast, nóttin flýr. Lofgjörð syngja fuglarnir af ljóðagnótt, loftsins ilmur seyðir, hreinn og nýr. Höfuð hneigja blómin móti blíðri sól, blundar silfurdögg á gleym-mér-ei. Tilfinningar allar þær sem ástin ól eiga griðastað hjá sumarþey. Þá skulum við koma út…

Brosin

Brosin (Lag / texti: erlent lag (Smiles) / Kristín M. J. Björnsson) Kæra, hver ég finn hví þig elskar hugur minn, að sér dregur yndislegur innri maður þinn. Kæra, ég sé að ástbros hvert er gafstu, það breytti’ í gleði beiskjugleði, bjart og óþvingað. Brosin hlý þau búa’ oss gæfu, brosin ungu vekja þrá. Kærleiksbrosin…

Ég ann þér vina

Ég ann þér vina (Lag / texti: erlent lag (I love you truly) / Kristín M. J. Björnsson) Ég anna þér vina, ann þér heitt. Lífið er sælu og sorg fær veitt, verður sem draumur, er veit ég þig nær, því ég ann þér vina, vinan kær. [óútgefið]

Tvímenning ástaraugans mér drekk

Tvímenning ástaraugans mér drekk (Lag / texti: erlent lag (Drink to me only with thine eyes) / Kristín M. J. Björnsson) Tvímenning ástaraugans mér drekk, mitt auga þér hollustu sver, leggirðu koss á bikarsins barm ég bið ekki’ um vína handa mér. Sál mína þyrstir, það veit guð, hún þráir himneska veig. Þinn ástar drykk,…

Seg þú mér ævintýr

Seg þú mér ævintýr (Lag / texti: erlent lag (Tell me the tales…) / Kristín M. J. Björnsson) Seg þú mér ævintýr, sömu og fyr, allt eins og fyrr, allt eins og fyrr. Syng mig í indælan sönglaga byr, allt eins og fyrr, eins og fyrr. Síðan þú komst þá er sorgin mín frá, seg…

Við alein, ég og þú

Við alein, ég og þú  (Lag / texti: erlent lag (Let the rest of the world go bye) / Kristín M. J. Björnsson) Við alein, ég og þú, mín elskan blíð og trú, við yfirgefum allt og leggjum upp í leit, að unaðs reit, sem einn guð veit um í kyrri friðarsveit. Við finnum græna…

Leiftra leiftra stjarna smá

Leiftra leiftra stjarna smá (Lag / texti: erlent lag (Twinkle twinkle little star) / ókunnur höfundur) Leiftra, leiftra stjarna smá, stari’ ég hljóður log þitt á, hátt á lofti, laus við ský, líkt og demant geimnum í. Ferðalangur þakkar þér þegar blys þitt geisla fer, villast myndi’ hann víst af leið værirðu’ ei svo björt…

Minning

Minning (Lag / texti: Markús Kristjánsson / Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Þú varst minn vetrareldur. Þú varst mín hvíta lilja, bæn af mínum bænum og brot af mínum vilja. Við elskuðum hvort annað en urðum þó að skilja. Ég geymi gjafir þínar sem gamla helgidóma. Af orðum þínum öllum var ilmur víns og blóma. Af…

Vorgyðjan kemur

Vorgyðjan kemur (Lag / texti: Árni Thorsteinsson / Guðmundur Guðmundsson) Vona minna bjarmi á barmi þér ljómar, ber mig upp til skýja, þar gígja þín hljómar. Sólarhafs við ósa, mín ljósa, þú lifir, leiftur himins titra og glitra þér yfir. Ó, ég varpa tötrum og fjötrum ég fleygi: Finn að nálæg ertu, þó sértu hér…

Það fer ekki eftir því

Það fer ekki eftir því (Lag / texti: Otis Reding / Sveinn Guðjónsson) Ef þér leiðist einni að vera veit ég hvað við því þú skalt gera. Vertu ekki hrædd og komdu hér, ekki þig sakar að vera hjá mér. Ég reyni að gera allt til hæfis þér, það betra er. Einmana ég sit hér…

Andvaka

Andvaka (Lag / texti: Arnar Sigurbjörnsson og Karl J. Sighvatsson / Þorsteinn Eggertsson) Hvert sinn er ég hugsa um þig, hitastraum finn ég streyma um mig. Hjartað sleppir slagi úr, ég sofið fæ ei dúr. Ég bara ligg og læt mig sjá lífsglaða framtíð okkar hjá, lítil börn að leika sér, lítið húsið okkar er.…

La-li-la

La-li-la (Lag / texti: erlent lag (Ay, ay,ay) / Freysteinn Gunnarsson) Nú andar hinn blíði blær, la-li-la, hann ber mér þinn óð, er rökkvar. Hann leikur sér, ljúfa mær, la-li-la, við lokkanna flóðið dökkva. Þín vör er rauðari en rósin og augun ljúfari en ljósin, og blærinn, hann hvíslar hljótt að þér, la-li-la: Við hittumst…

Morgunsöngur

Morgunsöngur (Lag / texti: erlent lag (My old Kentucky home) / Jón frá Ljárskógum) Hið unga vor yfir austurfjöllum skín, það ilmar og hljómar í blæ. Til fjallsins liggja nú fótspor mín og þín, meðan fólkið sefur enn í bæ. Við göngum hljótt, því við hlýðum á þann söng, sem hljómar í blænum svo kátt,…

Santa Lucia

Santa Lucia (Lag / texti: erlent lag / Jón frá Ljárskógum) Leiftrandi geislaflóð glitrar í öldum, brotnar í björtum bylgnanna földum. Hljómar við Hulduklett hafmeyjargígja: Santa Lucia, Santa Lucia. Hátt svífur bátur minn, hraðar og hraðar. Haföldur kveða ljóðin sína glaðar. Hlæ ég við sumri’ og sól, sorgirnar flýja: Santa Lucia, Santa Lucia. Brunaðu bátur…

Stína

Stína (Lag / texti: erlent lag (Dalakofinn) / Rósberg G. Snædal) Vertu hjá mér Stína, meðan stjörnur allar blika og stormar kaldir næða um dökkan furuskóg. Af ástarsöngvum hljóma skal öll hin næsta vika og inn í dalinn flytjum við, þar pabbi gamli bjó. Það glotta litlir fossar og bunur brosa í gjótum, og bærilegt…

Heimþrá [2]

Heimþrá (Lag / texti: erlent lag / Jóhannes úr Kötlum) Ég er einn, ég er einn, sál mín allslaus og hljóð. Langt frá upprunans æð þjáist eirðarlaus blóð. Hvar er vængur þinn, vor? Kannski verð ég of seinn, kannski dey ég í dag, kannski dey ég hér einn. Ég vil heim, ég vil heim yfir…

Sjómannavísa [2]

Sjómannavísa [2] (Lag / texti: Jón Þorkelsson / Hólmfríður Jónsdóttir) Kvöldið er fagurt og brosmilt á brá, báturinn vaggar sér létt öldunum á. Glöð verður sigling um sólroðna dröfn, sælan þó meiri er kemst ég í höfn. Hafmey úr djúpinu mér brosir við blítt, baðar í kvöldroða gullhárið sítt. Um hana ég skeyti ei hót,…

Farmaður hugsar heim

Farmaður hugsar heim (Lag / texti: Þórunn Franz / Árelíus Níelsson) Er hafskipið svífur um sólgullið haf og sindrar um himininn gullskýjatraf, þá flýg ég á hugvængjum heim til þín mær, því huganum ertu svo kær. Þú situr við rúmið og ruggar svo þýtt, róshvítar brár strýkur þú blítt, en dóttirin bendir með hjúfrandi hönd,…

Nótt á Akureyri

Nótt á Akureyri (Lag / texti: erlent lag / Ómar Ragnarsson) Þar var um nótt á Akureyri, að ég sá þig, ó fagra mær. Og jafnvel enn þann dag í dag í huga heyri ég hlátur þinn, sem ómar skær. Miðnætursól dumbrauð sem dreyri, dreifði eldi um fjöll og sæ. Já, þá var dýrð á…

Ég man það vel

Ég man það vel (Lag / texti: erlent lag / Jón Sigurðsson) Ég man það vel er mættumst fyrsta sinn, ég man hve blærinn strauk um heita kinn. Ég mætti þér í maí í sunnan vindi og mér fannst blómin hafa fengið mál, og kveða okkur ljóð um ást og yndi þá ást, sem kvikna…

Er bjarkirnar kveða

Er bjarkirnar kveða (Lag / texti: erlent lag (Där björkarna susa sin milda sommarsång) / Ólafur Briem) Er bjarkirnar kveða í laufgum skógarlund og lindirnar hjala kringum bæinn, þá höldum við tvö okkar hátíðarstund og hverfum í bjartan sumardaginn. Er bjarkirnar kveða í kyrrum sumarblæ, með kærleik og tryggð við þangað höldum. Þar ætlum við…

Litla ljúfa

Litla ljúfa (Lag / texti: erlent lag / Jón frá Ljárskógum) Komdu litla ljúfa, við skulum dansa þar til dagur skín, við skulum drekka lífsins guðavín aðeins eina nótt. Litla, ljósa dúfa, við skulum svífa himinsælu veg á vængjum söngs og ljóða, þú og ég, aðeins eina nótt. Við þinna augna eld er gott að…

Heim til fjalla

Heim til fjalla (Lag / texti: Jónas Pálsson / Guðmundur Guðmundsson) Heim til fjalla, Þar und háum hamrasölum heiðblá fjólan grær í dölum, fossar duna, lítil lóa ljóð sín kveður út um móa: ungur fyrst þar sá ég sól sunnan undir grænum hól. Heim til fjalla, þar sem dísir dansa’ um nætur, daggartárum himinn grætur,…

Heim, heim

Heim, heim (Lag / texti: erlent lag / Hulda (Unnur Benediktsdóttir Bjarklind)) Þótt leið liggi um borgir með ljómandi skraut, kýs heimkynnið hjartað og hvers er þar naut: sem himinkyrrð helgað allt hugljúft þar var þótt farið sé fjarri, það finnst aðeins þar. Heim, heim – hve ljúfan heim. Ei átthögum líkist neitt annað í…

Söngur sáðmannsins

Söngur sáðmannsins (Lag / texti: Friðrik Bjarnason / Bjarni Ásgeirsson) Ef ég mætti yrkja, yrkja vildi ég jörð. Sveit er sáðmanns kirkja, sáning bænargjörð. Vorsins söngvaseiður sálmalögin hans. Blómgar akurbreiður blessun skaparans. Musterisins múra marka reginfjöll. Glitveg gróðurskúra geislar skreyta höll. Gólf hins græna vallar grænu flosi prýtt. Hvelfing glæstrar hallar heiðið blátt og vítt.…

Móðurást

Móðurást (Lag / texti: Atli Heimir Sveinsson / Jónas Hallgrímsson) Fýkur yfir hæðir og frostkaldan mel, í fjallinu dunar því komið er él, snjóskýin þjóta svo ótt og ótt, auganu hverfur um heldimma nótt vegur á klakanum kalda. Hver er hin grátna sem gengur um hjarn, götunnar leitar og sofandi barn hylur í faðmi og…

Nunnan

Nunnan (Lag / texti: erlent lag (Dominique) / Herdís Guðmundsdóttir) Ég vissi að þú myndir reyna að koma og kveðja mig. Ég kveð þig strax því enginn hér má vita neitt um þig. En bráðum þegar frá mér siglir burtu skipið þitt, þá brestur hjarta mitt. Því án þín getur lífið hér mér enga gleði…

Geimfarið

Geimfarið (Lag og texti: Jenni Jónsson) Við ferðumst með geimfari frjálsa um braut. Við förum með dynjandi gný og óðar er horfið vort ættjarðarskaut við óskum að koma á ný. Við vitum að leiðin og löng og ströng og lífið að veði, ha – ha. Hið langþráða takmark að lenda á tunglinu, lifa og sigra,…

Brúðkaupið

Brúðkaupið (Lag / texti: erlent lag / Árelíus Níelsson) Í fögrum draumi fyrst ég sá þig. Í fögrum draumi mun ég þrá þig. Brosir þú bjartara en sólin, brúðkaupið höldum við um jólin. Kirkjan hún ljómar þá í ljósum, ljúft er að skreyta þig með rósum. Ómþýðar englaraddir syngja. Ave María. Ó, ég elska þig,…

Mamma mín

Mamma mín (Lag og texti: Jenni Jónsson) Ég man það elsku mamma mín, hve mild var höndin þín. Að koma upp í kjöltu þér var kærust óskin mín. Þá söngst þú við mig lítið lag, þín ljúf var rödd og vær. Ó, elsku góða mamma mín, þín minning er svo kær. Ég sofnaði við sönginn…

Hvert er farið blómið blátt?

Hvert er farið blómið blátt? (Lag / texti: erlent lag / Valgeir Sigurðsson) Hvert er farið blómið blátt, blóm, sem voru hér? Hví er farið blómið blátt burtu frá mér? Vera má að blíður blær blómið sem ég fann í gær, hafi á huldum stað. Hver getur sagt mér það? Hver er farið blómið blítt,…

Trunt trunt korriró

Trunt trunt korriró (Lag / texti: erlent lag (Do wah diddy diddy) / Ómar Ragnarsson) Sögu amma sagði mér um huldumann sem söng trunt, trunt, ó og hæ og hó, korriró. Og til sín sveitastúlku töfraði hann og söng: trunt, trunt, ó og hæ og hó, korriró. Það hreif Hún hló og í hólnum síðan…

Vor [1]

Vor (Lag / texti: Sigurður Helgason og Jónas Tómasson / Þorsteinn Erlingsson) Nú sé ég og faðma þig, syngjandi vor, með sólina og blæinn. Mér klappaði golan, þó gatan sé þröng, og gott var í morgun að heyra þinn söng. Nú kem ég sem fljúgandi langt út í ljósið og daginn. Hvað ætlarðu að sýna…

Vor [2]

Vor (Lag / texti: Pétur Sigurðsson / Friðrik Hansen) Ljómar heimur, logar fagur, lífið fossar, hlær og grær. Nú er sól og sumardagur, söngvar óma fjær og nær. Vorsins englar vængjum blaka, vakir lífsins heilög þrá. Sumarglaðir svanir kvaka, suður um heiðavötnin blá. Hvílir yfir hæðum öllum, himnesk dýrð og guðaró. Yfir jöklum, fram á…

Síldarstúlkurnar

Síldarstúlkurnar (Þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja 1953) (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ástgeir Ólafsson (Ási í Bæ)) Þær heilsuðu okkur með svellandi söng síldarstúlkurnar, og þá voru kvöldin svo ljós og löng, en ljúfastar næturnar. Því við vorum ung og ástin hrein og ólgandi hjartans blóð. Og sumarið leið og sólin skein, og síldin á miðunum óð.…

Bítilæði

Bítilæði (Lag og texti: Ómar Ragnarsson) Það sprettur vel – ú-u-u-u Í fyrra var ég bara feiminn og óásjálegur fýr en ég breyttist og nú er ég sem nýr. Bítlarnir komu, breyttur ég er. Nú get ég bitið í hárið á mér. Bítilæði – bítilfræði. Bítillög og bítilkvæði. Bítilbuxur – bítiltreyjur. Það vantar ekkert nema…

Fyrsti kossinn

Fyrsti kossinn (Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Fyrsta kossinn – ég kyssti rjóða vanga, þennan koss ég vil muna daga langa. Ég sá þig kæra fyrst um kvöld í maí. Ég var að koma á rúntinn niður í bæ. Og hve þín ásýnd öll mig heillaði, því aldrei nokkurn tíma gleymt…

Heimilisfriður veiðimannsins

Heimilisfriður veiðimannsins (frh. af laginu Heimilisfriður sem Ómar Ragnarsson orti) (Lag / texti: engar upplýsingar / Ómar Ragnarsson) (Hann) Gaman væri að veiða með þér en vandamálið það er, að þú ert alltof ónýt við streð. Við getum ekki haft þig mig. (Hún) Aha, heyra þetta. Þér ferst að tala eins og Tarsan til mín,…

Hvít jól [2]

Hvít jól [2] (Lag / texti: erlent lag / Fríða Sæmundsdóttir) Mig dreymir um mín æskujól, ómuna fögru “Heims um ból”. Og um bjöllunnar hljóm og barnanna róm, sem biðja um hækkandi sól. Mig dreymir horfna dýrð og ró, dúnmjúkan, hvítan jólasnjó, og um klukknanna ómfagra klið, sem kveikir von um líf og frið. [m.a.…

Bláu augun þín

Bláu augun þín (Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Bláu augun þín blika djúp og skær, lýsa leiðina mína líkt og stjörnur tvær. Þó að liggi leið mín um langan veg, aldrei augnanna þinna eldi gleymi ég. Þau minna á fjallavötnin fagurblá, fegurð þá einn ég á. Bláu augun þín blika djúp…

Lífsflótti

Lífsflótti (Lag / texti: Haukur Ingibergsson / Smári Hannesson) viðlag Góða nótt og farðu nú að sofa, elskan, góða nótt og reyndu nú að láta renna af þér. Reynt hef ég að leiða þig frá lauslætinu hér, er þú læðist inn í gleðipartí. Þú heldur að þeir hafi allir augastað á þér, og þú getir…

Kenndu mér að kyssa rétt

Kenndu mér að kyssa rétt (Lag / texti: erlent lag / Skafti Sigþórsson) Kenndu mér að kyssa rétt og hvernig á að faðma nett. Hvernig á að brosa blítt og blikka undur þýtt. Ég sem er svo ungur enn af ástarþránni kvelst og brenn, tækifærin fæ ég ei því flestar segja nei. Og vona minna…

Vetur (Hvar eru fuglar?)

Vetur (Hvar eru fuglar?) (Lag / texti: Sveinbjörn Sveinbjörnsson / Steingrímur Thorsteinsson) Hvar eru fuglar þeir á sumri sungu? Þeir suður flugu brimótt yfir höf. Hvar eru blómin sæl frá sumri ungu? Und snjónum hvíla þau í vetrargröf. Hvað er nú söngva? Vindgnýr hærri og hærri um hvítnað land en þung með drunuhljóð, þar þögull…

Mamy blue

Mamy blue (Lag / texti: erlent lag / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Ég flyt þér sönginn Mamy blue. Ó Mamy, ó Mamy Mamy blue, ó Mamy blue Ó Mamy, ó Mamy Mamy blue, ó Mamy blue. Við hittumst, áttum hljóðan fund og heimurinn stóð kyrr um stund. Svo hvarfst þú bak við fjöllin blá, mér frá.…