Fyrsti maí

Fyrsti maí (Lag / texti: Sigursveinn D. Kristinsson / Jóhannes úr Kötlum) Yfir fjöll, yfir sveitir og sanda, nú suðrænir vindar þjóta. Úr hömrunum hengjur falla og hlaupaskriður leið sér brjóta. Nú veður í hjarnskaflinn harða, þar sem hvergi sást áður spor, og klakinn hann grætur af klökkva. Það er komið sólskin og vor. Út…

Farfuglar

Farfuglar (Lag / texti: erlent lag / Guðmundur Guðmundarson)   Sól og blíða bæta skapið, brosir vorið hlýtt mót ströndum, fáum loks að fagna aftur fuglunum úr suðurlöndum. Farfuglar, farfuglar fögnuð vekja alls staðar. Farfuglar, farfuglar fögnuð vekja alls staðar. Lóa, heiðagæs og lundi, langvía með vængi þanda, keldusvín og oddhvass kjói, krían herská mjög…

Hanarnir tveir

Hanarnir tveir (Lag / texti: erlent lag / Þórarinn Hjartarson) Heyrist gal hanans svarta verður dimmt og deginum lýkur. En er rauða hanans glymur gal þá glaðnar og nóttin víkur. Viðlag Syng, enginn mun heyra. Taktu vindur minn söng sem engu nær eyra. Syng, hvað get ég meira. Vindinum eigna ég söng minn sem engir…

Jónas í hvalnum

Jónas í hvalnum (Lag / texti: Jakob F. Magnússon og Þórður Árnason / Þórður Árnason) Jónas lenti‘ í maganum á stórum hval, stórum hval, rosa stórum hval, Jónas lenti‘ í maganum á stórum hval og þá varð honum ekki um sel. Í Gyðingalandi í gamla daga hefur Gamla testamentið fyrir satt, að upp í munn…

Í bestu súpum finnast flugur

Í bestu súpum finnast flugur (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Margþættur er mannsins hugur. Í letingjum býr leyndur dugur. Á spekihjúpum sér í smugur. Í bestu súpum finnast flugur. Engin sála sér hve sjóndöpur hún er. Hver lifir í sjálfum sér og sálast einn og sér. Þú lýtin skalt smækka, en mikla þinn mátt, þá…

Feigð

Feigð (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Sit hér einn og sötra vín, sortinn byrgir augu mín. Mér sama er hvort að sólin skín, mér sama er um allt, hvort heitt er eða kalt. Ég ma kallast elliær, en andi minn er hreinn og tær. Ég finn að eitthvað færist nær, sem fangar hverja taug, sem…

Ég get þig ekki glatt

Ég get þig ekki glatt (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Mér finnst það leitt að geta‘ ekki neitt gert fyrir þig, ég er staur. Ég segi þér alveins og er: Ég má ei missa aur. Ég segi þér hreina satt, ég milljónir greiði í skatt. Ég betla í minn kúluhatt. Ég get þig ekki glatt.…

Hinn nýi íslenski þjóðsöngur

Hinn nýi íslenski þjóðsöngur (Lag og texti: Sverrir Stormsker og Þórður Magnússon) Þorskurinn, Ingólfur, Grettir og Glámur, Gullfoss og Þingvellir, hundurinn Sámur, Eyvindur, Halla og Laxness og landinn, lúsin og Fjallkonan, efnahagsvandinn, Geysir og sápan, Gunnar og Mjölnir, glíman og paparnir, Jónas og Fjölnir, Vigdís og Erró og þreyjandi þorri, Þórður og Sverrir og víðlesinn…

Hildur

Hildur (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Ég horfi í augu þín, úr augum þínum skín hrein ómeðvituð gjöf til mín. Það eina hér sem yljar mér í lífsins frosti og fönn, sem gefur dug í dagsins önn. Ég lít í augu þín og lít þar augu mín. Minn bústaður hann er í þér. Oft ástarhjal…

Þú leiddir mig í ljós

Þú leiddir mig í ljós (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Þú sem ert fallinn frá, ert farinn, kominn að ós; Líf þér ég launa á, þú leiddir mig í ljós. Trú mína og tálsýnir þú tókst og fleygðir á bál. Ískaldur eldur þinn enn yljar minni sál. Vinur minn, kæri vinur minn, í bakkann reynir…

Alls staðar er fólk

Alls staðar er fólk (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Hve hátíðlegt er heimsins slekt, heimskt og leiðitamt, svo gáfnatregt og lúalegt, svo lúmskt og íhaldssamt. Mjög er normalt mannfólkið og mett af bábyljum. Svo þungbúið er þetta lið og þröngsýnt með afbrigðum. Samt er nákvæmlega sama hvert ég fer, já sama hvar ég er, alls…

Komdu með

Komdu með (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Komdu með mér í partíið, taktu til á þér andlitið. Ekki vera með vol og víl, gargaður frekar á leigubíl (strax, nú strax). Ó, komdu með, það kætir gerð, ó, komdu, ég í seðlum veð. Hoppum og verum kát, skoppum við Twist and shout, stoppaðu harmagrát og komdu…

Þú ert eini vinur þinn

Þú ert eini vinur þinn (Lag og texti: Sverrir Stormsker)   Þú leiðir einhvern á leið svo leiðin verði greið, gefum blindum sýn, leggur einhverjum lið, þið labbið hlið við hlið, en aðeins stutta stund, því maður sem að sér synjar fylgd með þér og burtu fer. Þú sýnir sanna dyggð, þú sýnir hreina tryggð,…

Einu sinni = Alltaf

Einu sinni = alltaf (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Að baki þér er breið og mikil læsing. Úr böndunum þú færð þig aldrei leyst. Þú kveinar en það virkar ekki volið; Þeir vænu hafa um þig múra reist. Það glappaskot sem gerðir þú í æsing er geymt í hugum, þó þú hafir breyst. Því ef…

Samúð

Samúð (Lag / texti: Guðrún Elín Ólafsdóttir / Sverrir Stormsker) Já þetta vetrarkvöld er drungalegt og dimmt, það deginum er ljósara. Og út í gaddinum þar geta fáir skrimmt: Ég greini í trjánum fuglana. Ó bíbagreyin, þá er ekki sjón að sjá, þeir sífra í garðinum hjá mér. Ég þríf í byssu mína og bauna…

Glens er ekkert grín

Glens er ekkert grín (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Gjarnt er mönnum gáfnatregum að gleyma sér við skens og líta aldrei alvarlegum augum á spaug og glens. Þegar ég sé ánægt fólk, hreint ákaflega sælt, þá gæti ég í gremju minni gubbað, nú eða ælt. Já, gjarnt er háðskum heimskingjum að hafa allt í flimtingum;…

Austurstræti 1984

Austurstræti 1984 (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Skyggnið er ágætt, en hvort það er vor eða vetur, veit ég eigi svo gjörla en frostið stingur. Um Austurstræti ég eigra með hendur í vösum. Ælugrænn staur sit allra síðasta syngur. Á pulsubarnum bið ég um eina með rúsínu og bæti því við til fróðleiks ég hlynntur…

Göfugugginn

Göfugugginn (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Ég kafa í minn innri manna, af alefli ég göfga hann með lestri um hin lífsins duldu mál. En ef mig vantar eitthvert svar ég alsæll rýni í stjörnurnar, því stöður þeirra stjórna minni sál. Ég er sjálfskoðuð sál, ég er sannleikans mál, ég er opinn sem útsprungið blóm.…

Paradís

Paradís (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Sumar, vetur, vor og haust ég vinn en ekkert hlýt. Já alla daga endalaust ég ösla slor og skít. Ó, ég vil fá mér nesti og nýja skó. Af nepju hef ég fengið meir en nóg. Já, það er ljóst á landi þessu líður engum vel. Hér er allt…

Ávallt viðbúnir

Ávallt viðbúnir (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Skátar eru yfir höfuð ekki mikið inná krám. Þeir nota frekar tímann til að taka ketti niður úr trjám. Hugsum til barnanna, unglinga, gamlingja. Við gerum margt góðverkið, sem göfgar mannkynið. Við björgum fólki úr fjöllunum og forðum því frá tröllunum. Rjúpnaskyttum skjótum vér skjólshúsi yfir, sem vera…

Negrablús

Negrablús (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Þú vilt surt, sveittan durt, með tvist í höndunum. Ég vil burt, ei vera‘ um kjurrt, mig losa‘ úr böndunum og fá að þjóra bjóra á ströndunum. Að eignast flón er þín bón, Einhvern út úr hól, svartan kall sem á hjall, sandala‘ og ruggustól, sem fretar blús í…

Man is the woman of the world

Man is the woman of the world (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Ég borga reikningana‘ og ég gef þér aur og ég kaupi bjór handa þér, en þú bara gargar og atar mig aur og ælir í hárið á mér. Ég kaupi‘ í matinn, já ég kaupi‘ í bú, ég kaupi sykur og smér ofan…

Sjálfs er höndin hollust

Sjálfs er höndin hollust (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Ef þú berð engar taugar til tígurlegra kvenna og finnst þeim ætti á haugum með öðru rusli að brenna, þá líklegt er að þig fýsi frekar í það að koma mönnum aftan að. En sjálfs er höndin hollust, sú hægri yfirleitt. Þó allar konur lýsi‘ á…

Kjarnorkukomminn

Kjarnorkukomminn (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Ég er kjarnorkukommi og yrki um ógnir, dauða og stríð, um myrkur, ræsi, rigningu og blóð og reiðan þjáðan lýð. Og harmatölur heimsins alls á herðum mínum ég ber. En kjarnorkusprengjan alltaf er efst í huga mér. Bombuna ég yrki um öll mín bestu ljóð. Við geislavirku voðaskýi ég…

Samfestingar

Samfestingar (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Skilið okkur ekkert gat og enginn gat. Við vorum samlokur sem snápar gerðu sér að mat. Á milli okkar ekkert var, nei ekki neitt. Við vorum samföst, vorum góð, við vorum eitt. Í rúminu við lágum létt, við lágum íðí nótt og dag rúmlega, var okkar sport. Hve gott…

Dánarfregnir og jarðarfarir

Dánarfregnir og jarðarfarir (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Jón Jónsson lést í dag 85 ára að aldri. Þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Þá fluttar eru fréttir, sárt fá sumir grátið. Hundruð láta lífið. En hvert er lífið látið? Þá býður upp á betra að bíða en ana. Það bíður þess enginn betur sem bíður…

Við matarborð

Við matarborð (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Ég yrki vísu um ýsu sem áður fór um haf. En hún var veidd og hífð um borð og hausinn skorinn af. Nú hjá okkur er ´hún uppákomin fatið. Örlög grimm og þó: Innan stundar fer ´hún út um endagatið og aftur út í sjó. [af plötunni Sverrir…

Á föstudaginn langa

Á föstudaginn langa (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Veglaus himinn vakir yfir mér, veðrið það er bæði gott og blessað. Ég ligg í stól, að ofan er ég ber. Í útvarpinu verður bráðum messað. Í garði þessum gerist ekki margt, jú, grasið vex, en lítið annað hendir. Og hér er fátt, sem augað yfir gleðst.…

Ástaróður

Ástaróður (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Í volæði og eymd þú veitir mér lið, lyftir mér upp, lífgar mig við. Þú vermir mig, ver, veitir mér styrk er blasir mér við veröldin myrk. Þig ég þrái, þig ég dái. Ég og þú fylgjumst alltaf að. Andi þinn á óðul í mér. Þig einatt og oft…

Fyrirgefðu mér

Fyrirgefðu mér (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Nú hef ég áttað mig, ég var þér vondur, en vina, ég er nýr og betri, breyttur, allur annar, auðmjúkur og hlýr. Ég hefi opnað hnefann kreppta, ég höndum tek þér tveim, krýp í duftið, kyssi á tærnar, ó, komdu aftur heim. Ég lofa að spara spörkin og…

Joe Hill

Joe Hill (Lag / texti: erlent lag / Einar Bragi) Mig dreymdi í nótt ég sá Joe Hill, hinn sanna verkamann. „En þú ert löngu látinn, Joe?“ „Ég lifi“, sagði hann. „Ég lifi“, sagði hann. „Í Salt lake city“, sagði ég, „þar sátu auðsins menn og dæmdu þig að sínum sið.“ „Þú sérð ég lifi…

Þríhyrningur

Þríhyrningur (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Þú og ég, þú og ég, þú og hann; Þríhyrningur. Þú og ég æðisleg, við fittum, erum eitt. Þú og hann sem ekkert kann eruð ekki neitt. [af plötunni Sverrir Stormsker – Hitt er annað mál]

Samför

Samför (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Ó elsku elskan mín, ég elska að elska þig. Í örmum þér ég gleymi kífinu. Þó að ást rími við þjást og brást og slást, þá þarf ´etta‘ ekki að ríma í lífinu. Ó, ég skal skapa þér, ó, framtíð bjarta skal ég skapa þér. Ó ef ég tapa…

Kona

Kona (Lag / texti: Gísli Helgason / Ólöf Sverrisdóttir) Ég vil ekki þurfa að vera eins og karlmaður til þess að fá sama rétt og hann. Ég vil ekki þurfa að hugsa eins og karlmaður til þess að vera ekki fyrirlitinn. Ég vil ekki þurfa að tala eins og karlmaður til þess að tekið sé…

Palli Hall

Palli Hall (Lag / texti: erlent lag / Ásgeir Ingvarsson)   Um árið fóru vegagerðarverkamenn í stræk, þeir voru starfsmenn ríkisins og áttu að brúa læk. En Palla Halla verkstjóra var ekki orðið rótt því hann átti að fá sinn bónus ef það gengi fljótt. Palli Halli hækkaði ekki kaupið Palli Hall sendi fólkið heim.…

Plógurinn

Plógurinn (Lag / texti: erlent lag / Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Hönd legg ég harða á plóginn og hyggst í jörðu bera. Svo hef ég löngum lifað. Leyfist mér þreyttum að vera? Fiðrildi á flugi, fjör í engisprettum, hörund mitt blakknar og sólin skín, skín og skín. Svitinn ristir á mig rákir, risti ég í jörðu…

Sagan af Gunnu og Sigga

Sagan af Gunnu og Sigga (Lag / texti: erlent lag / Þrándur Thoroddsen) Þau gengu saman í gaggó Gunna og hann. Seinna sömu vinnu og Siggi Gunna vann. Hann vildi kalla sig karlmann og kvæntist Gunnu pent. Í heilögu hjónabandi hún Gunna var lent. Þeim fæddist fyrst ein stelpa svo Fúsi og Lilla-Syss. Og Gunna…

Sjá roðann í austri

Sjá roðann í austri (Lag / texti: erlent lag / Þorsteinn Gíslason) Sjá roðann í austri – hann brýtur sér braut! Fram bræður – það dagar nú senn! Þeir hæða vorn rétt til að rísa frá þraut, vorn rétt til að lifa eins og menn. Þeir skammta okkur frelsi, þeir skammta okkur brauð. Hvað skóp…

Skilmálarnir

Skilmálarnir (Lag / texti: Áskell Snorrason – Þorsteinn Erlingsson) Ef þér ei ægir allra djöfla upphlaup að sjá og hverri tign að velli velt, sem veröldin á og höggna sundur hverja stoð sem himnana ber, þá skal ég syngja sönginn minn og sitja hjá þér og ef þú hatar herra þan sem harðfjötrar þig, og…

Stund milli stríða

Stund milli stríða (Lag / texti: Eyjólfur Kristjánsson / Jón úr Vör) Það ár, sem ég fæddist var friður saminn, er fávísir menn settu grið. En áfram var haldið og barist og barist og búið við vopnaðan frið. Og vestur á fjörðum var friðnum slitið og fátækir daglaunamenn börðust þar fyrir betri heimi og berjast…

Söngur verkamanna

Söngur verkamanna (Lag / texti: Áskell Snorrason / Kristján frá Djúpalæk) Við unnum það sem unnið var um Íslands breiða vang. Og bóndinn okkar bróðir er, og bræður þeir um nes og ver, er sækja sjávarfang. Við ruddum vegi, byggðum brýr og brutum land í góðri trú, sem hlýðin vinnuhjú. En byggðin þrengdist, burt var…

Til átaka

Til átaka (Lag / texti: Hallgrímur Jakobsson / Stefán Ögmundson) Vinnulýður verk þín bíður vörn og sókn hins snauða manns; sæktu glaður sameinaður sigra þína‘ í greipar hans sem að þjáði þig og smáði þínum börnum örbyrgð skóp. Láttu gjalla‘ um landsbyggð alla lýðsins sterka siguróp. [af plötunni Maíkórinn – Við erum fólkið]

Verkakonan

Verkakonan (Lag / texti: Stella Hauksdóttir) Ég hef alltaf verið verkakona, hef lifað lífi mínu svona; aldrei getað veitt mér neitt, launin ill greidd, launin illa greidd, já – y firleitt. Ég vakna klukkan sjö að morgni, fer í föt sem eru orðin illa slitin af ofnotkun, því ég á ekki neitt, því ég á…

Þjóðvindar

Þjóðvindar (Lag / texti: erlent lag / Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Ennþá vilja þeir ata land mitt lýðsins blóði, þeir sem tala um frelsið með flekkaðar hendur sínar, þeir sem vilja sundrung, hér syni og móður þar og vilja endurreisa krossinn sem Kristur bar. Skömminni vilja þeir skýla, arfi frá umliðnum tíma, en morðingjaliturinn leggst þeim…

Ég vitja þín æska

Ég vitja þín æska (Lag / texti: erlent lag / Þorsteinn Erlingsson) Ég vitja þín æska um veglausan mar, eins og vinar á horfinni strönd, og ég man þá var vor er við mættustum þar, þá var morgunn um himin og lönd. Þar var söngfugla mergð öll á flugi og ferð, en þó flaug enginn…

Íslands hrafnistumenn

Íslands hrafnistumenn (Lag / texti: Emil Thoroddsen / Örn Arnarson)   Íslands hrafnistumenn lifðu tímamót tvenn, þó að töf yrði á framsóknarleið. Eftir súðbyrðingsför kom hinn seglprúði knör, eftir seglskipið vélknúin skeið. En þótt tækjum sé breytt þá er eðlið samt eitt, eins og ætlunarverkið er sjómannsins beið. [að minnsta kosti tvö lög eru til…

Ég er … í þér

Ég er … í þér (Lag og texti:  Sverrir Stormsker) Ég er skotinn, ég er skotinn í þér. Ég er skotinn í þér, ég er skotinn, ég er skotinn í þér. Ég er skotinn í þér, skotinn í þér, skotinn í þér, í þér. Ég dýrka munninn þinn, ég dái augun þín, ég tilbið hárið…

Falllegur

Falllegur (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Sem flís við rass ég féll þig við. Ég féll í ást og yfirlið. Ég féll í svefn hins sæla manns. Ég féll í algleym- ing og trans. Ég féll í freistni og fyrir þér. Ég féll á bragði sem bjóstu mér. Ég féll í stafi, ég féll í…

Ég á mér draum

Ég á mér draum (Lag og texti: Sverrir Stormsker) Ég á mér hnífapör, en engan mat. Ég á mér skaufa en ekkert gat. Ég á mér greiðubúnt, en hef ekki‘ á höfði hár. Ég á mér plastraofgnótt, en ekki eitt einasta sár. Ég á mér dúk og disk, en ekkert borð. Ég á mér rödd,…

Mein Kampf

Mein Kampf (Lag og Texti: Sverrir Stormsker) Ég iðulega er á höttunum á eftir hundunum og köttunum. Saman safna ég rottunum og silfurskottunum undan mottunum og malla allt dýrslega í pottunum. Blómin eru algjört æði, það er satt. Ég set þau í og undir alveg saman hatt. Mér er hlýtt til músa, ég margoft brynni…