Síldarstúlkurnar

Síldarstúlkurnar (Þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja 1953) (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ástgeir Ólafsson (Ási í Bæ)) Þær heilsuðu okkur með svellandi söng síldarstúlkurnar, og þá voru kvöldin svo ljós og löng, en ljúfastar næturnar. Því við vorum ung og ástin hrein og ólgandi hjartans blóð. Og sumarið leið og sólin skein, og síldin á miðunum óð.…

Vor [2]

Vor (Lag / texti: Pétur Sigurðsson / Friðrik Hansen) Ljómar heimur, logar fagur, lífið fossar, hlær og grær. Nú er sól og sumardagur, söngvar óma fjær og nær. Vorsins englar vængjum blaka, vakir lífsins heilög þrá. Sumarglaðir svanir kvaka, suður um heiðavötnin blá. Hvílir yfir hæðum öllum, himnesk dýrð og guðaró. Yfir jöklum, fram á…

Vor [1]

Vor (Lag / texti: Sigurður Helgason og Jónas Tómasson / Þorsteinn Erlingsson) Nú sé ég og faðma þig, syngjandi vor, með sólina og blæinn. Mér klappaði golan, þó gatan sé þröng, og gott var í morgun að heyra þinn söng. Nú kem ég sem fljúgandi langt út í ljósið og daginn. Hvað ætlarðu að sýna…

Bláu augun þín

Bláu augun þín (Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Bláu augun þín blika djúp og skær, lýsa leiðina mína líkt og stjörnur tvær. Þó að liggi leið mín um langan veg, aldrei augnanna þinna eldi gleymi ég. Þau minna á fjallavötnin fagurblá, fegurð þá einn ég á. Bláu augun þín blika djúp…

Hvít jól [2]

Hvít jól [2] (Lag / texti: erlent lag / Fríða Sæmundsdóttir) Mig dreymir um mín æskujól, ómuna fögru “Heims um ból”. Og um bjöllunnar hljóm og barnanna róm, sem biðja um hækkandi sól. Mig dreymir horfna dýrð og ró, dúnmjúkan, hvítan jólasnjó, og um klukknanna ómfagra klið, sem kveikir von um líf og frið. [m.a.…

Heimilisfriður veiðimannsins

Heimilisfriður veiðimannsins (frh. af laginu Heimilisfriður sem Ómar Ragnarsson orti) (Lag / texti: engar upplýsingar / Ómar Ragnarsson) (Hann) Gaman væri að veiða með þér en vandamálið það er, að þú ert alltof ónýt við streð. Við getum ekki haft þig mig. (Hún) Aha, heyra þetta. Þér ferst að tala eins og Tarsan til mín,…

Fyrsti kossinn

Fyrsti kossinn (Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Fyrsta kossinn – ég kyssti rjóða vanga, þennan koss ég vil muna daga langa. Ég sá þig kæra fyrst um kvöld í maí. Ég var að koma á rúntinn niður í bæ. Og hve þín ásýnd öll mig heillaði, því aldrei nokkurn tíma gleymt…

Bítilæði

Bítilæði (Lag og texti: Ómar Ragnarsson) Það sprettur vel – ú-u-u-u Í fyrra var ég bara feiminn og óásjálegur fýr en ég breyttist og nú er ég sem nýr. Bítlarnir komu, breyttur ég er. Nú get ég bitið í hárið á mér. Bítilæði – bítilfræði. Bítillög og bítilkvæði. Bítilbuxur – bítiltreyjur. Það vantar ekkert nema…

Lífsflótti

Lífsflótti (Lag / texti: Haukur Ingibergsson / Smári Hannesson) viðlag Góða nótt og farðu nú að sofa, elskan, góða nótt og reyndu nú að láta renna af þér. Reynt hef ég að leiða þig frá lauslætinu hér, er þú læðist inn í gleðipartí. Þú heldur að þeir hafi allir augastað á þér, og þú getir…

Konuvísur

Konuvísur (Lag / texti: erlent lag / Ingimundur (duln.)) Þó konum sínum hafi karlmenn gaman af, sem kannske er nú einna mest fyrir framan af, þá leiðist þeim þær stundum, þó ljótt sé að segja frá, og langar oftast nær og mest í annarra konur þá. En þess háttar enginn maður má, það myndast svo…

Nikkólína

Nikkólína (Lag / texti: erlent lag / Ingimundur (duln.)) Nikkólína hún var átján ára, ættuð að ég veit, á að giska svona einhvers staðar on úr Mosfellsveit, hún var saklaus bæði og siðug vel og sæmilega feit, og svo var hún líka reflareinin rjóð og búlduleit. Hún Nikkólína nam hér snemma aðferðina sína. Hún Nikkólína,…

Jónsi matrós

Jónsi matrós (Lag / texti: erlent lag (Jungman Jansson) / Magnús Ásgeirsson) Hó og hæ! Jónsi matrós, byrinn blæs til ferðar þinnar nú er burtu hinsta nóttin, og í dag fer Tryggvi á sæ. Hafirðu angrast nóg með Fríðu þinni og mömmu kysst á kinnar og svo keyrt í þig snafsinn, þá syng hó og…

Næturóður

Næturóður (Lag / texti: erlent lag / Helgi Valtýsson) Blundar jörð í blíðum draumi, barni líkt er sofnar rótt. En með hjartans hlýja straumi himnesk undur birtast skjótt. Ljósskraut himinhvelfing ljóma: hvílíkt dýrðar töframegn. Fyrr en varir fagurhljóma fyllir geiminn tónaregn. Annars hljótt – ég alein vaki, undrandi þann töfrahreim: Björt og hrein, und himinþaki…

Við lágan bæ

Við lágan bæ (Lag / texti: erlent lag (Swanee ribber) / Bragi Sigurjónsson) Við lágan bæ í litlum hvammi langt upp í sveit, í skógarhlíð til fjalla frammi fyrstu barnsskónum sleit. Úr heimi leikja varla vék ég vorlangan dag, um kjarr og bala kátur lék ég, uns komið var sólarlag. Úti’ er löngu leikjayndi, lítil…

Mamy blue

Mamy blue (Lag / texti: erlent lag / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Ég flyt þér sönginn Mamy blue. Ó Mamy, ó Mamy Mamy blue, ó Mamy blue Ó Mamy, ó Mamy Mamy blue, ó Mamy blue. Við hittumst, áttum hljóðan fund og heimurinn stóð kyrr um stund. Svo hvarfst þú bak við fjöllin blá, mér frá.…

Vetur (Hvar eru fuglar?)

Vetur (Hvar eru fuglar?) (Lag / texti: Sveinbjörn Sveinbjörnsson / Steingrímur Thorsteinsson) Hvar eru fuglar þeir á sumri sungu? Þeir suður flugu brimótt yfir höf. Hvar eru blómin sæl frá sumri ungu? Und snjónum hvíla þau í vetrargröf. Hvað er nú söngva? Vindgnýr hærri og hærri um hvítnað land en þung með drunuhljóð, þar þögull…

Kenndu mér að kyssa rétt

Kenndu mér að kyssa rétt (Lag / texti: erlent lag / Skafti Sigþórsson) Kenndu mér að kyssa rétt og hvernig á að faðma nett. Hvernig á að brosa blítt og blikka undur þýtt. Ég sem er svo ungur enn af ástarþránni kvelst og brenn, tækifærin fæ ég ei því flestar segja nei. Og vona minna…

Í sjálfum þér

Í sjálfum þér (Lag og texti: Guðmundur Haukur Jónsson) Þó ferðist þú um allan heim og fáir af því enskan hreim, þú finnur ekki það, sem leitar að: Það er í sjálfum þér. Og þó þú stundir skemmtistað, og haldir oft að það sé það:; ei leita langt, því það er rangt: Það er í…

Sköpun

Sköpun (Lag og texti Guðmundur Haukur Jónsson) Enginn veit okkar leyndarmál um fyrirheit og lífið. Þótt skilji nú við þína sál, þá bíður þú er ég kem. Þá aftur heim ég glaður sný, la, la, la, og þig ég hitti á ný, la, la, la, og ég verð aldrei betri en þá, la, la, la,…

Þú ert of feit

Þú ert of feit (Lag og texti: Guðmundur Haukur Jónsson) Einn, tveir, þrír, fjór – Þú ert of feit, þú ert of feit til að vera geit í minni sveit. Og það finnst mér, og það finnst þér, og það finnst öllum, bæði konum og köllum. Ha, ha! [á plötunni Guðmundur Haukur – Guðmundur Haukur]

Lína Langsokkur [2]

Lína Langsokkur (Lag / texti: erlent lag / engar upplýsingar) Þekkiði Línu Langsokk tjúllahopp, tjúllahei, tjúllahoppsassa. Ég þekki Línu Langsokk, já, ég er einmitt hún. Sjáið ég á apa, sætan angurapa, og hann heitir herra Nílson. Það er ágætt nafn á apa. Sjáið ég á stórból, langar ykkur að vita Sjónar-spónar-gón-hól. Af hverju húsið heitir…

Vegir skiljast

Vegir skiljast (Lag / texti: erlent lag / Hannes S. Blöndal) Vegir skiljast, héðan burt skal halda, og hverjum þeim er nú var staddur hér, þúsundfaldar þakkir vil ég gjalda, með þeirri ósk burt ég fer: Þegar næst vor saman liggur leið, lýsi oss þá gleðisólin björt og heið. Mærum vinum með að gleðjast er…

Að vera með

Að vera með (Lag og texti Guðmundur Haukur Jónsson) La la la la la la la la la la la la la la La la la la la la la la la la la la la la Oft ég hugsa um horfna tíma, þegar yngri var en er í dag og ég reyni að láta…

SOS – ást í neyð

SOS – ást í neyð (Lag / texti: erlent lag / Ómar Ragnarsson) Fór um mig undarleg örvænting, er yfirgafstu mig. Einmana, hrjáður og hryggbrotinn ég hrópa nú á þig: SOS – ást í neyð, ein þú getur bjargað mér. SOS, aðra leið aldrei hjarta mitt að landi ber. Án þín ég færi á vonarvöl…

Brúðarskórnir

Brúðarskórnir (Lag / texti: Þórir Baldursson / Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Alein sat hún við öskustóna, hugurinn var frammi á Melum. Hún var að brydda brúðarskóna. Sumir gera allt í felum. Úr augum hennar skein ást og friður. Hver verður húsfreyjan á Melum. Hún lauk við skóna og læsti þá niður. Sumir gera allt í…

Blökkustúlkan

Blökkustúlkan (Lag / texti: erlent lag (On the road to Mandalay) / Jóhann Frímann) Bak við kalda klausturmúra kyssti hún mig lengi og heitt. Þarna burt úr borgarglaumnum blökkustúlkan hafði leitt farmann ungan, blys þar brunnu, bjöllur hringdu, munkur söng, þýðir vindar léku í laufi, læddust hljótt um pálmgöng. Ei var grátið, einskis spurt, er…

Næturljóð

Næturljóð (Lag / texti: Chopin / Jón frá Ljárskógum) Kom vornótt og syng þitt barn í blund, hve blítt þitt vögguljóð og hlý þín mund. Ég þrái þig. Breið þú húmsins mjúku verndarvængi, væra nótt, yfir mig. Draumljúfa nótt. Fær mér þinn frið, firr þú mig dagsins háreysti og klið.Ó, kom þú fljótt. Elfur tímans…

Vor og haust

Vor og haust (Lag / texti: Bjarni Þorsteinsson / Páll J. Árdal) Í fögrum lundi ég forðum undi hjá ungri mey í munarsælu draumi. Við ástarblossa og blíðukossa ég lifði glaður langt frá heimsins glaumi. Hin skæra sunna þá skein á runna og vorið ljúfa lék við blómin ungu. Við lóukliðinn og lækjarniðinn ég hlýddi’…

Bergljót

Bergljót (Lag / texti: Jón Laxdal / Guðmundur Guðmundsson) Ég veit að metorð og völdin há og vegur bíður mín jarli hjá, og systur hans augum yndisblá er unaðarsæla að dreyma. Og fyrstu æskunnar ástarþrá er ekki svo létt að gleyma. En mér er ofjarl sú ramma rún, er rekur mig heim í föðurtún, þar…

Söngurinn

Söngurinn (Lag / texti: Bjarni Þorsteinsson / Matthías Jochumsson) Söngurinn göfgar, hann lyftir í ljóma lýðanna kvíðandi þraut. Söngurinn vermir og vorhug og blóma vegur á köldustu braut. Söngurinn yngir, við ódáins hljóma aldir hann bindur um stund, hisminu breytir í heilaga dóma, hrjóstrinu í skínandi lund. Söngurinn harðúð og hjáræmi eyðir, hófsemi kennir og…

Ég vona það

Ég vona það (Lag / texti: Geirmundur Valtýsson / Steinn J. Jónsson) Nú stígum við dansinn dátt við dunandi lagið kátt. Það er svo seiðandi að sjá þín léttu spor, svo mjúkan munn þú átt, minn örvar það hjartaslátt. Mér finnst sem innra með mér ólgi lífsins vor. Og svo þegar ballinu er lokið skeður…

Mærin frá Miklabæ

Mærin frá Miklabæ (Lag / texti: erlent lag (Mærin frá Mexíkó) / Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli) Að Miklabæ ég á markað fór og meri var þar ein feit og stór. Ég gerðist bráður að beisla’ hana en biddu fyrir þér – ég réð ekkert við hana. Hún frísaði og sló, mig flatan dró þann fjanda…

Skárst mun sinni kellu að kúra hjá

Skást mun sinni kellu að kúra hjá (Lag / texti: erlent lag / Kristján frá Djúpalæk) Ég man einn góðan granna, sem var giftur ungri snót, og honum fannst hún falleg, þótt flestum þætti hún ljót. Og ást í húsi hló þar, og heilög gleði bjó þar. Já, sannkallað sælu hús það var. Minn granni…

Vor Akureyri

Vor Akureyri (Lag / texti: erlent lag / Kristján frá Djúpalæk) Vor Akureyri er öllum meiri, með útgerð, dráttarbraut og Sjallans paradís. Við höfum Lindu, við höfum KEA og heilsudrykkinn Thule, Amaro og SÍS. Og glæsta skíðahótelið skín við upp í fjöllum og nýja skíðalyftan þar sparar göngu öllum. Við þurfum lítið sem ekki neitt…

Ég er í ofsa stuði

Ég er í ofsa stuði (Lag / texti: erlent lag / Ómar Ragnarsson) Komdu og drífðu þig nú drengur dönsum nú þetta villta lag. Skemmtum og leikur okkur lengur lífsins ég njóta vil í dag. Nú sæl við erum saman og syngjum tvíraddað, hér er gleði og gaman. Nú gleymi ég stund og stað, mér…

Ef ég væri ríkur

Ef ég væri ríkur (Lag / texti: erlent lag / Egill Bjarnason) Ef ég væri ríkur, ef ég væri da ra ra ra ram, da ra rí ra ra ra rí ra ra ra rí ra ra ra ram, ef ég væri auðugur, ég aldrei skyldi vinna, da ra rí ra ra ra rí ra…

Ef bara ég væri orðin átján

Ef bara ég væri orðin átján (Lag / texti: erlent lag / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Hann sagði ég væri ósköp sæt, svolítið rauðeygð þegar ég græt, en bara svo ung ég væri enn, það ætti’ ekki við svo stóra menn. Og samt er hann ekki nema nítján, þótt nái hann tveimur metrum senn. Ef bara…

H-söngurinn

H-söngurinn (lag samið í tilefni Hægri dagsins 1968) (Lag / texti: Þorvaldur Halldórsson / Kristján frá Djúpalæk) Bókstaf þann, sem heitir H hafa skal í minni. Merkið víða munu sjá menn á vegferð sinni. Boðskap flytja okkur á öllum þetta kunna H: Ef þú ekur veginn, aktu hægra megin. Af þér vanans viðjar brjót, vertu…

Undarlegt með unga menn

Undarlegt með unga menn (Lag / texti: Rúnar Gunnarsson / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Það er svo undarlegt með unga menn, í ungum stúlkum þeir verða bálskotnir enn. En það er ekki svo með elsku mig. Ég elska sjálfan mig og kannski svolítið þig. Víst er það undarlegt með unga menn, í ungum stúlkum þeir verða…

Við Vatnsmýrina

Við Vatnsmýrina (Lag / texti: Sigfús Halldórsson / Tómas Guðmundsson) Ástfanginn blær í grænum garði svæfir grösin sem hljóðlát biðu sólarlagsins. En niðri í mýri litla lóan æfir lögin sín undir konsert morgundagsins. Og úti fyrir hvíla höf og grandar, og hljóðar öldur smáum bárum rugga. Sem barn í djúpum blundi jörðin andar, og borgin…

Út við himinbláu sundin

Út við himinbláu sundin (Lag / texti: erlent lag / Bjarni Guðmundsson) Út við himinbláu, bláu, bláu, bláu, bláu sundin, þú bauðst mér út að ganga, það var fyrsta sælustundin, við gengum saman, saman, saman, saman laus frá harmi, arm í armi, barm á barmi. Þær urðu fleiri, fleiri, fleiri, fleiri þessar ferðir, það fór…

Mig dregur þrá

Mig dregur þrá (Lag / texti: erlent lag / Kristján frá Djúpalæk) Í lágum bæ, langt upp til fjalla býr yngismær, sem ég elska mest, en faðir hennar er forn í skapi, og sagður tryllast ef hann sér gest. Mig dregur þrá, dóttir bónda mig seiðir eins og hunang býið – á heiðarslóð, en hani…

Sólnætur

Sólnætur (Lag / texti: Geirmundur Valtýsson / Kristján frá Djúpalæk) Allt vaknar til lífsins á vori, sem veturinn gróf undir fönn. Og gróðurnál fyrirheit gefur, og glaðst er við skapandi önn. Hreiður er fléttað úr hári, á hraðflugi efnið er sótt, því ástin í elskenda hjörtum, ber árangur svimandi fljótt. Og söngfuglar vaka, syngja og…

Síðasti valsinn

Síðasti valsinn (Lag / texti: erlent lag / Óskar Ingimarsson) Hvort manstu húmið hljóða á okkar nótt og hljóða kveðjustund sem leið of fljótt? Í hverjum kossi dulinn dómur okkar beið, að dagur rynni, þá skildi leið. Síðasta valsinn ég sveif, sveif ég með þér brott úr glaumi. Lagið sem hugann hreif, það heillar mig…

Kveðja til farmannsins

Kveðja til farmannsins (Lag / texti: erlent lag / Ágúst Böðvarsson) Í kvöld þegar fleyið ber þig burt frá mér, bið ég að megi gæfan fylgja þér. Meðan oss skilja hafsins svölu sund, sælt er að eiga von um endurfund. Hvert, sem þig aldan burtu frá mér ber, brennandi þrá og ást mín fylgi þér.…

Skugginn

Skugginn (Lag / texti: erlent lag (La Paloma) / Egill Bjarnason) Hve oft, undur sæll, ég sit hér við gluggann minn, og sé þá í öðrum glugga hvar skuggi þinn, svo létt svífur bak við gisofin gluggatjöld, er þú gengur nakin fram hjá sem nú er kvöld. Þig mun ég ekki þekkja á björtum degi,…

Fagra líf

Fagra líf (Lag / texti: Haukur Morthens / Kristinn Reyr Pétursson) Fagra líf, hversu létt voru spor inn í ljúf, heið og blá ævintýr. Ekkert má sín þó meir, frá í vor en sú mynd er í huganum býr. Meðan sól fer um svip þinn og skín yfir sund, yfir borg mína og strönd, ómar…

Hjalað við strengi

Hjalað við strengi (Lag og texti Kristinn Reyr Pétursson) Ljóðið sem ég las þér forðum lifir enn í huga mér, ofið hjartans ást, er þráði eilíft líf í faðmi þér. Heitur koss og húm yfir sundum, hamingja og seiðljúft vín, lokkakrans í ljósgulu hári, ljóð eitt var frá mér til þín. Lifir enn þá ljóð,…

Þarna fer ástin mín

Þarna fer ástin mín (Lag / texti: erlent lag / Jóhanna Erlingsson) Þarna fer hún, sem ég þrái, þarna fer ástin mín. Ég heyri fótatak hljóma í næturhúmi, og ég harma það, hve lánið reyndist valt. Og hún hvíslar með klökkva í rómi, ég kveð þig ástin mín nú fyrir fullt og allt. Þarna fer…

Hafið lokkar og laðar

Hafið lokkar og laðar (Lag / texti: erlent lag / Jóhanna Erlingsson) Einn ég stend við stýrið og vaki, stjörnubjartur himinninn er. Allt er hljótt og minn hugur sífellt fer, heim til hennar sem kærust er mér. Ó, hve hugljúft er hennar að minnast, heitra faðmlaga og hamingju gnótt. Eftirvænting um æðarnar seitlar, ég sný…