Reykingar

Reykingar (Lag / texti: Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson) Reykingar mjög heilla rafta, rettuna færi ég Skafta. Fáðu þér smók og sopa af kók og sjúgðu‘ í þig kosmíska krafta. Það borgar sig stundum að kvarta. Á kinninni kúrir ein varta. Brenndu‘ana burt, þá lódimmu urt, og sendu‘ út í svartnættið bjarta. Spennum nú beltin…

Að vera í sambandi

Að vera í sambandi (Lag / texti: Jakob F. Magnússon, Valgeir Guðjónsson og Tómas M. Tómasson) Að vera‘ í sambandi við annað fólk er mér lífsnauðsyn, ég er félagshyggjumaður eins og hann afi minn. Sambandi, ég verð að ná sambandi. Ég trúi‘ á mátt hinna mörgu, því vil ég hvetja þig að snarast nú út…

Úti í Eyjum

Úti í Eyjum (Lag / texti: Jakob F. Magnússon, Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson) Úti‘ í Eyjum var Einar kaldi, er hann hér enn? Hann var öðlingsdrengur, já svona eins og gengur um Eyjamenn. Í kvenmannsholdið kleip hann soldið, klípur hann enn? Hann sigldi‘ um sæinn, svalan æginn, siglir hann enn? Við spyrjum konur og…

Íslenskir karlmenn

Íslenskir karlmenn (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson) Mikið lifandi skelfingar ósköp eru þær lásí, við neitum að láta bjóða‘ okkur hvað sem er, því þrátt fyrir allt þá erum við íslenskir karlmenn. Því fer sem fer. Við stöndum þétt saman og snúum bökum saman, við stöndum þétt saman og snúum bökum saman.…

Tívolí

Tívolí (Lag / texti: Sigurður Bjóla) Þar brosti vorið með perur í trjánum, svifu‘ um garðinn, Veiga og Jón með munninn fullan af hundasúrum, veltu vöngum, skelltu‘ í góm. Við sigldum höfin í hljóðlátum draumi, lyftum glösum í París og Róm, þú varst Jane og ég var Tarzan, að kvöldi dags var pyngjan tóm. Í…

Dagur ei meir

Dagur ei meir (Lag / texti: Sigurður Bjóla) Hví þá það, haustið gengur í garð, í væran svefn fellur hvíthært sefið um allan daginn í dag. Og fólkið fer að bíða vorsins gleym mér ei. Senn er nótt, húmið fikrar sig inn í hálsakot bæði manns og konu um allan heiminn í nótt. [af plötunni…

Grái fiðringurinn

Grái fiðringurinn (Lag / texti: Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson og Jakob F. Magnússon) Ég finn hann í hælnum, ég finn hann í tánum, ég finn hann í kálfanum, ég finn hann í hnjánum, ég finn hann í lærunum, ég finn hann í náranum. – Hvað getur það verið, hvur í fjáranum? Hann kemur á morgnana…

Blindfullur

Blindfullur (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla) Nú er ég blindfullur og kemst ekki heim, blindfullur og finn ekkert geim, ég er blindfullur og á engan aur, blindfullur og styð mig við staur. Ég ætla‘ að hætta‘ að drekka‘ á  morgun, Ég ætla‘ að hætta‘ að drekka‘ í – verst hvað ég er…

Ferðalag

Ferðalag (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson, Tómas Tómasson og Jakob F. Magnússon) Í borginni við Eyrarsund við fléttum okkur sigursveig, allir vegir verða okkur færir hér í Køben. Í Køben, í Køben, hérna úti‘ í Kaupinhafn, í kóngsins, kóngsins, í kóngsins Kaupinhafn. Við höfum aldrei áður séð aðra‘ eins gommu‘ af reiðhjólum, danski djassinn dunar…

Slá í gegn

Slá í gegn (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson) Er ég ætti óskastein yrði óskin aðeins ein, ég er alltaf að reyna, þú veist hvað ég meina, um frægð og framandi lönd. Slá í gegn – slá í gegn, þú veist ég þrái að slá í gegn. Af einhverjum völdum hefur það reynst mér um megn.…

Ástardúett

Ástardúett (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson, Egill Ólafsson og Jakob Frímann Magnússon) Ég er dáinn úr ást þó hjartað dæli blóði – blóði, ég heyri‘ engan mun á hávaða‘ eða hljóði – hljóði. Ég er gagntekinn, altekinn, heltekinn, tekinn í framan – framan Ég er andvana, máttvana, magnvana þegar ég sé Hörpu Sjöfn Hermundardóttur, Hörpu…

Taktu til við að tvista

Taktu til við að tvista (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson) Ertu einn af fólkinu sem hreyfir aldrei legginn eða liðinn stirða og liggur grimmt á meltunni og sefur þegar tækifæri gefst, og ert með það á planinu (því langtíma) að fara fljótlega að girða fyrir spikið en það bara dregst og dregst? Eða ertu kannski…

Franskar (sósa og salat)

Franskar (sósa og salat) (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson)   Sjáið hvað úr sjó má fá, hlýddu‘ á ljóð mitt hringaná, hörpudisk og hámeri, hamsatólg úr Jónsveri, oj – oj. Hamborgarann helst ég kýs, pinkstöffið og pinnaís, ekkert illt af þessu hlýst, síðast svo en ekki síst við viljum franskar, sósu‘ og…

Sigurjón digri

Sigurjón digri (Lag / texti: Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson)   Með krafta í kögglum við förum á áfangastað, með ballskó í bögglum brunum við fagnandi‘ í hlað, brunum við fagnandi‘ í hlað. Við erum komnir til að sjá og sigra Sigurjón digra. Við erum komnir til að sjá og sigra Sigurjón digra. Á Atlas…

Hringur og bítlagæslumennirnir

Hringur og bítlagæslumennirnir (Lag / texti: Egill Ólafsson, Jakob F. Magnússon og Valgeir Guðjónsson) Hringur við hvern sinn fingur leikur og syngur af lífi og sál. Hann olli töluverðum hrolli, lifrar í polli hann tendraði bál. Hann lamdi þétt á lúðvíkinn ófáan með armbauginn, hann söng um gula kafbátinn með aðstoð vina sinna. Kelli hann…

Bréf til Báru

Bréf til Báru (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson) Umslagi með frímerki stimpluðu á Stokkseyri var tyllt með glæru límbandi við bakdyrnar á hvítmáluðu steinhúsi austarlega í borginni, hún sá það er hún kom heim – úr búðinni. Þau kynntust fyrst í Þórskaffi, hún hafði tapað buddunni, hann bauð henni‘ upp á Campari, nóg af því.…

Þeir eru að hala

Þeir eru að hala (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson) Ef vestrið héti Vestfirðir væri‘ allt öðruvísi þar, Hannes uppi‘ á hestbaki handfjatlandi byssurnar – byssurnar, byssurnar – byssurnar. Hann hleypir gegnum Hesteyri og heldri konur bak við tjöld mæna´ á manninn agndofa og mála augun fram á kvöld. Fram á kvöld. Þeir eru‘ að hala…

Kúrenudjúskastalar

Kúrenudjúskastalar (Lag / texti: Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla) Ég er hátt uppi‘ og hress, laus við múður og mess, ég er í grænmetinu og stefni‘ að heimsmetinu. Ég hef þrautseigjuna og kjarkinn, þolinmæðina. Heimsmetabókin frá Guinness, ég skal sko komast í heimsmetabókina frá Guinness, þar vil ég sjá mitt nafn. Ég reisi…

Það jafnast ekkert á við jazz

Það jafnast ekkert á við jazz (Lag / texti: Jakob F. Magnússon / Jakob F. Magnússon og Valgeir Guðjónsson) Þeir segja‘ að heima sé best. Ég er sammála því. Þegar sólin er sest – næ ég plöturnar í. Við erum músíkalskt par, sannkallaðir jazzgeggjarar. Músíkalskt par, sannkallaðir jazzgeggjarar. Við hlustum Ellington á, smellum fingrum í…

Gó gó partí

Gó gó partí (Lag / texti: Jakob F. Magnússon, Valgeir Guðjónsson, Egill Ólafsson og Þórður Árnason)   Come on pretty baby to the gogo party, to the gogo party, to the gogo party. Come on pretty baby to the gogo party, to the gogo party, to the gogo partyþ Because I love you so. Because…

Búkalú

Búkalú (Lag / texti: Jakob F. Magnússon, Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson) Að vera‘ í takt við tímann er oft tímafrekt, til þess þarf ástundun og góða eftirtekt, ef að fallið hefðum við þá gryfju í væri þessi hljómsveit löngu fyrir bí. Allt er best í hófi, það er okkar trú og með bros á…

Kókostré og hvítir mávar

Kókostré og hvítir mávar (Lag / texti: Jakob F. Magnússon og Valgeir Guðjónsson) Perlur og svín á pálmaströnd, páfugl við sjónarrönd, skepnur og menn eigra hönd í hönd um ókunn lönd á ný. Hvernig sem fer, þá verður draumurinn um kókostré að vera draumur enn um sinn. Fáðu mér vængi að fljúga á, færðu mér…

Peningar og ást

Peningar og ást (Lag / texti: Jakob F. Magnússon, Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson) Völvan er í eldhúsinu hjá mér, kíkir kúluna í. Völvan sér að allt með felldu er, bömmerinn er fyrir bí. Hvað sér hún kúlunni í? Peninga‘ og ást? Völvan spræk reykir Lucky strike og bryður kandísdröngul kaffi með. Bollann minn síðan…

Gamla budda

Gamla budda (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson, Egill Ólafsson og Jakob F. Magnússon) Ég á í basli með mig og þú átt nóg með þig, við skulum halda‘ okkur á mottunni í kvöld. Siðferðisástandið er heldur bágborið. Við skulum halda‘ okkur á mottunni í kvöld. Gamla budda, buddan mín, gamla budda, buddan mín. Auðvitað er…

Út í kvöld

Út í kvöld (Lag / texti: Jakob F. Magnússon og Ragnhildur Gísladóttir) Örn og Rannveig ætla‘ í kvöld út að skemmta sér, okkur langar með. En hvert skal halda, hvar er fjör? Harla víða er hægt að kæta geð. Hvar sem við lendum, hvar sem við endum, við ætlum út í kvöld. Á Röðli‘ er…

Segðu mér satt

Segðu mér satt (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson) Skilmerkilegustu skoðanakannanir sýna allt svo skýrlega‘ að næstum er óhætt að draga‘ ekki‘ í efa, sjö þúsund handahófs nöfn úr símaskránni sögðu að sér þætti sælla að þiggja en gefa. Segðu mér, segðu mér, segðu mér satt. Segðu mér, segðu mér, segðu mér satt. Ennfremur álítur marktækur…

ÚFÓ

ÚFÓ (Lag / texti: Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson og Jakob F. Magnússon) Við sáum ÚFÓ uppi‘ á heiði‘ í gær og út úr honum stigu verur tvær. Þær spurðu hvort við ættum nokkuð eld að kveikja upp í kveld. Þær buðu‘ okkur í ÚFÓ-inn sinn inn og helltu upp á uppáhellinginn. Fram þær reiddu hálfmána…

Grikkir

Grikkir (Lag / texti: Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson og Jakob F. Magnússon) Grikkir – já hérna koma, koma nokkrir grikkir. Grikkir – já hérna koma, koma nokkrir grikkir, leikum Gærubandið grátt, uss, hafðu‘ ei hátt, segjum fátt, leikum Gærur grátt. Belgir, já hérna koma, koma nokkrir belgir. Belgir, já hérna koma, koma nokkrir belgir, gjöldum…

Ég vildi ég væri

Ég vildi ég væri (Lag / texti: Ragnhildur Gísladóttir og Valgeir Guðjónsson) Ég vildi‘ ég væri öðruvísi en ég er, þegar ég er nakinn vil ég vera ber. Ég vildi‘ að hárið á mér væri öðruvísi litt, þegar ég fæ þetta vil ég heldur hitt, aha. Mér líður alltaf best í breytilegri átt, einkum þegar…

Örlög mín

Örlög mín (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson og Tómas M. Tómasson) Örlög mín eru‘ að vera söngvari, ég er dæmdur til að syngja fyrir þig. Mín ljúfustu ljóð syng ég fyrir fólkið, það brosir, þá straumur fer um mig. Sviðsljósin slökkna, heimleiðis ég geng af sjálfsmeðaumkun klökkna er ég stilli brostinn streng. [m.a. á plötunni…

Stórir skór

Stórir skór (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson, Egill Ólafsson og Jakob F. Magnússon) Stórir skór, stórir skór, alveg tryllingslega támjóir skór, stórir skór, stórir skór, alveg suddalega sveskjulegir skór. Ég var í þeim í brælunni á dögunum og ég hef líka mokað á þeim flór. Útlitið, útlitið hefur aldrei verið eins og núna þegar ég…

Í Bandaríkjunum

Í Bandaríkjunum (Lag / texti: Egill Ólafsson, Jakob F. Magnússon og Valgeir Guðjónsson) Bjó um tíma Birkiland í Bandaríkjunum. Hann áætlanir gerði grand í Bandaríkjunum, í Bandaríkjunum. Næfrum týndi á norðurslóð í Bandaríkjunum, í reiðileysi reykinn óð í Bandaríkjunum, í Bandaríkjunum. Bláfátækur barðist hann í bökkum lon og don, fraukum orti fríkuð ljóð og fékk…

Energí og trú

Energí og trú (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson og Jakob F. Magnússon) Þú getur gert það snemma‘ að morgni, þú getur gert úti‘ í horni, þú getur gert það þó hann þorni, þú getur gert það hvar sem er. Þú getur gert það inni‘ á baði, þú getur gert það með hraði, þú getur gert…

Popplag í G-dúr

Popplag í G-dúr (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson) Ég er staddur á algjörum bömmer, sé ekki‘ úr augunum út, allt er í steik þegar þú ert ekki með mér, hleypur í kekki og hnút. Og svo þegar þú birtist fer sólin að skína, smáfuglar kvaka við raust, í brjálæðis hrifningu býð ég þér Tópas og…

Svartur pipar

Svartur pipar (Lag / texti: Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson og Stuðmenn)   Sandur, hvert sem augað eygir, ekkert nema sandur, svartur eins og Biblían á hótelnáttborðinu‘ í nótt, í gegnum svartan piparinn, í gegnum svartan piparinn. Hvarmaljósin leiftrum kasta, hvarmbaugar á fingrum. Þögnin brýnir raustina, skýin fela öll sín tár í gegnum svartan piparinn, í…

Leitin að látúnsbarkanum

Leitin að látúnsbarkanum (Lag / texti: Ragnhildur Gísladóttir og Jakob F. Magnússon)   Alein ég fer, í álögum ég er uns barka ég finn úr brassi, eins og minn. Og enn ég held í sveitinni áfram leitinni‘ að látúnsbarkanum og ég fer senn á annan stað, enn að leita að látúnsbarkanum því ég veit að…

Áfram Jón

Áfram Jón (Lag / texti: Jakob F. Magnússon og Ragnhildur Gísladóttir) Sumir eru klárir að semja og sitja‘ ekki við orðin tóm en fagrar kviður fremja við fimbulorganhljóm. Og það var hálfgerð hundaheppni að haft var samband við Jón vegna orgelleikarakeppni sem haldin verður í Prag. Og þjóðin syngur saman einum rómi: Áfram Jón, við…

Staldraðu við

Staldraðu við (Lag / texti: Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson) Halló, halló, staldraðu við, halló, halló staldraðu við, eigðu við mig orð, eigðu við mig orð, já staldraðu við og ég skal kannski segja þér þegar ég keypti sjennann í september, já staldraðu við. Halló, halló, staldraðu við, halló, halló staldraðu við, eigðu við mig…

Mikki

Mikki (Lag / texti: Jakob F. Magnússon og Ragnhildur Gísladóttir) Ég skrapp á El Sombrero og fékk mér einn búrrító. Er á kjötmaukinu kjamsaði mér kom í hug sagan um hinn bandaríska æskumann, Mikjál Rockefeller sem starfaði við rannsóknir fornleifa við Amazon. Þar borða menn með bestu lyst búka sinna fjenda og lífið hafa margir…

Baktal

Baktal (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson)   Í þjóðfélagi nútímans er þarflegt og brýnt að þjálfa sína náðargáfu, heilagt og sýknt. Ég á mér æðisgengið áhugamál, ég illa tala um náungann af líkama‘ og sál. Það besta sem ég veit er að baktala fólk, baktala, baktala, baktala fólk, það besta sem ég…

Enginn er eins

Enginn er eins (Lag / texti: Egill Ólafsson) Því að enginn er eins, allir eru einstakir, því að enginn er eins, enginn er eins. Það er ekki til neins að negla stóra sannleikann, það er ekki til neins, því enginn er eins. Því að enginn er eins. Einn hefur yndi af þróttmiklum söng, annar vill…

Landbúnaðar-Lísa

Landbúnaðar-Lísa (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson) Miðað við minn einfalda smekk þá eruð þið ókei, svona afkastagírugar, vaðandi töðunni‘ í hné. Löðrandi‘ af svita‘ úti‘ í flekk að hirða í súrhey sem sauðnautum verður á þorranum látið í té. Landbúnaðar-, Landbúnaðar-, Landbúnaðar-, Landbúnaðar-Lísa. Súrheys-, Súrheys-, Súrheys-, Súrheys-, Súrheys-Sigga, Dugnaðar-, du, du, du, du, du, Dugnaðar-Dísa,…

Ég bið fyrir þér

Ég bið fyrir þér (Lag / texti: Jakob F. Magnússon, Tómas Tómasson, Valgeir Guðjónsson og Þórður Árnason / Þórður Árnason og Valgeir Guðjónsson) Ég bið fyrir þér þegar byrjar að hvessa og bátur lífs þíns stígur krappan dans. Ég bið fyrir þér, megi allar vættir blessa bátsför þína – jafnt til sjós og lands. Þú…

Leysum vind

Leysum vind (Lag / texti: Jakob F. Magnússon / Þórður Árnason) Það er allt fullt af fólki sem fer aldrei á kreik og sér sér ekki fært að og hefur aldrei lært að líta glaðan dag. Ef einhver er í fýlu og annar kannski í steik, þá er ég með lítið námskeið sem kippir þessu…

Stemmum stigu

Stemmum stigu (Lag / texti: Jakob F. Magnússon / Þórður Árnason) Um þjóðgarðinn voru áður ort ágæt ljóð og vísur snjallar, þá var sérhver planta af prima – sort og pláss fyrir þær allar en hverslags er þetta, hvað er á seyði og hvernig má þetta ske? Allskonar kvistir af kynlegum meiði eru að kæfa…

Tvöfalda bítið

Tvöfalda bítið (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson) Þegar ég var bara smábarn voru ungir menn á Englandi að finna upp nýjan takt sem kenndur var við tvöfeldni. Ég heyrði hann í útvarpinu, hljóp og keypti plötuna, stillti fóninum í gluggann og þandi fyrir götuna. Ég þandi tvöfalda bítið – tvöfalda bítið. Hljómsveitir um gjörvallt land…

Láttu mig gleyma

Láttu mig gleyma (Lag / texti: Egill Ólafsson, Jakob F. Magnússon og Þórður Árnason / Þórður Árnason)   Láttu mig muna hvar ég var í gær, láttu mig muna, Alfaðir kær, láttu mig gleyma hvar ég er, ég sofnaði heima en vaknaði hér. Við hlið mér er kona, ef vel er að gáð og ég…

Bara ef það hentar mér

Bara ef það hentar mér (Lag / texti: Jakob F. Magnússon) Bara ef það hentar – bara ef hentar mér. Ég berjast skal á móti Bandaríkjaher en bara ef það hentar mér. Svo þvæ ég mínar hendur og þvílíkt af mér sver ef það er það sem hentar mér. Ef blökkufólkið sveltur til bjargar ég…

Betri tíð

Betri tíð (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson og Stuðmenn / Valgeir Guðjónsson og Þórður Árnason) Sumarið er komið, svona‘ á það að vera, sólin leikur um mig algjörlega bera – lalalala úú. Ég sit hér úti‘ í garði, það sér mig ekki nokkur, ég gleymdi víst að kynna kallinn minn hann Binna, það munar sko…

Í háttinn klukkan átta

Í háttinn klukkan átta (Lag / texti: Þórður Árnason)   Mér eru fornu minnin kær og minningin um æskuna er silfurtær: batnandi fólki var best að lifa, börnin þau lærðu að lesa‘ og skrifa. Mamma vann heima, heklaði‘ og þagði en er húmaði‘ að kveldi hún stundarhátt sagði: „Vor guð er borg á bjart traust“…