Hvalræði (1991)
Hljómsveit starfandi 1991 en það árið kom út lag með sveitinni á safnplötunni Úr ýmsum áttum. Engar upplýsingar er að finna um meðlimi hennar.
Hljómsveit starfandi 1991 en það árið kom út lag með sveitinni á safnplötunni Úr ýmsum áttum. Engar upplýsingar er að finna um meðlimi hennar.
Hljómsveitin Hvers vegna? úr Hveragerði var starfandi 1983 og keppti það haust í Músíktilraunum Tónabæjar, komst reyndar í úrslit keppninnar. Meðal meðlima í þessari sveit voru þeir Heimir Eyvindarson hljómborðsleikari (Á móti sól o.fl.) og Hermann Ólafsson (Lótus o.fl.), ekki er kunnugt um aðra.
Hljómsveitin Hvítar reimar úr Keflavík og Sandgerði var stofnuð snemma vors 1987 og keppti nokkru síðar í Músíktilraunum Tónabæjar. Meðlimir sveitarinnar voru Sigurður R. Óskarsson hljómborðsleikari, Guðmundur Skúlason trommuleikari, Lárus F. Guðmundsson söngvari og Sverrir Ásmundsson bassaleikari. Hún komst ekki áfram í úrslit tilraunanna.
Hljómsveitin Hyldýpi frá Selfossi var starfandi að minnsta kosti á árunum 1999 og 2000, og keppti vorið 2000 í Músíktilraunum Hins hússins. Meðlimir sveitinnar voru Vignir Egill Vigfússon gítarleikari, Viktor Ingi Jónsson bassaleikari, Þorsteinn Már Jónsson trommuleikari og Helgi Rúnar Gunnarsson gítarleikari. Hyldýpi komst ekki áfram í úrslit Músíktilraunanna.
Hljómsveit með þessu nafni keppti í Músíktilraunum Tónabæjar vorið 1986. Ekki er ljóst hvort sveitin mætti til þátttöku en hún komst alltént ekki í úrslit. Engar upplýsingar liggja fyrir um meðlimi sveitarinnar.
Íslensk-sænskættaða hljómsveitin Iceland starfaði líklega að mestu leyti í Bandaríkjunum á níunda áratug 20. aldar. Hún hét áður Vikivaki og hafði þá verið til frá 1966 í ýmsum myndum en 1980 breytti hún um nafn og kallaði sig Iceland upp frá því. Uppistaðan í sveitinni voru íslenskir bræður sem höfðu starfað í Svíþjóð frá unga…
Iceland [1] – Fooling yourself [ep] Útgefandi: Moonshine Útgáfunúmer: SMS 601 Ár: 1980 1. Fooling yourself 2. Don‘t stop now Flytjendur: [engar upplýsingar um flytjendur] Iceland [1] – On the rocks Útgefandi: Moonshine Útgáfunúmer: SMS 001 Ár: 1980 1. Fooling yourself 2. Stay with me 3. Good to be back 4. Daydreamer 5.…
Hljómsveitin Illskársti kosturinn kom úr Menntaskólanum að Laugarvatni, keppti í Músíktilraunum 1987 og komst alla leið í úrslitin þar sem sveitin hafnaði í fjórða sæti. Meðlimir sveitarinnar voru Ragnar Klemensson bassaleikari, Kjartan Aðalbjörnsson hljómborðsleikari, Gunnar Júlíusson söngvari, Rúnar Þorsteinsson trommuleikari, Kjartan Ásmundsson gítarleikari og Hlynur Arnórsson hljómborðsleikari. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hversu lengi sveitin…
Thrashmetal hljómsveitin In memoriam úr Reykjavík var stofnuð snemma sumars 1991 upp úr annarri, Mortuary sem lenti í þriðja sæti Músíktilrauna þá um vorið. Síðar um sumarið keppti sveitin í hljómsveitakeppni í Húnaveri sem haldin var um verslunarmannahelgina. Þar gerðin hún sér lítið fyrir og sigraði en hluti verðlaunanna var að spila á Íslendingahátíð ásamt…
Dauðarokkshljómsveitin Inflammatory var ein af þeim öflugri í dauðarokkssenunni upp úr 1990 og keppti í Músíktilraunum 1992, komst þar reyndar í úrslitin. Sveitin ól af sér nokkra tónlistarmenn sem urðu þekktari fyrir annars konar tónlist síðar en dauðarokk en þeir voru aðeins fjórtán og fimmtán ára þegar sveitin kom fram á Músiktilraunum. Meðlimir sveitarinnar þá…
Hljómsveitin Infusoria varð þekktust fyrir að sigra Músíktilraunir Tónabæjar vorið 1991. Sveitin hafði þá starfað undir öðrum nöfnum áður frá haustinu 1989, þ.á.m. Sororicide, en eftir sigurinn í tilraununum breyttu meðlimir nafni sveitarinnar aftur í Sororicide. Undir því nafni varð hún þekktust. Meðlimir Infusoriu vorið 1991 voru þeir Gísli Sigmundsson bassaleikari (Changer o.fl.), Guðjón Óttarsson…
Hljómsveitin Ipanema var starfandi sumar og haust 1988 en litlar sem engar upplýsingar er að finna um þessa sveit. Þó liggur fyrir að gítarleikari hennar hét Geir Gunnarsson og sveitin hafði á að skipa söngkonu. Allar upplýsingar eru vel þegnar.
Ingimar Eydal er þekktastur norðlenskra tónlistarmanna fyrr og síðar, og þá er á engan hallað. Hljómsveit hans skóp einstaka stemmingu í Sjallanum á Akureyri sem ekki verður endurvakin en auk þess þótti Ingimar skemmtilegur persónuleiki og hvers manns hugljúfi. (Róbert) Ingimar Harðarson Eydal fæddist á Akureyri haustið 1936 og hneigðist áhugi hans snemma að hvers…
Hljómsveitin Islandia (Íslandía) starfaði um nokkurra mánaða skeið þjóðhátíðarárið 1974. Hún var stofnuð snemma árs líklega í því skyni að vera húshljómsveit í Sigtúni en einnig lék hún nokkuð á skemmtunum sjálfstæðisflokksins um sumarið. Islandia var skipuð söngvurunum og hjónakornunum Þuríði Sigurðardóttur og Pálma Gunnarssyni en einnig voru í sveitinni Austfirðingarnir Örn Óskarsson trompetleikari og…
Á fyrstu Músíktilraununum (1982) kom fram hljómsveit sem bar nafnið Íslandssjokkið. Um var að ræða kvartett, tveir kassagítarar, þverflauta og kontrabassi en engar aðrar upplýsingar liggja fyrir um sveitina. 1983 og 84 kom þjóðlagatengd sveit undir nafninu Guðjón Guðmundsson og Íslandssjokkið fram nokkrum sinnum, m.a. á vísnakvöldi og fullveldishátíð Háskóla Íslands. Engar upplýsingar liggja heldur…
Íslensk knattspyrna var hljómsveit starfandi í Eiðaskóla 1989. Sveitin tók þátt í Músíktilraunum þá um vorið og var þá skipuð þeim Benedikt Páli Magnússyni bassaleikara (Trassarnir), Jóni Tryggva Jónssyni gítarleikara, Guðbjarti Pétri Árnasyni trommuleikara og Róberti Ólafssyni söngvara og gítarleikara. Sveitin gekk framan af undir nafninu Kaffidanirnir.
Íslensku tónlistarverðlaunin hafa verið veitt síðan 1993, verðlaunin eru þó ekki fyrst sinnar tegundar á Íslandi – Stjörnumessa var haldin í fáein skipti á áttunda áratug liðinnar aldar og eins hafa ýmsir fjölmiðlar gert tilraunir til slíkra verðlaunahátíða, þær hafa þó aldrei orðið langlífar. Menningarverðlaun ýmis konar eru þó undantekningar en þar er tónlist yfirleitt…
Hljómsveit Jóns Erlings Jónssonar, J.J. Quintet/t (stundum einnig sextett þegar við átti) starfaði í á annan áratug og var meðal fremstu danshljómsveit landsins, m.a. mitt í þeim tónlistarhrærigraut sem sjöundi áratugurinn bauð upp á. Ýmsir söngvarar áttu eftir að koma við sögu sveitarinnar eins og venja var á þessum árum, og var hún iðulega kennd…
Hljómsveitin Jack star of fire var starfandi 2004 og tók þátt í Músíktilraunum það árið. Meðlimir sveitarinnar voru þá Ísak Jónsson söngvari, Davíð Sigurgeirsson gítarleikari, Ari Birgir Ágústsson bassaleikari og Ásmundur Jóhannesson trommuleikari. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um sveitina.
Jah var eins konar rafhljómsveit sem keppti í Músíktilraunum 1998 og komst reyndar í úrslit, þá voru meðlimir sveitarinnar Kristján Sveinn Kristjánsson, Guðmundur Ásgeirsson, Einar Johnson og Albert Snær Guðmundsson sem allir forrituðu og spiluðu á tölvur. 1999 tók sveitin aftur þátt og hlaut verðlaun fyrir forritun á þeim Músíktilraunum þrátt fyrir að komast ekki…
Jakob V. Hafstein (Havsteen) (f. 1914) var með merkari mönnum 20. aldarinnar á Íslandi þótt ekki væri nema fyrir tónlistarhlutann en hann var tón- og ljóðskáld auk þess að vera afburðarsöngvari. Jakob fæddist á Akureyri en flutti ungur til Húsavíkur þar sem hann bjó til menntaskólaáranna en þá gekk hann í Menntaskólann á Akureyri. Þar kynntist…
Jakob Hafstein – Fyrir sunnan Fríkirkjuna / Söngur villandarinnar [78 sn.] Útgefandi: Íslenzkir tónar Útgáfunúmer: IM 52 Ár: 1954 1. Fyrir sunnan Fríkirkjuna 2. Söngur villiandarinnar Flytjendur Carl Billich – píanó Jakob Hafstein – söngur Jakob Hafstein – Blómabæn / Fiskimannakrá í Flórens [78 sn.] Útgefandi: Íslenzkir tónar Útgáfunúmer: IM 74 Ár: 1955…
Hljómsveitin Jakobínarína var stofnuð haustið 2004 af ungum Hafnfirðingum, sveitin mun hafa gengið undir ýmsum nöfnum fyrst um sinn s.s. Lufthanza, Banderas, Jólasveinninn, Leppalúði o.fl. Árið eftir (2005) tók Jakobínarína þátt í Músíktilraunum og sigraði þær. Meðlimir þá voru þeir Ágúst Fannar Ásgeirsson hljómborðsleikari (spilaði upphaflega á gítar í sveitinni), Björgvin Ingi Pétursson bassaleikari, Gunnar…
Hljómsveitin Jam ´80 var undanfari Tappa tíkarrass sem síðar varð eins konar andlit kvikmyndarinnar Rokk í Reykjavík. Sveitin sem var einhvers konar popp-pönksveit, var stofnuð 1980 af Eyþóri Arnalds (Todmobile o.fl.), Eyjólfi Jóhannssyni gítarleikara og Jakobi Smára Magnússyni bassaleikara en tveir þeir síðast töldu áttu eftir að gera garðinn frægan með SSSól (Síðan skein sól)…
Ekki fór mikið fyrir ísfirsku hljómsveitinni Jönu á sínum tíma en þeir vöktu þó nokkra athygli þegar sveitin keppti í hljómsveitakeppni í Húsafelli um verslunarmannahelgina 1970 og lenti þar í öðru sæti, þá hafði sveitin líklega verið starfandi í um eitt ár að minnsta kosti. Ekki finnast miklar upplýsingar um sveitina en sumarið 1969 voru…
Jazzmiðlar var djasshljómsveit starfandi um miðjan áttunda áratuginn, líklegast veturinn 1972-73 en þá var Jón Páll Bjarnason gítarleikari staddur hérlendis. Meðlimir sveitarinnar voru Gunnar Ormslev saxófónleikari, Rúnar Georgsson saxófónleikari, Árni Scheving bassaleikari, Alfreð Alfreðsson trommuleikari og Jón Páll. Sveitin gaf aldrei út plötu en upptaka með sveitinni kom út á plötunni Jazz í 30 ár…
Hljómsveit með þessu nafni starfaði í Reykjavík í kringum 1990. Meðlimir sveitarinnar voru Rögnvaldur Bragi Rögnvaldsson bassaleikari, Hreinn Laufdal trommuleikari, Halldór Bragason gítarleikari og Guðlaugur Hjaltason söngvari og gítarleikari. Sveitin gaf út eina snælda í fimmtíu eintökum en afar takmarkaðar upplýsingar er að finna um þá útgáfu. Efni á plötum
Hljómsveit Jón var stofnuð síðsumars 1970 af tvíburunum Lárusi og Hirti Blöndal, í sveitinni voru áðurnefndir Lárus Blöndal gítarleikari og Hjörtur Blöndal söngvari en að auki voru þeir Bogi Gunnlaugsson bassaleikari og Gunnar Gunnarsson trommuleikari í henni. Sveitin varð skammlíf, starfaði fram yfir áramótin 1970-71 en lagði þá upp laupana. Þá hafði hún eingöngu leikið…
Hljómsveit með þessu nafni var starfandi 2006 og líklega ennþá 2008. Hverjir skipuðu hana er þó ekki vitað, eða hvar hún starfaði.
Jón Árnason frá Syðri-Á í Ólafsfirði (f. 1928) var kunnur harmonikkuleikari og tónlistarfrömuður og hefur nafni hans verið haldið á lofti á heimaslóðum. Jón hóf að leika á harmonikku aðeins tólf ára gamall og var sjálfmenntaður í þeirri grein. Hann lék ungur á böllum í sinni sveit og einnig síðar með hljómsveitum og starfrækti m.a.…
Jón Árnason frá Syðri-Á – Kleifaball: Jón Árnason á Syðri-Á leikur gömlu dansana Útgefandi: Stúdíó Bimbó Útgáfunúmer: SB 006 Ár: 1984 1. Jealousy 2. Frösöminder 3. Aflakóngurinn 4. Dalahambo 5. Brokk 6. Ljósbrá 7. Beautiful days 8. An der Waterkant 9. Skandinavískur vals 10. Ég veit þú kemur 11. Dansað í holti 12. Á kvöldvökunni 13.…
Líklega eru fá nöfn jafn samtvinnuð Ríkisútvarpinu og nafn Jóns Múla Árnasonar þular. Þrátt fyrir að vera þekktastur fyrir þularhlutverk sitt kom Jón Múli (f. 1921) þó með margs konar hætti að tónlist. Hann nam hljómfræði og trompetleik við Tónlistarskólann í Reykjavík 1945-46 og lærði einnig söng hjá Pétri Á. Jónssyni óperusöngvara 1951 og 52. Jón…
Hafnfirðingurinn Jón Rafn Bjarnason (f. 1961) var nokkuð áberandi í íslenskri tónlist á níunda áratug tuttugustu aldarinnar en hefur reyndar verið lítt áberandi síðan. Strax á unglingsárum kom hann við sögu hafnfirskra hljómsveita, t.a.m. hljómsveitarinnar LagEr og Skólahljómsveitar Flensborgarskóla (í kringum 1980) og hann var einmitt í þeim skóla þegar hann vann tónlistina við stuttmyndina…
Jón Rafn – Vinur [ep] Útgefandi: [engar upplýsingar] Útgáfunúmer: FS 001 Ár: 1980 1. Ég syng fyrir vin 2. Mitt eina ljós Flytjendur Hjörtur Howser – hljómborð Brynjólfur Stefánsson – bassi Eyjólfur Jónsson – trommur Jón Rafn Bjarnason – söngur og píanó Björn Thoroddsen – gítar Jón Rafn – Lög fyrir þig Útgefandi: [engar upplýsingar] Útgáfunúmer:…
Hljómsveitin Jónas úr Hveragerði tók þátt í Músíktilraunum 1985 en meðlimir hennar voru Heimir Eyvindarson hljómborðsleikari (Nonni og mannarnir, Á móti sól o.fl.), Ágúst Jóhannsson bassaleikari, Magnús Snorrason söngvari og gítarleikari og Birgir Sveinsson trommuleikari. Sveitin komst í úrslit keppninnar en varð líkast til skammlíf. Sveit með þessu nafni var starfandi í Árnessýslu 1988 en…
Hljómsveitin Jónatan úr Sandgerði og Njarðvík starfaði a.m.k. 1990 og 91 og keppti um vorið 1991 í Músíktilraunum Tónabæjar. Meðlimir sveitarinnar voru þá þeir Ólafur Þór Ólafsson gítarleikari, Heiðmundur B. Clausen bassaleikari, Þórður Jónsson trommuleikari, Kristinn Hallur Einarsson hljómborðsleikari og Inga Rósa Þórarinsdóttir söngkona. Þó svo að sveitin kæmist ekki í úrslit keppninnar var Ólafur Þór…
Hljómsveitin Júnísvítan var starfrækt á Hellissandi í kringum 1970. Ingvi Þór Kormáksson var í henni og lék á orgel en aðrir meðlimir voru Alfreð Almarsson gítarleikari, Ingibergur Kristinsson trommuleikari, Sigurður Höskuldsson gítarleikari og Hermann Breiðfjörð bassaleikari. Sigurður Elingbergsson tók síðan við af Hermanni. Hljómsveitin Intermezzo þróaðist síðan út frá þessari sveit. Ekki liggja fyrir frekari…
Hljómsveitin Júrtblá keppti árið 1999 í Rokkstokk hljómsveitakeppninni sem haldin við í Keflavík. Sveitin átti lag á safnplötunni Rokkstokk 1999, sem kom út í tengslum við hana. Allar upplýsingar um þessa sveit eru vel þegnar.
Karl Marx var einsmannssveit Árna Jóhannessonar (Equal) í Músíktilraunum árið 2000. Tónlistina skilgreindi hann sem eins konar housetechno. Karl Marx komst ekki í úrslit.
Karlakór alþýðu var kór jafnaðarmanna og sósíalista en hann starfaði í nokkur ár á fjórða áratugnum í Reykjavík og lagði einkum áherslu á lög við hæfi s.s. jafnaðarmanna- og ættjarðarsöngva. Hann var með fyrstu starfandi karlakórum á Íslandi. Kórinn hóf æfingar haustið 1932 en var ekki stofnaður formlega fyrr en eftir áramótin 1932-33. Jón Ísleifsson…
Karlakór með þessu nafni söng við hátíðarhöld í Reykjavík á verkalýðsdeginum 1. maí 1997. Engar upplýsingar er þó að finna um þennan karlakór og hefur hann að öllum líkindum aðeins sungið við þetta eina tækifæri.
Karlakór Eyfellinga starfaði í Eyjafjallahreppi árið 1939 en engar upplýsingar er að finna um hann, hversu lengi hann starfaði eða hver stjórnaði honum.
Karlakór var starfandi í Eyjafjallahreppum 1984 og söng m.a. við vígslu félagsheimilisins Heimalands 1984. Þá var Viðar Bjarnason kórstjórnandi. Ekki liggur fyrir hversu lengi sá kór starfaði en líklega var það einungis um skamman tíma.
Karlakórinn Glaður var stofnaður á Eskifirði 1933 og er enn starfandi eftir því sem best er vitað. Litlar sem engar upplýsingar er að finna um þennan merka kór en hann mun vera meðal elstu karlakóra landsins. Vitað er að Hjalti Guðnason stjórnaði honum um árabil, a.m.k. á sjötta áratugnum, Friðrik Árnason var einhvern tímann stjórnandi…
Hljómsveitin Karpet keppti 1998 í hljómsveitakeppninni Rokkstokk í Keflavík. Sama ár kom lag með sveitinni út á safnplötunni Rokkstokk 1998. Meðlimir sveitarinnar voru Kristófer Jensson söngvari, Hallgrímur Jón Hallgrímsson bassaleikari, Arnar Ingi Hreiðarsson trommuleikari, Eyþór Skúli Jóhannesson gítarleikari og Egill Árni Hübner gítarleikari. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um Karpet.
Á Akranesi var starfandi danshljómsveit – sú fyrsta sinnar tegundar þar í bæ, stofnuð haustið 1936 og mun hafa leikið á böllum á Skaganum og nágrenni. Meðlimir sveitarinnar sem var tríó, voru Theódór Einarsson harmonikkuleikari (kunnur dægurlaga- og textahöfundur), Sigurður B. Sigurðsson harmonikkuleikari og Guðjón Bjarnason trommuleikari. Ingólfur Runólfsson harmonikkuleikari virðist einnig hafa komið við…
Tríóið Keldusvínin frá Reykjavík og Húsavík starfaði á árunum 1991 og 92. Síðara árið keppti sveitin í Músíktilraunum en gerði þar engar rósir, í kjölfarið heyrðist ekkert frá sveitinni. Bergþór Hauksson bassaleikari og söngvari, Ármann Guðmundsson söngvari og gítarleikari og Haraldur Steingrímsson trommuleikari skipuðu sveitina þegar hún spilaði í tilraununum.
Hljómsveitin Kiðlingur var starfandi 1998 og tók þátt í hljómsveitakeppninni Rokkstokk í Keflavík það árið. Meðlimir voru Björgvin Eyjólfur Ágústsson bassaleikari, Hannes Óli Ágústsson söngvari, Viðar Eiríksson trommuleikari og Valgeir Gestsson gítarleikari. Lag með sveitinni kom út á safnplötunni Rokkstokk 1998. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um sveitina.
Söngsveitin Kjarabót starfaði um tveggja ára skeið, stofnaður vorið 1978 og starfaði fram eftir sumri 1980. Lengi vel bar hópurinn ekkert nafn og var því iðulega kallaður Nafnlausi sönghópurinn en nafnið Kjarabót kom til sögunnar í febrúar 1979. Fjöldi söngvara (og hljóðfæraleikara) var eitthvað á reiki en yfirleitt voru tíu til tólf manns í hópnum.…
Hljómsveitanafnið Kjarnar kemur nokkuð víða við í fjölmiðlum á síðari hluta tuttugustu aldarinnar. Ekki er ljóst út frá heimildum hvort um eina eða fleiri hljómsveitir er að ræða og hér er því haldið opnu. Vitað er um bítlasveit frá Akranesi sem starfandi var haustið 1965 en meðlimir þeirrar sveitar voru á gagnfræðiskóla aldri, þeir voru…