Lofsöngur

Lofsöngur (Lag og texti: Böðvar Guðmundsson) Á Íslandi þurfa menn aldrei að kvíða því illræmda hungri sem ríkir svo víða því amríski herinn svo réttsýnn og rogginn hann réttir oss vafalaust eitthvað í gogginn, ó, hó, það segir Mogginn. Hinn amríski stríðsguð sem stendur á verði hann stuggar burt föntum með logandi sverði, í Kóreu…

Litlir kassar

Litlir kassar (Lag / texti: erlent lag / Þórarinn Guðnason) Litlir kassar á lækjarbakka, litlir kassar úr dinga-linga-ling. Litlir kassar, litlir kassar, litlir kassar, allir eins. Einn er rauður, annar gulur, þriðji fjólublár og fjórði röndóttur. Allir búnir til úr dinga-linga enda eru þeir allir eins. Og í húsunum eiga heima ungir námsmenn sem ganga…

Landsvísa

Landsvísa (Lag og texti: Ási í Bæ (Ástgeir Ólafsson))   Eins og forðum daga sjeikspír heitinn sagði: sú er raunin mest tu bí or not tú bí – og það má líka sjá á einu augabragði að Íslendingar hafa lifað eftir því. Þessi myndarþjóð af fornu kappakyni, sem að kvaddi í fússi Noregsstrandar bú. Og…

Krómkallar

Krómkallar (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson / Pétur Gunnarsson)   Skuldakóngar óseðjandi skuldasúpu háma í sig og lesa Lögbirtingablaðið. Hvert mannsbarn skuldar heila milljón, hvert mannsbarn skuldar heila milljón af krómköllum. Græddur er geymdur eyrir gamalmenni trúa því og börn með tóma sparibyssur þau skulda líka heila milljón, hvert mannsbarn skuldar heila milljón af krómköllum.…

Þroskasaga unglings í Garðabæ

Þroskasaga unglings í Garðabæ (Lag og texti: Böðvar Guðmundsson) Úr glugga í Garðabænum ég göngun forðum sá, frá Kanabeisnum í Keflavík hún kom – og gekk þar hjá. Ég horfði á hópinn lengi, á húfur og föt og skó, uns feiknareiður faðir minn loks fyrir gluggann dró en það lokar enginn úti sem augað markvert…

Þyrnirós

Þyrnirós (Lag / texti: erlent lag / Böðvar Guðmundsson) Þyrnirós vantar sitt valium og af vonleysi fyllist hún pirringinn lagar með pillunum, bara prinsinn ekki villist. Limgerðið þétt, þyrnunum sett aldrei nær háhýsinu upp fyrir þak. Þyrnirós tekur út sveitastyrk sinn eftir samfélagsráðum svo bakar hún köku og kaupir inn, prinsinn kemur máske bráðum. Limgerðið…

Ég er kokkur á kútter frá Sandi

Ég er kokkur á kútter frá Sandi (Lag / texti: erlent lag / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Ég er kokkur á kútter frá Sandi. Ég fæ kjaftshögg hvern einasta dag. Og ekki líður mér betur í landi ef ég lendi við konuna í slag. Hún er tvígild að afli hún Tóta og ég tali‘ ekki um…

Landleguvalsinn

Landleguvalsinn (Lag / texti: Jónatan Ólafsson / Númi Þorbergsson) Forðum var verandi á vertíð í Eyjunum, víst er það svona enn. Þarna var indælis úrval af meyjunum og álitlegir menn. Alltaf í landlegum liðu fljótt næturnar við leiki, söng og skál. Þar Adamssynirnir og Evurdæturnar áttu sín leyndarmál. Þá var nú gleði og geislandi hlátur…

Hann var sjómaður dáðadrengur

Hann var sjómaður dáðadrengur (Lag / texti: erlent lag (María Grever) / Ragnar Jóhannesson) Hann var sjómaður dáðadrengur en drabbari eins og gengur. Hann sigldi í höfn um snæfexta dröfn þegar síldin sást ekki lengur. Svo breiðan um herðar og háan í Hljómskálanum ég sá hann. Hið kyrrláta kveld lagði kvöldroðans eld á flóann svo…

Mýrdalssandur

Mýrdalssandur (Lag og texti: Bubbi Morthens og Rúnar Júlíusson) Það er rigning og myrkur og meinlegir skuggar á Mýrdalssandi‘ og hvergi skjól að fá. Það er yfirgefinn bíll úti‘ í vegakanti‘ og hvergi hræðu neins staðar að sjá. Þín versta mara, hún læðist og leitar, líf þitt hremmir með varir blóðheitar. Þú getur hlaupið en…

Draumur hjarðsveinsins

Draumur hjarðsveinsins (Lag / texti: Ísólfur Pálsson / Steingrímur Thorsteinsson) Í birkilaut hvíldi ég bakkanum á, þar bunaði smálækjar spræna. Mig dreymdi að í sólskini sæti ég þá hjá smámey við kotbæinn græna. Og hóglega í draumnum með höfuð ég lá í hnjám hinnar fríðustu vinu, og ástfanginn mændi ég í augun hin blá, sem…

Draumur fangans

Draumur fangans (Lag og texti: Freymóður Jóhannesson) Það var um nótt þú drapst á dyr hjá mér. Og dyrnar opnuðust af sjálfu sér, og inn þú komst og kveiktir ljós mér hjá, ég kaup að fótum þér í hljóðri þrá. Þú lagðir hönd að brjósti mér svo blítt að birta tók og mér varð aftur…

Anna Marí

Anna Marí (Lag / texti: erlent lög / Ási í Bæ (Ástgeir Ólafsson) Hún Anna María er ágætis pía já, ekki er að spyrja að því, með brjóst eins og hóla og brúkar jú kjóla bara á daginn, jú sí. Og hvað þessi manneskja matreiða kann úr mjöll og fiski, jú það gleður mann. Og…

Anna litla

Anna litla (Lag / texti: erlent lag / Sigurður Þórarinsson) Anna litla, létt á fæti – eins og gengur, eins og gengur – Anna litla, létt á fæti lagði‘ af stað í berjamó. Fjórir ungir, sætir sveinar – eins og gengur, eins og gengur – Fjórir ungir, sætir sveinar sátu þar á grænni tó. Einn…

Ameríkubréf

Ameríkubréf (Lag / texti: erlent lag / Magnús Ásgeirsson) Já, nú vil jeg rita heim to you eitt lítið letters bréf, því mig langar til að segja eitt við þig, það er langt síðan you see að jeg á penna haldið hef, en jeg held þú undirstandir skiljir mig. Margt er umbreytt síðan gamla frónið…

Hvað getur Stebbi gert að því?

Hvað getur Stebbi gert að því? (Lag / texti: erlent lag / Bjarni Guðmundsson) Er Stebbi litli fæddist var hann fagur að sjá. Það fundu allir þá, hvað fyrir honum lá. Og þegar þessi litli kútur kalsaði og hló, þá kallaði hún mamma: Stefán, Ó! Hvað getur hann Stebbi gert að því þó hann sé…

Gunna var í sinni sveit

Gunna var í sinni sveit (Lag / texti: erlent lag / Bjarni Guðmundsson) Gunna var í sinni sveit saklaus, prúð og undirleit, hláturmild en helst til fei en hvað er að fást um það. Svo eitt haust kom mærin með mjólkurbíl um leið og féð, henni var það hálft um geð en hvað er að…

Þú ert ungur enn

Þú ert ungur enn (Lag / texti: erlent lag / Erling Ágústsson] Þú ert ungur enn, æskuástir seint gleymast, ungur enn, oft sterkar reyndast. Of ungur enn til að elska og þrá en ástin er ekki að spyrja um hvað hér má. Af hverju fór hún frá mér, hjarta mitt er sárt og þjáð, ekki…

Hæ mambó

Hæ mambó (Lag / texti: erlent lag / Loftur Guðmundsson) Sem unglamb heim ég aftur sný úr orlofsferð til Napólí, fríðari hvergi karl leit kvennafans þótt kynni ég hvorki þeirra dans né sönginn. Hæ mambó, mambó Ítalíanó, hæ mambó, mambó Ítalíanó, sí sí sí, sí, þú ert Sikileyingur, gettu betur góða, gamall bóndi úr Þingó.…

Raunasaga úr sjávarþorpi

Raunasaga úr sjávarþorpi (Lag / texti: erlent lag / Sigurður Þórarinsson) Séleg pía er Sigga Geira og sexappíl hefur flestum meira, hlýtt og notalegt hennar ból hverjum sem býður hún næturskjól. Það vita Kalli Jóns og Gústi læknisins og Nonni Sæmundar og Halli rakarans og Fúsi Sigurleifs og Palli á Goðanum og Denni í Efstabæ…

Fram í heiðanna ró

Fram í heiðanna ró (Lag / texti: erlent lag / Friðrik Aðalsteinn Friðriksson) Fram í heiðanna ró fann ég bólstað og bjó, þar sem birkið og fjalldrapinn grær. Þar er vistin mér góð, aldrei heyrist þar hnjóð, þar er himinninn víður og tær. Heiðar ból ég bý, þar sem birkið og fjalldrapinn grær. Þar er…

Híf opp æpti kallinn

Híf opp æpti kallinn (Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason) Viðlag Híf opp æpti kallinn, inn með trollið, inn! Hann er að gera haugasjó, inn með trollið, inn! Og kalli þessu hásetarnir hlýddu eins og skot og út á dekkið ruddust þeir og fóru strax á flot. Viðlag Og skyndilega bylgja reis við…

Mikið var gaman að því

Mikið var gaman að því (Lag og texti: Steingrímur M. Sigfússon) Manstu systir bernskuna blíðu, bæinn gamla, hlíðina fríðu? Manstu kvöldin, kyrrlát og fögur, kvæðin hennar ömmu og sögur? Þá var hoppað, hlegið og dansað, heldur betur – aldrei var stansað, meðan entist máttur í fótum. Mikið var gaman að því. Bernskuárin bestu liðu, börnin…

Ef að mamma vissi það

Ef að mamma vissi það (Lag / texti: erlent lag / Skafti Sigþórsson) Ég á unga, laglega og litla snót og langar fara á stefnumót með henni hvert einasta kvöld. Nú er ég kominn í gleði og glaum, ég gef mér dálítinn lausan taum með henni, sem ég elska í kvöld. Og ef að mamma…

Afmælisdiktur (úr Ofvitanum)

Afmælisdiktur (úr Ofvitanum) (Lag / texti: Atli Heimir Sveinsson / Þórbergur Þórðarson) Í Skólavörðuholtið hátt hugurinn skoppar núna. Þar var áður kveðið kátt og kalsað margt um trúna. Þar var Herdís, þar var smúkt, þar skein sól í heiði. Þar var ekki á hækjum húkt né hitt gert undir leiði. Ef þú ferð á undan…

Söngur jólasveinanna

Söngur jólasveinanna (Lag / texti: Jón Múli Árnason / Jónas Árnason) Úti er alltaf að snjóa, því komið er að jólunum og kólna fer í Pólunum. En sussum og sussum og róa, ekki gráta elskan mín, þó þig vanti vítamín. Ávexti eigum við nóga handa litlu krökkunum sem kúra sig í brökkunum. Þú færð í…

Klara, Klara

Klara, Klara (Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason) Undarlegt það ýmsum þótti er þú komst í réttirnar, að þú skyldir alltaf stöðugt elta mig á röndum þar. Viðlag Já það er auðséð Klara, Klara. Klara mín, þú elskar mig. Og ég vildi bara, bara, bara gjarnan eiga þig. Og í kirkju á mig…

Hríslan og lækurinn

Hríslan og lækurinn (Lag / texti: Ingi T. Lárusson / Páll Ólafsson) Gott átt þú hrísla á grænum bala glöðum að hlýða lækjarnið. Þið megið saman aldur ala, unnast og sjást og talast við. Það slítur aldrei ykkar fundi, indæl þig svæla ljóðin hans. Vekja þg æ af blíðum blundi brennandi kossar unnustans. Svo þegar…

Gunnukvæði

Gunnukvæði (Lag / texti: engar upplýsingar / Hannes Hafstein) Fyrst allir aðrir þegja þá ætla ég að segja: Eitt sinn var séleg meyja er sveinum mætti tveim. Bitti nú, bitti nú, hopp og hí og tra la la. Þeir heilsuðu henni bráðir og hrifnir voru báðir en ekki alveg gáðir, sem ekki er sögu vert.…

Kvöldsigling

Kvöldsigling (Lag / texti: Gísli Helgason / Jón Sigurðsson) Bátur líður út um eyjasund, enn er vor um haf og land. Syngur blærinn einn um aftanstund, aldan niðar blítt við sand. Ævintýrin eigum ég og þú, ólgar blóð og vaknar þrá. Fuglar hátt á syllum byggja bú, bjartar nætur vaka allir þá. Hvað er betra…

Gamla gatan (Þjóðhátíðarlag 1955)

Gamla gatan (Þjóðhátíðarlag 1955) (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ástgeir Ólafsson (Ási í Bæ)) Ó, gamla gatan mín, ég glaður vitja þín og horfnar stundir heilsa mér. Hér gekk ég gullin spor mín góðu bernskuvor sem liðu burt í leik hjá þér. Í sól og sumaryl, hve sælt að vera til, við þekktum hvorki…

Bráðum kemur betri tíð

Bráðum kemur betri tíð (Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Halldór Laxness) Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga, sæta langa sumardaga, sæta langa sumardaga. Þá er gaman að trítla um tún og tölta á engi, einkum fyrir unga drengi, einkum fyrir unga drengi. Folöldin þá fara á sprett og fuglinn syngur, og kýrnar…

Upp á grænum

Upp á grænum (Lag / texti: erlent lag / Hrefna Tynes) Upp á grænum, grænum himinháum hól sá ég hérahjónin ganga, hann með trommu bom bom, bombo romm bomm bomm, hún með fiðlu sér við vanga. Þá læddist að þeim ljótur byssukarl og miðaði í hvelli, en hann hitti bara trommuna sem small og þau…

Kannast þú við

Kannast þú við (Lag / texti: erlent lag / Óskar Ingimarsson) Kannast þú við koss? Ó já, ó já. Hann smellur vörum á. Nema hvað, nema hvað. En kannastu við koss sem ekki smellur? Nei, enginn koss er til sem ekki‘ er smellur. Jú margir hann í morgunkaffið velja. Þú meinar negrakoss sem bakararnir selja.…

Dirrindí

Dirrindí (Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason) Með krús í hendi ég sat eitt sinn, þá settist lóa við gluggann minn, í hennar augum var háð og spott og á hennar nefi var lóuglott. Viðlag Hún söng dirrindí, dirrindirrindí, bara dirrindí, dirrindirrindí. En þó hún syngi bara dirrindí, fannst mér vera þó nokurt…

Það hrygga fljóð

Það hrygga fljóð (Lag / texti: erlent lag / Sigurður Þórarinsson) Í London, borg með lastafans, þar lifði strákur slátrarans, sem hjarta mínu hleypti í bál en hvert hans orð, það reyndist tál. „Ó, væri ég aftur orðin mey en aldrei skeður svoddan, nei. Fyrr munu háfar hlaupa á land en heimti ég aftur jómfrúarstand.“…

Vinnumaður, vinnukona

Vinnumaður, vinnukona (Lag / texti: Ingi Gunnar Jóhannsson / Kristján frá Djúpalæk) Vinnumann og vinnukonu vissi ég í sveit. Ástin getur orðið svo undarlega heit. Vinnumaður, vinnukona vildu ekkert ljótt. En bilið milli brika er í baðstofunni mjótt. Vinnumaður, vinnukona voru heldur sein. Guð sá þau og gladdist við og gaf þeim lítinn svein. Vinnumaður,…

Vestast í Vesturbænum

Vestast í Vesturbænum (Lag erlent lag / Sigurður Þórarinsson) Vestast í Vesturbænum hvar vorsól fegurst skín. Vestast í Vesturbænum hvar vorsól fegurst skín, þar er eitt þakherbergi og þar býr stúlkan mín. Létt er því lundin, lífið bjart og allt er grín, sól gyllir sundin, ég syng um ást og vín. Í minni eigin kompu…

Um hina heittelskuðu

Um hina heittelskuðu (Lag / texti: Hörður Torfason / Halldór Laxness) Líneik veit ég langt af öðrum bera, létta hryssu í flokki staðra mera, fagurey með fimar tær, frýsar hún hátt og bítur og slær. Ó blessuð mær. Kristilega kærleiksblómin spretta kringum hitt og þetta. Allir vildur þeir eftir henni keppa, öngvum trú ég lukkaðist…

Spánarljóð

Spánarljóð (Lag / texti: erlent lag / Sigurður Þórarinsson) Nú vil ég greina í litlu ljóði frá landi herlegu Spáníá. Þar kostar álíka kláravínið og kranablávatnið okkur hjá. Og senjóríturnar suður á Spáni, þær syngja‘ um ástir með ljúfum hreim, pálmana strönd þegar merlar máni en mikið er varasamt að treysta þeim. Í Barcelona var…

Marína

Marína (Lag / texti: erlent lag / Magnús Ingimarsson) Ef værir þú á leið til Ítalíu og ætlaðir að hitta sæta píu, þá renndu við í Rómarstræti 10 og reyndu‘ að hringja‘ og sjá til hvernig fer. Því þar býr undurfögur yngismeyja sem allir vilja lifa hjá og deyja, en ekki skal ég núna um…

Lórilei

Lórilei (Lag / texti: erlent lag / Steingrímur Thorsteinsson) Ég veit ekki af hvers konar völdum svo viknandi dagur ég er, ein saga frá umliðnum öldum fer ei úr huga mér. Það húmar og hljóðleg rennur í hægðum straumlygn Rín, hinn ljósgullni bjargtindur brennur þar blikandi kvöldsól skín. Þar efst situr ungmey á gnúpi með…

Komu engin skip í dag

Komu engin skip í dag (Lag og texti: Magnús Eiríksson Um sólsetur í fjörunni á steini við röst er hún og bláum augum beinir út að hafsins ystu brún. Og fyrir munni sér hún tautar alltaf sama brag: Guð minn góður, komu engin skip í dag. Hún átti mann sem sigldi sjó og færði fiskinn…

Ó, mín flaskan fríða

Ó, mín flaskan fríða (Lag / texti: þjóðlag / Eggert Ólafsson) Ó, mín flaskan fríða! Flest ég vildi líða, frostið, fár og kvíða, fyrr en þig að missa: mun ég ei mega kyssa munninn þinn, þinn, þinn? Munninn þinn svo mjúkan finn, meir en verð ég hissa. Íslands ítra meyja engra stelpugreyja, heldur hefðarfreyja, sem…

Dufl og dans

Dufl og dans (Lag / texti: erlent lag / Valgeir Sigurðsson) Ég fæ mér stundum einn lítinn hvert föstudagskvöld og fram eftir vaki þótt nóttin sé köld. Ég syng og ég drekk og ég drabba og slæst, mér dugar það lán sem er hendi næst. Viðlag Því ég elska dufl og dans, mig dreymir gleði…

Hafmeyjan

Hafmeyjan (Lag / texti: erlent lag / Sigurður Þórarinsson [ein heimild segir Jónas Árnason]) Það var föstudagsmorgunn, við settum upp segl og sigldum skammt undan strönd, þegar skipstjóri hafmeyju í sjónauka sá með spegil og gullkamb í hönd. Viðlag Og hafaldan rís hátt, þegar herðir stormi á. Fyrir sjómenn í reiða er löngum fátt um…

Einu sinni rérum

Einu sinni rérum (Lag / texti: þjóðlega / Óli í Nýborg) Einu sinni rérum einskipa á sjó fyrir austar Eyjar, sátum þar í ró. Við vorum að reyna að veiða væna keilu úr sjó. [m.a. á plötunni Hálft í hvoru – Almannarómur]

Eftir drukknaða skipshöfn

Eftir drukknaða skipshöfn (Lag / texti: höfundur ókunnur (Kátir voru karlar) / Halldór Laxness) Fræknir voru fírar og fullgild atkvæði, til fiskiveiða fóru á fúnum ryðkláfi, og aldrei komu þeir aftur og engin kerling hló. Þorskurinn dró þá alla ofan í grænan sjó. [óútgefið]

Svo endar hver sitt ævisvall

Svo endar hver sitt ævisvall (Lag / texti: erlent lag / Jón Helgason) Svo endar hver sitt ævisvall og yfirgefur skál og kút er gellur dauðans grimma kall, þitt glas er runnið út. Þú hrumur fauskur, hækju fleyg og haf þú ráð mitt, ungur sveinn, ef flírar stúlkan fagureyg þá fylgdu henni einn. Ef þér…

Nú geng ég með á gleðifund

Nú geng ég með á gleðifund (Lag / texti: erlent lag / höfundur ókunnur) Nú geng ég með á gleðifund og gott er nú að vera frjáls, en aldrei sá ég svásra sprund en svartan flöskuháls. Er drepur sorg á dyr hjá mér, til dyranna ég reyndar fer, en segi: Ég í önnum er og…